Sameinuðu þjóðirnar

Öryggisráðið styður friðartillögu Biden
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag að styðja við þriggja fasa vopnahlésáætlun á milli Hamas og Ísrael á Gasa. Áætlunin var lögð fram af forseta Bandaríkjanna, Joe Biden, við lok síðasta mánaðar.Fjórtán af fimmtán meðlimum ráðsins samþykktu að styðja tillöguna. Rússar sátu hjá.

Til varnar líffjölbreytileika
Ágengar framandi tegundir eru meðal helstu ógna við líffjölbreytileika, ekki síst í vistkerfum sem eru landfræðilega einangruð. Hættan sem fylgir ágengum tegundum er talin geta aukist með síauknum flutningi varnings og ferðafólks, til viðbótar við loftslagsbreytingar.

„Ég einfaldlega spurði kennarann: Ertu ekki að djóka?!“
Þann 11.maí síðastliðinn, hélt París Anna Bergmann, sextán ára nemandi við Menntaskólann á Akureyri erindi á ráðstefnu félagi Ungra athafnakvenna, UAK.

Flytja hjálpargögn til Gasa í gegnum Kerem Shalom
Vöruflutningabílar með hjálpargögn fengu í dag að fara inn á Gasa í gegnum Kerem Shalom landamærin samkvæmt nýju samkomulagi við Egyptaland. Óljóst er hvort mannúðarsamtök fái aðgang að hjálpargögnunum inn á Gasasvæðinu vegna áframhaldandi árása á staðnum.

Ísrael eigi að láta af öllum hernaðaraðgerðum í Rafah
Alþjóðadómstóllinn í Haag úrskurðaði í dag að Ísraelsher ætti að láta af öllum hernaðarðageðrum í Rafah í suðurhluta Gasaborgar. Í úrskurðinum er ekki kveðið á um vopnahlé eins og óskað hafði verið eftir af Suður-Afríku sem kom með máli til dómstólsins.

Í dag er dagur líffjölbreytileika
Líffjölbreytileiki á við breytileika vistkerfa, tegunda og erfðafræðilega fjölbreytni innan tegunda. Líffjölbreytileiki er meðal annars mikilvægur fyrir þjónustu vistkerfa til að mynda frævun, loftslagsstjórnun og flóðavarnir.S

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar
Prófessor í stjórnmálafræði segir það stórfréttir að alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hafi farið fram á handtökuskipun á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Stærstu fréttirnar séu þó þær að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafi reynst algjörlega vanhæft til að takast á við aðstæðurnar.

Mannréttindastofnun verður að veruleika
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp um Mannréttindastofnun Íslands. Meginhlutverk stofnunarinnar er að efla og vernda mannréttindi á Íslandi, eins og þau eru skilgreind í stjórnarskrá, lögum, alþjóðasamningum og öðrum alþjóðlegum skuldbindingum.

Lausnin út í mýri?
Ágæti lesandi, árið er 2024 og Sameinuðu þjóðirnar hafa talað, áratugur 2021 til 2030 eru áratugurendurheimtar vistkerfa (e. ecosystem restoration). Markmiðið er að draga úr hnignun og snúa við eyðingu með áherslu á að endurheimta það sem hefur glatast.

Má ég taka þátt … í lífinu?
Heilbrigðishópur ÖBÍ réttindasamtaka stendur fyrir hádegisfundi um endurskoðun á hjálpartækjahugtakinu 14. maí á Hótel Grand, milli 12:00 og 13:30. Þar mun Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka, flytja erindi um hjálpartækjahugtakið og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Palestína fær aukna þáttöku á allsherjarþingi SÞ
Ályktun um aukinn rétt Palestínu til þátttöku í störfum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna var samþykkt með yfirgnæfandi stuðningi á neyðarfundi þingsins í dag. Ísland kaus með ályktuninni

Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ
Fulltrúi Íslands greiddi atkvæði með aukinni þátttöku Palestínu í störfum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í atkvæðagreiðslu þar í dag. Tillagan var samþykkt en Bandaríkin voru eitt níu ríkja sem greiddi atkvæði gegn henni.

Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna gerir nokkrar athugasemdir við frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um alþjóðlega vernd, í umsögn sem hefur verið birt á vef Alþingis.

Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu
Eldflaug sem lenti á borginni Karkív í norðausturhluta Úkraínu þann 2. janúar var af gerðinni Hwasong-11 og kemur frá Norður-Kóreu. Kaup Rússa á skotflaugunum frá Norður-Kóreu eru í trássi við samþykktir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um bann við vopnakaupum frá einræðisríkinu.

Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa
Volker Türk, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur lýst yfir miklum áhyggjum af fregnum af því að hundruð líka hafi fundist í fjöldagröfum við tvö stærstu sjúkrahús Gasastrandarinnar.

Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina
Ísraelsk yfirvöld hafa enn ekki komið fram með sönnunargögn sem bendla starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna við aðild að áhlaupi Hamasliða á Ísrael þann sjöunda október síðasta árs.

Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ
Ályktun um fulla aðild Palestínumanna að Sameinuðu þjóðanna var felld í öryggisráðinu í kvöld þegar Bandaríkin beittu neitunarvaldi sínu. Fulltrúi Bandaríkjanna sagði það ekki til marks um andstöðu þeirra við sjálfstætt ríki Palestínumanna.

Jón Jónsson kemur nýr inn í stjórn
Tónlistarmaðurinn Jón Ragnar Jónsson tók í gær sæti í stjórn UN Women á aðalfundi samtakanna sem fram fór í gær. Hann kemur inn í stjórn í stað Ólafs Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda, sem hverfur úr stjórn eftir fjögurra ára stjórnarsetu.

Guterres hvetur til stillingar en Ísraelar vilja hefndir
Antonio Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna varar stríðandi fylkingar í Miðausturlöndum við því að auka við spennuna á svæðinu, sem hafi verið yfirdrifin fyrir.

Neyðarfundur hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
Boðað hefur verið til neyðarfundar hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag vegna árásar Íran á Ísrael. Fundurinn fer fram síðdegis. Þá mun þjóðstjórn í ríkisstjórn Netanjahús funda með morgninum.

Reka tvo og refsa fleirum vegna árása á hjálparstarfsmenn
Tveimur yfirmönnum í ísraelska hernum hefur verið vikið úr starfi í kjölfar rannsóknar á mannskæðum loftárásum á hjálparstarfsmenn World Central Kitchen. Rannsakendur segja alvarleg mistök hafa verið gerð og starfsreglur hersins hafi verið brotnar þegar árásirnar voru gerðar.

Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun um tafarlaust vopnahlé á Gasa á meðan Ramadan stendur en það er föstumánuður múslima. Ramadan er hálfnað eins og stendur og lýkur þann 9. apríl næstkomandi. 14 meðlimir ráðsins af 15 samþykktu ályktuna.

Flóttamannaaðstoðinni meinað að koma birgðum til hrjáðra
Palestínuflóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna hefur verið meinað af ísraelskum yfirvöldum að færa sveltandi fólki á norðanverðu Gazasvæðinu matvæli. Þar er mesta hættan á hungursneyð um þessar mundir.

Seinka atkvæðagreiðslu um nýja vopnahlésályktun
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun kjósa um nýja vopnahlésályktun á mánudag, en ekki í dag, eins og lagt var upp með. Atkvæðagreiðslunni er seinkað til þess að ráðið geti rætt tillöguna betur um helgina.

Hafna tillögu um „brýnt vopnahlé“
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur hafnað ályktun um vopnahlés á Gasaströndinni. Sendiherrar Rússlands og Kína beittu neitunarvaldi ríkjanna til að koma í veg fyrir samþykkt ályktunarinnar, sem lögð var fram af sendiherra Bandaríkjanna.

Óttast að 222 þúsund börn deyi úr hungri á næstu vikum
Ástandið í Súdan fer sífellt versnandi og vara Sameinuðu þjóðirnar við því að hungurkrísan þar gæti orðið sú versta í heiminum. Vannæring færist mjög í aukana og börn hafi dáið úr hungri. Einn þriðji þjóðarinnar, um átján milljónir manna, eigi erfitt með að verða sér út um mat.

Valdefling kvenna – öllum til góðs
Mér hlotnaðist sá heiður að sækja Þing kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna sem sett var í New York í síðustu viku. Megin þema fundarins að þessu sinni var að hraða árangri er varða kynjajafnrétti og valdeflingu allra kvenna og stúlkna með því að takast á við fátækt og styrkja stofnanir og fjármögnun með kynjaðri heildarsýn.

Veita aftur fé til UNRWA
Ísland mun greiða kjarnaframlag landsins til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) fyrir 1. apríl. Það framlag samsvarar 110 milljónum króna á ári frá þessu ári til og með ársins 2028.

„Mannkynið mun ekki lifa framhald af Oppenheimer“
Bandaríkin og Japan standa saman að ályktun sem hefur verið lögð fram í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um bann gegn kjarnorkuvopnum í geimnum.

Fjölbreyttar raddir borgarasamfélagsins - forsenda sjálfbærrar þróunar
Um mitt síðasta ár fóru íslensk stjórnvöld þess á leit við Félag Sameinuðu þjóðanna (FSÞ) á Íslandi að virkja rödd borgarasamfélagsins um stöðu og innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.