

Lögregla í Frakklandi hefur handtekið sádiarabískan mann sem grunaður er um aðild að morðinu á blaðamanninum Jamal Khashoggi árið 2018.
Hatice Cengiz, unnusta Jamals Khashoggi sem var myrtur hrottalega af útsendurum krónprins Sádi-Arabíu, hefur biðlað til tónlistarmannsins Justins Bieber að hann blási af tónleika sína í Sádi-Arabíu í næsta mánuði.
Yfirvöld í Sádí-Arabíu tilkynntu að þau hyggjast stefna að kolefnishlutleysi landsins fyrir árið 2060. Ríkið er eitt það umfangsmesta í heimi í olíuframleiðslu.
Hatice Cengiz, unnusta Jamals Khashoggi, segist harmi lostin vegna yfirtöku Sádi-Araba á enska knattspyrnuliðinu Newcastle. Útsendarar krónprins konungsríkisins myrtu Khashoggi og bútuðu niður lík hans fyrir þremur árum.
Yfirtöku sádi-arabíska sjóðsins PIF á enska knattspyrnufélaginu Newcastle er nú lokið. Sjóðurinn hefur keypt 80% hlut í félaginu sem verið hafði í eigu Mike Ashley síðastliðin 14 ár.
Átján mánaða arabískt vor virðist loksins að enda hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Newcastle United. Eigandinn Mike Ashley er búinn að ná samkomulagi um að selja félagið við mikinn fögnuð stuðningsmanna þess.
Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) svipti í gær leyndarhulunni af fyrsta skjalinu í tengslum við árásirnar á Tvíburaturnana og Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna í september 2001. Skjalið snýr að aðstoð sem tveir hryðjuverkamenn frá Sádi-Arabíu fengu í aðdraganda árásanna.
Hagnaður sádiarabíska gas- og olíufyrirtækisins Aramco nærri þrefaldaðist á öðrum ársfjórðungi á sama tíma og eftirspurn eftir olíu tók við sér á heimsvísu.
OPEC-ríkin og bandamenn þeirra undir forystu Rússlands hafa ákveðið að auka framleiðslu hráolíu um tvær milljónir tunna á dag fyrir árslok. Þetta er gert til að mæta aukinni eftirspurn þegar áhrif Covid-19 á hagkerfi heimsins dvína.
Sádi-Arabía ætlar að fá Ítalíu með sér í lið og halda heimsmeistarakeppnina í fótbolta árið 2030 saman. Rúmlega 5000 kílómetrar eru á milli landanna en það virðist litlu máli skipta.
Fjögur af þeim fimm ríkjum sem tóku flesta af lífi í fyrra eru Miðausturlönd. Saman stóðu Íran, Egyptaland, Írak og Sádi-Arabía fyrir nærri því níu af hverjum tíu aftökum sem vitað er um með vissu í heiminum samkvæmt skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International.
Dómstóll í Sádi-Arabíu hafnaði áfrýjun Loujain al-Hathloul, baráttukonu fyrir réttindum kvenna, á dómi sem hún hlaut fyrir meint hryðjuverkabrot. Hathloul var ein þeirra jafnréttissinna sem stjórnvöld í Sádi-Arabíu tóku höndum árið 2018.
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa bannað fjölda einstaklinga frá Sádi Arabíu að ferðast til Bandaríkjanna og íhuga að endurskoða vopnasölu til ríkisins. Bandaríkjamenn birtu í gær skýrslu þar sem fram kemur að krónprinsinn Mohammed bin Salman hafi fyrirskipað morðið á blaðamanninum Jamal Khashoggi.
Tvær einkaþotur sem morðingjar blaðamannsins Jamal Khashoggi notuðu til að komast aftur til Riyadh voru í eigu félags sem Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu, yfirtók aðeins ári áður.
Aðgerðarsinni sem barðist fyrir rétti kvenna til að keyra í Sádi-Arabíu hefur verið dæmd í tæplega sex ára fangelsi. Loujain al-Hathloul var handtekin árið 2018 og hefur setið í fangelsi síðan. Var hún meðal annars sökuð um að starfa með aðilum sem eiga að vera óvinveittir konungsríkinu.
Hatice Cengiz, unnusta Jamal Khashoggi, hefur skorað á nýkjörinn forseta Bandaríkjanna að birta skýrslu leyniþjónustunnar (CIA) um morðið á blaðamanninum. Segir hún birtinguna munu skipta sköpum í því að leiða sannleikann í ljós.
Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja ekkert að marka fréttir um að Benjamin Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hafi ferðast til konungsríkisins í gær og átt þar leynilegan fund með krónprinsinum Mohammed bin Salman.
Sádar hafa tilkynnt að fundur G20-ríkjanna verði haldinn í gegn um fjarfundabúnað 21. til 22. nóvember.
Réttarhöld vegna morðsins á Jamal Khashoggi sem fóru fram í Sádi-Arabíu skorti gegnsæi og drógu ekki þá seku til ábyrgðar, að mati mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Átta manns voru dæmdir í fangelsi fyrir meinta aðild að morðinu.
Dómstóll í Sádi-Arabíu kvað um lokaniðurstöðu í máli vegna morðsins á Jamal Khashoggi, sádi-arabísks blaðmanns. Sjálfstæðis dómstólsins og réttarhaldanna hafa verið dregin í efa enginn var sakfelldur fyrir að hafa skipað fyrir um morðið.
Fyrrverandi yfirmaður í sádi-arabísku leyniþjónustunni sakar Mohammed bin Salman krónprins um að hafa ætlað að láta ráða sig af dögum í Kanada.
Salman bin Abdulaziz, konungur Sádi-Arabíu, var lagður inn á sjúkrahús í Ríad vegna bólgu í gallblöðru. Konungurinn, sem er 84 ára gamall, gengst nú undir rannsóknir, að sögn ríkisfréttastofu landsins.
Tuttugu Sádar eru ákærðir í réttarhöldum vegna morðsins á Jamal Khashoggi sem hófst í Tyrklandi í dag. Tveir nánir aðstoðarmenn Mohammeds bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, eru á meðal sakborninganna en enginn þeirra er viðstaddur réttarhöldin.
Yfirvöld í Jemen, undir forystu Sádi-Araba, hafa hafið hernaðaraðgerðir gegn uppreisnarmönnum Húta í Jemen
Sádi Arabía ætlar að stofna þróunarsjóð fyrir ferðaþjónustu í landinu. Grunnfjárfestingin verða fjórar milljarðar dollara, sem samsvara um 554 milljörðum íslenskra króna, samkvæmt tilkynningu frá ferðamálaráðuneytinu sem gefin var út í dag, sunnudag.
Tæplega tvö hundruð kórónaveirusmit hafa greinst í Jemen. Íslendingar leggja til fjármagn gegnum Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) til þess að halda úti þjónustu fyrir verðandi mæður og kornabörn.
Demókratar á Bandaríkjaþingi segja að innri endurskoðandi utanríkisráðuneytisins sem Donald Trump forseti rak skyndilega á föstudagskvöld hafi verið við það að ljúka rannsókn á mögulegu misferli við umfangsmikla vopnasölu Bandaríkjastjórnar til Sádi-Arabíu. Áður hefur komið fram að endurskoðandinn hafi verið að kanna möguleg brot utanríkisráðherrans í embætti.
Nýr eigandi enska úrvalsdeildarfélagsins lét myrða blaðamanninn Jamal Khashoggi en hefur einnig komið á ýmsum breytingum í Sádi-Arabíu.
Yfirvöld í Sádí Arabíu hafa afnumið dauðarefsingu fyrir börn.
Sádi-Arabía mun afnema hýðingar sem refsunarform, samkvæmt lagafrumvarpi sem fréttamiðlar þar í landi hafa í höndum.