Richarlison byrjar með látum og Mexíkó pakkaði Frakklandi saman Ólympíuleikarnir í knattspyrnu karla hófust í dag með átta leikjum. Af nægu er að taka en helst það að frétta að Richarlison skoraði öll mörk Brasilíu í 4-2 sigri á Þýskalandi, Mexíkó vann 4-1 sigur á Frakklandi og Ástralía lagði Argentínu 2-0. Fótbolti 22. júlí 2021 13:31
Simone Biles fyrst til að fá eigið myllumerki Simone Biles, sigursælasta fimleikakona allra tíma, er fyrsta íþróttakonan til að fá sitt eigið myllumerki á samfélagsmiðlinum Twitter. Sport 22. júlí 2021 11:01
Snæfríður og Anton Sveinn fánaberar Íslands Sundfólkið Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Anton Sveinn McKee verða fánaberar Íslands á setningarhátíð Ólympíuleikanna í Tókýó á morgun. Sport 22. júlí 2021 10:33
Stjórnandi opnunarhátíðarinnar rekinn fyrir grín um helförina Stjórnandi opnunarhátíðar Ólympíuleikanna sem hefjast á morgun í Tókýó hefur verið látinn taka pokann sinn vegna gríns um helförina. Erlent 22. júlí 2021 07:05
Skrifa söguna í Tókýó Brasilísku fótboltagoðsagnirnar Marta og Formiga skrifuðu söguna í opnunarleik Ólympíuleikanna í Japan sem Brasilía vann 5-0 gegn Kína í morgun. Fótbolti 21. júlí 2021 22:30
Mega ekki sýna íþróttamfólk krjúpa í Tókýó Alþjóða Ólympíunefndin, IOC, og skipulagsnefnd Ólympíuleikanna 2020 í Tókýó í Japan gáfu í dag út yfirlýsingu þess efnis að samfélagsmiðlateymi liða, landa og einstkalinga megi ekki sýna íþróttafólk krjúpa fyrir keppni. Sport 21. júlí 2021 17:01
Skoraði þrennu í sjö marka tapi Barbra Banda mun seint gleyma leik Sambíu og Hollands á Ólympíuleikunum í knattspyrnu sem fram fór í dag. Hún skoraði öll þrjú mörk Sambíu í 3-10 tapi. Þá skoraði Christine Sinclair sitt 187. landsliðsmark í 300. leiknum sínum fyrir Kanada. Fótbolti 21. júlí 2021 14:00
Halda 2032 Ólympíuleikana án mótframboðs Alþjóða Ólympíunefndin, IOC, staðfesti í dag, að Ólympíuleikarnir 2032 sem og Ólympíuleikar fatlaðra myndu fara fram í Brisbane í Ástralíu. Sport 21. júlí 2021 13:15
Svíar stöðvuðu rúmlega tveggja ára taplausa hrinu bandarísku heimsmeistaranna Svíþjóð gerði sér lítið fyrir og skellti heimsmeisturum Bandaríkjanna, 3-0, í G-riðli fótboltakeppni Ólympíuleikanna sem hófst í dag. Fótbolti 21. júlí 2021 10:30
Mátti ekki taka mömmu sína með sem aðstoðarkonu og hætti við þátttöku á ÓL Sundkonan Becca Meyers, sem er bæði blind og heyrnarlaus, hefur hætt við þátttöku á Ólympíumóti fatlaðra eftir að henni var meinað að taka móður sína, sem er aðstoðarkona hennar, með til Tókýó. Sport 21. júlí 2021 10:00
Útilokar ekki að Ólympíuleikunum verði aflýst á síðustu stundu Tíu til viðbótar hafa greinst með kórónuveiruna í Ólympíuþorpinu á undanförnum sólahring. Heildarfjöldi smitaðra er kominn upp í 68 talsins og framkvæmdarstjóri leikanna hefur ekki útilokað að þeim verði aflýst á síðustu stundu. Sport 20. júlí 2021 16:30
Skráðu of marga keppendur til leiks á ÓL og þurftu að senda sex heim Sex pólskir sundmenn fóru í fýluferð til Tókýó vegna mistaka pólska sundsambandsins sem skráði of marga keppendur til leiks á Ólympíuleikunum. Sport 20. júlí 2021 15:01
Aron mættur með Barein til Tókýó Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í handknattleikslandsliði Barein eru komnir til Tókýó í Japan þar sem liðið mun taka þátt á Ólympíuleikum í fyrsta sinn. Handbolti 20. júlí 2021 09:01
Smit greindist í bandaríska fimleikaliðinu Bandarísk fimleikakona, sem er í hópi þeirra sem keppa á Ólympíuleikunum í Tókýó, greindist með COVID-19 við sýnatöku í Japan í dag. Þónokkur smit hafa greinst á meðal íþróttafólks sem fer á leikana á síðustu dögum. Sport 19. júlí 2021 18:01
Greindist með veiruna og mun ekki keppa á Ólympíuleikunum Coco Gauff, ein af vonarstjörnum tennisheimsins, mun ekki keppa á Ólympíuleikunum sem hefjast síðar í mánuðinum í Tókýó í Japan. Sport 19. júlí 2021 09:30
Með uppeldisfélögin á bakinu Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska landsliðinu í handbolta undirbúa sig nú undir Ólympíuleikana í Tókýó sem hefjast í vikunni. Handbolti 18. júlí 2021 13:00
Tveir Ólympíufarar hafa greinst smitaðir Tveir íþróttamenn í Ólympíuþorpinu hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni, aðeins fimm dögum áður en Ólympíuleikarnir hefjast. Íþróttamennirnir eru frá sama landinu og eru í sömu íþrótt og starfsmaðurinn sem greindist smitaður í gær. Sport 18. júlí 2021 07:51
Horfinn í aðdraganda Ólympíuleika Ólympíuleikarnir í Tókýó, Japan, hefjast í næstu viku en í gær hvarf einn af þeim lyftingamönnum sem hugðist keppa í ólympískum lyftingum á leikunum, allt að því sporlaust. Sport 17. júlí 2021 20:45
Gengu af velli eftir kynþáttaníð Ólympíulið Þýskaland í knattspyrnu gekk af velli fimm mínútum fyrir leikslok er liðið spilaði vináttuleik við Hondúras vegna kynþáttafordóma. Fótbolti 17. júlí 2021 13:15
Smit í Ólympíuþorpinu vekur áhyggjur Mótshaldarar Ólympíuleikana í Japan hafa staðfest smit í Ólympíuþorpinu en fjölmiðlar greina frá þessu í morgun. Smitið kom upp innan veggja Ólympíuþorsins. Sport 17. júlí 2021 12:30
Sá næststigahæsti missir af Ólympíuleikunum Bradley Beal, skotbakvörður Washington Wizards í NBA-deildinni í körfubolta, fer ekki með bandaríska landsliðinu á Ólympíuleikana. Beal fór hamförum í NBA-deildinni í vetur og skoraði yfir 30 stig að meðaltali í leik. Körfubolti 16. júlí 2021 16:00
Fékk þær fréttir á sex ára afmælinu að Djokovic kæmi á Ólympíuleikana Serbinn Novak Djokovic ætlar að vera með á Ólympíuleikunum í Tókýó og mun þannig freista þess að verða fyrsti karl sögunnar til að vinna „gullalslemmuna“ með því að vinna Ólympíugull og öll fjögur risamótin í tennis á sama ári. Sport 16. júlí 2021 13:01
Hættir við að keppa á Ólympíuleikunum vegna andlegrar vanheilsu Ástralska körfuboltakonan Liz Cambage hefur hætt við að keppa á Ólympíuleikunum í Tókýó vegna andlegra vandamála. Körfubolti 16. júlí 2021 12:00
Anton þyrfti að vera með grímu og hengja sjálfur á sig ólympíuverðlaun Ef að draumur Antons Sveins McKee um að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum rætist í Tókýó, aðfaranótt föstudagsins 30. júlí, verður hann sjálfur að sjá um að hengja medalíuna um hálsinn. Sport 14. júlí 2021 14:30
Guðni kvaddi Ólympíufarana Forsetinn kvaddi í dag íslensku Ólympíufarana á Bessastöðum, áður en þeir héldu af stað til Tókýó í Japan, þar sem leikar hefjast eftir tíu daga. Innlent 13. júlí 2021 22:51
Roger Federer verður ekki með á Ólympíuleikunum Einn besti tenniskappi heims, Roger Federer, gaf það út fyrr í dag að hann yrði ekki með á Ólympíuleikunum í Tókýó sem hefjast eftir tíu daga. Federer er meiddur á hné og getur því ekki tekið þátt. Sport 13. júlí 2021 19:01
Bandarísku stjörnurnar töpuðu aftur Það þykja stórtíðindi þegar stjörnum prýtt lið Bandaríkjanna í körfubolta tapar leik og hvað þá tveimur í röð og eins og hefur nú gerst. Körfubolti 13. júlí 2021 10:30
Alfreð ánægður að þurfa loksins ekki að heyra öll boltahljóðin Alfreð Gíslason mun í kvöld loksins fá að stýra þýska landsliðinu í handbolta fyrir framan áhorfendur, í fyrsta sinn frá því að hann tók við liðinu. Handbolti 9. júlí 2021 10:01
Evrópuþingið hvetur diplómata til að sniðganga vetrarólympíuleikana í Pekíng Evrópuþingið hefur samþykkt ályktun þar sem diplómatar eru hvattir til að sniðganga vetrarólympíuleikana í Pekíng vegna mannréttindabrota kínverskra stjórnvalda. Erlent 9. júlí 2021 08:36
Arna Sigríður sjötti keppandi Íslands í Tókýó Handahjólreiðakonan Arna Sigríður Albertsdóttir verður sjötti fulltrúi Íslands á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics, sem fram fer í Tókýó dagana 24.ágúst - 5.september. Arna verður fyrst íslenskra kvenna til að keppa í hjólreiðum á Ólympíumóti fatlaðra. Sport 8. júlí 2021 20:30