

Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.
Tónlistarmaðurinn Issi tók upp tónlistarmyndband á toppi Langjökuls á dögunum við lagið Klukkan seint. Lagið er að finna á plötunni Rauð viðvörun sem hann sendi frá sér í apríl síðastliðnum.
„Ég var í voða fínni inni vinnu og kominn á miðjan aldur en leiður á henni og ýmsu öðru. Ég var eiginlega bara að missa vitið af leiðindum og mig langaði að prófa eitthvað annað áður en af því yrði endanlega. Á svipuðum tíma áttaði ég mig líka á því að ekki bara einn heldur tveir jafnaldrar mínir og fyrrum hljómsveitafélagar höfðu dáið tiltölulega nýlega,“ segir tónlistarmaðurinn Klemens Ólafur Þrastarson, sem notast við listamannsnafnið Klói og var að senda frá sér tveggja laga smáskífu.
Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran kom tónleikagestum sínum í Detroit heldur betur á óvart um helgina með óvæntum gesti. Sheeran tilkynnti áhorfendum að hann ætlaði að taka gítarútgáfu af sögulega smellinum Lose Yourself eftir Eminem en rapparinn gekk stuttu síðar inn á svið og tók við.
Söng- og leikkonan Jane Birkin er látin, 76 ára að aldri. Hún var best þekkt fyrir að hafa sungið dúetta með tónlistarmanninum Serge Gainsbourg og leikið í kvikmyndum á borð við Evil Under The Sun og Blow-up.
Tónlistarmaðurinn og fyrrum Idol keppandinn Guðjón Smári var að senda frá sér sitt fyrsta lag, Dansandi í myrkri, og var lagið kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM fyrr í dag.
Tónlistarmaðurinn Joe Jonas, þriðjungur þríeykisins Jonas Brothers, segist hafa kúkað á sig á miðjum tónleikum. Hann segist verið klæddur í hvít föt þegar það gerðist og þess vegna þurft að drífa sig baksviðs og skipta um föt.
Gísli Þór Guðmundsson, umboðsmaður fjölda þekktra hljómsveita og tónlistarmanna, er látinn aðeins 62 ára að aldri.
Rapparinn og söngkonan Cell7, sem heitir réttu nafni Ragna Kjartansdóttir, og hljómsveitin Moses Hightower gáfu í dag út lagið Thinking Hard. Meðfram laginu gefa þau út tónlistarmyndband sem frumsýnt er hér á Vísi.
„Þetta er lag sem ég samdi þegar ég var að fara í gegnum mjög erfiða tíma og ég sleppti alveg tökunum í textasmíðinni. Þetta er í fyrsta skipti síðan ég byrjaði að semja tónlist þar sem ég er algjörlega að opna mig,“ segir hin nítján ára gamla tónlistarkona Guðlaug Sóley, Gugusar, um lagið Vonin sem hún var að senda frá sér. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá.
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir og Ragnar Þórhallsson, söngvarar hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, hafa verið par í nokkurn tíma en lítið látið á því bera opinberlega.
Haraldur Þorleifsson gefur í dag út sína aðra smáskífu og tónlistarmyndband undir listamannsnafninu Önnu Jónu Son við lagið Big Boy Boots. Myndbandið er frumsýnt hér að neðan á Vísi.
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, eða Prettyboitjokkó, hefur fest kaup á hvítum Porsche Cayenne E-hybrid sportjeppa. Patrik birti myndskeið af glæsibifreiðinni í sólinni á Instagram í gær.
Tónlistarkonan Dolly Parton hefur engan áhuga á því að setjast í helgan stein þrátt fyrir að vera orðin sjötíu og sjö ára gömul. Hún gaf nýlega út nýtt lag og von er á nýrri plötu frá henni á næstunni.
„Þetta er okkar uppáhalds hátíð og til að keyra upp stemminguna ákváðum við að skella í myndband,“ segir Auðunn Blöndal einn forsprakka FM95BLÖ en Vísir frumsýnir í dag rándýrt myndband við nýjasta lag hópsins.
Tónlistarkonan Madonna var flutt á gjörgæslu í lok síðasta mánaðar vegna alvarlegrar bakteríusýkingar. Hún er núna á batavegi og er strax byrjuð að endurskipuleggja tónleikaferðalagið sitt.
„Ég hitti guð í dag,“ skrifaði tónlistarkonan Laufey við Instagram færslu hjá sér undir mynd af henni og tónlistargyðjunni Noruh Jones. Þær stöllur höfðu verið að spila á sömu tónlistarhátíð í Belgíu og áttu að sögn Laufeyjar góðar samræður eftir tónleikana.
Lokatónleikarnir í kveðjutónleikaröð tónlistarmannsins Elton John fóru fram í Stokkhólmi í gær. Tónleikaröðin hófst árið 2018 og er ein sú söluhæsta í sögunni. Íslensk hjón sem mættu á tónleikana í gær segja að þeir hafi verið frábærir.
„Það var stór stökkpallur að fara úr Músíktilraunum yfir í tónlistarbransann á Íslandi. Ótal dyr sem opnuðust, fullt af möguleikum og skemmtilegum tækifærum,“ segir tónlistarkonan Kolbrún Óskarsdóttir, sem notast við listamannsnafnið KUSK. Hún var að senda frá sér lagið Áttir allt sem var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag.
Tónlistarkonan Britney Spears greip ekki í körfuboltamanninn Victor Wembanyama, heldur potaði í hann til að ná athygli hans. Þá var hún ekki slegin í jörðina af öryggisverði hans, heldur sló hann í hendi hennar en í leiðinni fór hendi hans í andlit hennar eða hún sló sjálfa sig í andlitið.
„Fólk misskilur mig alveg klárlega og þó það sé alltaf að gerast sjaldnar og sjaldnar þá gerist það enn. Mér fannst það ógeðslega erfitt, leiðinlegt og pirrandi en það hefur eiginlega engin áhrif á mig í dag. Maður venst því alveg, eins og flestu,“ segir rapparinn Birgir Hákon. Blaðamaður hitti hann í kaffi og ræddi við hann um lífið og tilveruna.
Tónlistarkonan Róshildur gaf út sína fyrstu stuttskífu, eða EP-plötu, í dag. Stuttskífan ber nafnið (v2,2). Á henni eru fjögur lög sem fjalla um ást, merkingu orða og tilveruna.
Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, verður haldin í Malmö í suðurhluta Svíþjóðar í maí á næsta ári.
Teknóhljómsveitin GusGus og rapparinn Birnir sameina krafta sína í nýju lagi, sannkölluðum sumartekósmelli, sem ber nafnið Eða?
Britney Spears var slegin utan undir af öryggisverði með þeim afleiðingum að hún féll í jörðina þegar hún leitaðist eftir mynd með körfuboltamanninum Victor Wembanyama í Las Vegas í gær.
Tónlistarkonan Taylor Swift hefur að undanförnu verið á gífurlega vinsælu tónleikaferðalagi í Bandaríkjunum. Í síðasta mánuði tilkynnti Swift að stefna ferðalagsins væri sett út um allan heim en þó ekki til Íslands. Borgarstjóri Reykjavíkur hefur lagt sitt af mörkum í að sannfæra stjörnuna um að gera sér ferð til höfuðborgar Íslands.
Tónlistarmaðurinn Machine Gun Kelly kýldi aðdáanda sinn í andlitið á tónleikum á dögunum er hann var í miðju lagi. Það var þó ekki illa meint þar sem aðdáandinn bað hann um að kýla sig og var virkilega sáttur eftir höggið.
Bandaríska söngkonan og leikkonan Coco Lee, sem fæddist í Hong Kong og naut mikilla vinsælda í Asíu, er látin, 48 ára að aldri.
Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, hefur keypt sér hús á höfuðborgarsvæðinu. Því má segja að stofnandi tónlistarhátíðarinnar Aldrei fór ég suður fari í raun iðulega suður.
Emmsjé Gauti segir viðtökurnar við þjóðhátíðarlaginu í ár hafa verið góðar. Það hafi þó ekki alltaf verið markmið að semja þjóðhátíðarlagið. Hann er spenntur fyrir því að frumflytja það í brekkunni í Vestmannaeyjum en ætlar þangað til að hlusta á annað fólk flytja lagið.