
Bein útsending: Efling lífrænnar matvælaframleiðslu
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun kynna drög að aðgerðaáætlun varðandi eflingu lífrænnar matvælaframleiðslu á fundi klukkan 10.
Fréttir frá störfum ríkisstjórnarinnar, Alþingis og stjórnmálum almennt.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun kynna drög að aðgerðaáætlun varðandi eflingu lífrænnar matvælaframleiðslu á fundi klukkan 10.
Staða íslenskrar tungu er fundarefni opins fundar í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sem hefst klukkan 9:10.
„Ráðuneytinu hefur ekki borist umsókn um nýtt leyfi.“
COP28 loftslagsráðstefnan í Dubai hefst í dag og því er nauðsynlegt að skoða frammistöðu Íslenskra fyrirtækja sem losa meira en 20 þúsund tonn af CO2 á síðasta ári. En berjast þarf að krafti við að draga úr losun því hvert hitametið á fætur öðru hefur verið slegið á þessu ári. Haldi þessi þróun áfram mun hún hafa skelfilegar afleiðingar fyrir jarðarbúa, lífríki og vistkerfi á jörðinni.
Diljá Mist Einarsdóttir hefur lagt fram fyrirspurn til dómsmálaráðherra um handtöku og afhendingu íslenskra ríkisborgara. Tilefnið er mál Eddu Bjarkar Arnardóttur, sem var handtekin í gær og til stendur að afhenda norskum yfirvöldum.
Formaður Viðreisnar gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag fyrir aðgerðarleysi í baráttunni við verðbólgu og háa vexti. Það eina sem ríkisstjórnin hyggðist gera til að draga úr útgjöldum ríkissjóðs væri flatur niðurskurður án allrar forgangsröðunar. Ekkert væri gert til að draga í raun úr útgjöldum ríkissjóðs.
Aðgerðaráætlun menningarmálaráðherra gerir ráð fyrir að tæpum einum og hálfum milljarði verði veitt í aðgerðir til bjargar íslenskunni næstu þrjú ár. Í nýlegu lagafrumvarpi fjármálaráðherra er gert ráð fyrir að nýtt kílómetragjald eigi að leggjast fyrst á rafbíla.
Umhverfis- orku- og loftslagsráðherra segir ekki ásættanlegt að fiskimjölsverksmiðjur þurfi ár eftir ár að keyra starfsemi sína á olíu vegna skorts á rafmagni. Það væri einfaldlega komið að skuldadögum eftir fimmtán ára aðgerðaleysi í virkjanamálum.
Þingmenn úr öllum flokkum stjórnarandstöðu stigu í pontu Alþingis síðdegis til að gagnrýna vinnubrögð ríkisstjórnarinnar en þingflokksformenn fengu skilaboð um kvöldmatarleytið í gær um að til stæði að taka fyrir 56 blaðsíðna frumvarp umhverfisráðherra í dag sem meðal annars inniheldur fjórtán ESB lagagerðir.
Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus, er fullur efasemda um tímamótaáætlun um íslenska tungu, sem kynnt var með pompi og prakt fyrr í dag.
Tæpum einum og hálfum milljarði verður veitt í aðgerðir til bjargar íslenskunni næstu þrjú ár. Aðgerðirnar eru þær umfangsmestu sinnar tegundar sem ráðist hefur verið í, að sögn menningarráðherra. Rík áhersla verður lögð á íslenskukennslu innflytjenda.
Formaður VR reiknar með að öllum viðræðum verkalýðshreyfingarinnar við stjórnvöld og Samtök atvinnulífsins verði hætt fram yfir áramót vegna boðaðra gjaldskrárhækkana sveitarfélaga og aðgerðaleysis stjórnvalda. Verkalýðshreyfingin geti ekki ein staðið undir því að keyra niður verðbólguna.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur skipað Trausta Fannar Valsson, forseta lagadeildar Háskóla Íslands, formann úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Kynningarfundur um áherslur ráðherranefndar um málefni íslenskrar tungu verður haldinn klukkan 11 í Hörpuhorni Hörpu.
Þingkona Flokks fólksins og eiginmaður hennar hafa stefnt sýslumanninum vegna fyrndra vaxta sem þau þurftu að greiða í tengslum við uppboð á heimili þeirra árið 2017. Málið á uppruna sinn að rekja til Hrunsins árið 2008. Ásthildur Lóa segir málið mikið réttlætismál og að sýslumaður hafi brotið á jafnræði. Það hafi ekki allir greitt þessa fyrndu vexti.
Tveir þriðju íbúða í fjölbýlishúsi nálægt miðbæ Reykjavíkur eru í eigu félags sem leigir þær út til ferðamanna. Formaður Umhverfis- og skipulagsráðs segir að mögulega hafi orðið forsendubreyting þarna.
Þriðja veturinn í röð neyðast fiskimjölsverksmiðjur landsins til að brenna olíu vegna raforkuskort. Sú aukna olíunotkun sem af þessu leiddi síðastliðinn vetur þurrkaði upp allan loftslagsávinning af öllum innfluttum rafmagnsbílum frá upphafi.
Stjórnarandstaðan hefur undanfarna daga gagnrýnt hvað fá mál af málaskrá ríkisstjórnarinnar eru komin fram á Alþingi þegar óðum styttist í jólaleyfi þingmanna, eða 35 frumvörp. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að því miður væri tilhneigingin stundum að leggja mál fram rétt áður en frestur til þess renni út, sem væri í þessari viku.
Þingmaður Pírata gagnrýnir aukinn vopnaburð lögreglu með rafbyssum og óttast að hann muni stigmagna ofbeldi í samfélaginu. Dómsmálaráðherra segir enga stefnubreytingu hafa átt sér stað varðandi valdbeitingarheimildir lögreglunnar.
Á fundi sveitarstjórnar Flóahrepps í dag var meðal annars tekin fyrir beiðni frá Huldu Kristjánsdóttur, sveitarstjóra þar sem hún lagði fram ósk um að breyting á launum hennar frá 1. nóvember 2023 taki ekki breytingum samkvæmt launavísitölu þetta árið líkt og samið er um í ráðningarsamningi heldur verði í takt við þær breytingar sem BHM gerði á launatöflum 1. apríl 2023. Breyting samkvæmt launavísitölu þýðir um 11% hækkun á milli ára en breytingar á launatöflum BHM nemur 6,75%. Sveitarstjórn Flóahrepps samþykkti þessa beiðni sveitarstjóra.
Orkuveita Reykjavíkur, sveitarfélagið Ölfus og Títan tilkynntu í dag um áform um að sækja sameiginlega um rannsóknarleyfi með samstarf um nýtingu jarðhita í Ölfusdal í huga.
Forsætisráðherra og innviðaráðherra eru sammála um alvarleika þess að neysluvatnslögn varð fyrir skemmdum fyrir tæpum tveimur vikum síðan. Bregðast þurfi rétt við.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur finnur alltaf leið til að demba aðhaldinu í ríkisfjármálum á lágtekju- og millitekjuheimili en hlífa þeim tekjuhærri.
Sjálfstæðismenn vilja velta fyrir sér öllum vinklum á atviki sem varðar Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur þingmanni Pírata frá á föstudagskvöldið.
Eldri borgarar og öryrkjar sem treysta eingöngu á lágar bætur frá almannatryggingum lifa við gríðarlega fátækt og bágborin kjör. Þeir óttast sérstaklega að verða 67 ára því þá lækka bætur þeirra enn frekar þegar þeir færast yfir á ellilífeyri. Oft eru þetta konur sem unnu árum saman sem heimavinnandi húsmæður og eiga engan lífeyrissjóð.
Formaður Miðflokksins segist hafa miklar áhyggjur af framgöngu almennings við séra Friðrik Friðriksson heitinn, en til stendur að taka niður styttu af honum sem stendur við Lækjargötu. Hann veltir fyrir sér hvort atlot séra Friðriks, við unga drengi, hafi verið sama eðlis og atlot ættingja við börn sem þeim þykir vænt um.
Holl og góð næring er grunnþáttur í þroska barna og ungmenna. Matarmenning og viðhorf til matar mótast einnig í grundvallaratriðum á skólaaldri. Gjaldfrjálsar skólamáltíðir stuðla að jafnrétti, þar sem allir nemendur fá hollan og næringarríkan mat óháð stöðu forsjáraðila. Því getur skólamatur og stuðningur skólanna við mataruppeldi haft afgerandi áhrif á heilsufar til framtíðar.
Fylgi Samfylkingarinnar mælist 26 prósent í nýrri könnun Maskínu og minnkar um tæplega tvö prósentustig á milli kannanna. Flokkurinn mælist þó enn langstærstur.
Til stendur að endurgera minnisvarða um landnám Íslands sem stendur á grassvæði nærri Austurveri við Háaleitisbraut í Reykjavík og hefur mikið látið á sjá á síðustu árum. Fjármagn úr minnisvarðasjóði Þórs Sandholt verður nýtt til verksins og sjóðum í kjölfarið slitið.
Innviðaráðherra skoraði á eigendur atvinnuhúsnæðis, sem búið er í, að koma því í lag á Alþingi í dag. „Þetta getur ekki gengið svona áfram,“ sagði hann og vísaði til fjölda alvarlegra eldsvoða sem orðið hafa undanfarið.