
Kvikmyndagerð á Íslandi

Villibráð vinsælasta mynd landsins aðra helgina í röð
Villibráð er vinsælasta mynd landsins aðra helgina í röð og heldur Avatar: Way of Water örugglega fyrir aftan sig samkvæmt tilkynningu frá Sambíóunum.

„Alltaf verið dauðhræddur við níu til fimm pælinguna“
Tómas Geir Howser Harðarson vann hug og hjörtu landsmanna með tilfinningaríkum fagnaðarlátum í Gettu betur árið 2015 og hlaut viðurnefnið Tilfinninga-Tómas.

Óttast að eiga ekki lengur vini út af sönnu sögunum í Villibráð
Tyrfingur Tyrfingsson einn handritahöfunda kvikmyndarinnar Villibráð segir að margt sannsögulegt komi fram í myndinni.

Berdreymi tilnefnd til dönsku kvikmyndaverðlaunanna
Kvikmyndin Berdreymi eftir Guðmund Arnar Guðmundsson er tilnefnd til dönsku kvikmyndaverðlaunanna, Robert Prisen 2023.

Kvikmyndatónlist kvenna sett í sviðsljósið
Laugardaginn 14.janúar verður haldinn sérstakur kvikmyndatónlistarviðburður í Bíó Paradís í samstarfi við Feminist Film Festival, Shesaid.so og Anima Productions.

Sér sjálfan sig í öðru ljósi eftir að myndin kom út
„Mér skilst að menn hafi orðið mjög hrifnir af mér svo ég fór að líta á mig öðrum augum en áður. Ég hef aldrei haft mikið álit á mér,“ segir Árni Jón Árnason, sem vann hug og hjörtu þjóðarinnar í heimildarmyndinni Velkominn Árni.

Stjörnurnar flykktust í bíó að sjá Villibráð
Forsýning á íslensku gamanmyndinni Villibráð fór fram í Smárabíói í gær. Landslið íslenskra leikara kemur saman í þessari stórhættulegu kvikmynd undir leikstjórn Elsu Maríu Jakobsdóttur.

„Mjög hressandi, mjög skelfileg og bara hræðilega óþægileg“
Forsýning á kvikmyndinni Villibráð fór fram í kvöld í Smárabíói. Fréttakona okkar, Elísabet Inga Sigurðardóttir tók leikara og leikstjóra myndarinnar tali rétt fyrir forsýningu fyrr í kvöld.

Aukinn áhugi á norrænu sjónvarpsefni en snarpar verðhækkanir mikil áskorun
Framleiðslufyrirtækið Glassriver, sem meðal annars hefur framleitt Venjulegt fólk og Svörtu sanda, vinnur verkefni nokkur ár fram í tímann. Það gerir til dæmis kostnaðar- og fjármögnunaráætlanir fyrir sjónvarpsverkefni eitt til fjögur ár fram tímann. Þess vegna hafa snarpar verðhækkanir á árinu verið virkilega mikil áskorun. Þetta segir Andri Ómarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

Villi Neto í The Witcher: „Ég er þarna í hlutverki durgslegs álfs“
Leikaranum Vilhelm Neto bregður fyrir í glænýrri seríu af þáttaseríunni vinsælu The Witcher. Þættirnir voru að stórum hluta teknir upp hér á landi á Djúpavogi og Berufirði meðal annars. Villi segir að um stærsta verkefni á hans ferli sé að ræða.

„Það er allt í einu orðið gæðastimpill að vera Íslendingur“
„Ég er farin að finna núna hvað Íslendingatengslin eru mikil í kvikmyndageiranum erlendis. Þar sem það er orðið þekkt að það að ráða Íslending í vinnu þýðir að þú ert að fá góðan starfskraft. Sem skilar alltaf einverju nýju,“ segir Árni Filippuson kvikmyndatökumaður með meiru.

Aníta Briem tilnefnd fyrir handritið á Svo lengi sem við lifum
Aníta Briem hefur verið tilnefnd til Norrænu sjónvarpshandritaverðlaunanna fyrir handritaskrif á þáttaseríunni Svo lengi sem við lifum/As Long As We Live. Verðlaunin verða veitt í sjöunda sinn á Gautaborgarhátíðinni í febrúar.

Nýtt sýnishorn úr Napóleonskjölunum: „Leyndarmál sem getur breytt gangi sögunnar“
Út er komin nýtt sýnishorn úr íslensku kvikmyndinni Napóleonsskjölin. Myndin verður frumsýnd hér á landi í lok janúar á næsta ári.

Fimmtán vilja verða forstöðumenn Kvikmyndamiðstöðvar
Pálmi Guðmundsson og Gísli Snær Erlingsson eru meðal þeirra sem sækja um stöðu forstöðumanns Kvikmyndastöðvar.

Íslandsvinir ársins 2022: Rómantík í lóninu, spenna á Suðurnesi og heimsókn í Icelandverse
Ferðaþjónustan komst skrefi nær því að komast í eðlilegt horf í ár eftir harðar samkomu- og ferðatakmarkanir árin 2020 og 2021. Öllum takmörkunum var aflétt hér á landi í febrúar og streymdu ferðamenn til landsins, þar á meðal fræga fólkið. Íslensk náttúra virðist áfram vera helsta aðdráttaraflið.

Þorvaldur Davíð valinn í Shooting Stars hópinn fyrir 2023
Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefur verið valinn í Shooting Stars hópinn árið 2023. Á hverju ári velja samtökin European Film Promotion (EFP) tíu unga og efnilega leikara og leikkonur.

Áður óséð efni frá gerð Leynilöggu
Kvikmyndin Leynilögga er tilnefnd sem besta gamanmyndin á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum sem fram fara í Hörpu í kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk kvikmynd er tilnefnd í þessum flokki.

Íslensku tröllin í aðalhlutverki í nýrri ævintýramynd
Í nýrri stiklu fyrir fjölskyldu- og ævintýramyndina Jólamóðir eru kynntir til leiks landsþekkir karakterar og þjóðargersemi, íslensku tröllin. Um leikstjórn sá hinn 27 ára gamli Jakobs Hákonarsonar, sem spreytir sig á stóra tjaldinu í fyrsta skiptið.

Ganga gapandi inn í Eldborg
Sjö hundruð erlendir gestir eru væntanlegir til landsins í tengslum við Evrópsku kvikmyndaverðlaunin í Hörpu annað kvöld. Leikstjóri einnar vinsælustu kvikmyndar ársins og leikari úr Game of Thrones eru á meðal alþjóðlegra stórstjarna sem verða viðstaddar. Listrænn stjórnandi segir áhorfendur mega eiga von á óvæntum uppákomum.

Mætir í brúðkaupsfötunum og vonast til að hitta Javier Bardem í Hörpu
Kvikmyndin Leynilögga er tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem afhent verða í Hörpu á laugardag. Evrópsku kvikmyndaverðlaunin eru þekktustu og virtustu verðlaunin sem veitt eru fyrir evrópskar kvikmyndir og eru veitt af Evrópsku kvikmyndaakademíunni.

Húrra fyrir evrópskri kvikmyndagerð!
Það er mikið fagnaðarefni að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin séu haldin á Íslandi í ár og ástæða er til að hrósa stjórnvöldum fyrir að leggja í þá vinnu og fjármögnun. Verðlaunin eru stórviðburður og verða afhent, eins og kunnugt er, í Hörpu næsta laugardag að viðstöddu stórskotaliði evrópskrar kvikmyndaframleiðslu. Sýnt verður frá verðlaunaafhendingunni í beinni útsendingu á RÚV og um alla Evrópu.

Skynsamlegt og gaman að gefa þjóðinni gjöf
Kvikmyndagerðarmaðurinn Þráinn Bertelsson afhenti í dag íslensku þjóðinni allar kvikmyndir sínar að gjöf við hátíðlega athöfn í Bíó Paradís.

Á ferð með mömmu vinnur aðalverðlaun á Pöff
Íslenska kvikmyndin Á ferð með mömmu hlaut í kvöld aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar Tallinn Black Nights Film Festival, eða Pöff, í Eistlandi. Kvikmyndahátíðin er ein sú stærsta í Austur-Evrópu.

Á ferð með mömmu heimsfrumsýnd í Tallinn
Kvikmynd Hilmars Oddssonar, Á ferð með mömmu, var heimsfrumsýnd kvikmyndahátíðinni Tallinn Black Nights Film Festival (PÖFF) í Eistlandi. Myndin tekur þátt í aðalkeppni hátíðarinnar í ár.

Byrjaðir að vinna að Leynilöggu 2
Leynilögga 2 gæti orðið jólamynd ársins 2024. Aðstandendur myndarinnar hafa sest niður og hafið vinnslu á verkefninu.

Drög lögð að framhaldi Verbúðarinnar
Leikhópurinn Vesturport er að hefjasta handa við handritsskrif að framhaldi sjónvarpsþáttanna Verbúðinni.

Fullt hús á frumsýningunni í Tallinn og fjórar stjörnur í hús
Kvikmyndin Svar við bréfi Helgu eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur var frumsýnd með pompi og pragt á laugardag á PÖFF, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tallinn. Fullt hús var á sýningunni.

Hamingjubúbblur og Ítalía: „Ég segi bara sí sí við öllu“
„Ég segi bara sí sí við öllu, flóknara þarf það ekki að vera,“ segir Rakel Garðarsdóttir athafnarkona og skellir uppúr. Rakel og eiginmaðurinn hennar, Björn Hlynur Haraldsson, fluttu til Flórens á Ítalíu í haust. Þaðan starfa þau bæði. Eða ferðast á milli eftir því hvað verkefni og vinna kalla á.

Fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni Napóleonsskjölin
Lífið á Vísi frumsýnir í dag fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni Napóleonsskjölin. Myndin er byggð á samnefndri metsölubók eftir Arnald Indriðason og verður frumsýnd í lok janúar á næsta ári.

Mikið líf í Gufunesinu þar sem True Detective og Snerting eru tekin upp
Eitt stærsta kvikmyndaver Evrópu, sem staðsett er í Gufunesinu í Reykjavík, er töluvert aðdráttarafl fyrir erlendar framleiðslur að sögn leikstjóra og eiganda þess sem segist viss um að kvikmyndaiðnaðurinn geti verið ein af stoðgreinum landsins. Gríðarlegt umfang er á svæðinu þar sem þættirnir True detective eru teknir upp.