Ávarp Bidens: „Þú getur ekki elskað nágranna þinn bara þegar þið eruð sammála“ „Í rúm tvö hundruð ár hafa Bandaríkin staðið í mikilfenglegustu stjálfstjórnartilraun í alheimssögunni. Það er ekki ýkja það er staðreynd. Þar kýs fólk og velur sér sína eigin leiðtoga á friðsamlegan hátt. Í lýðræði nær vilji fólksins alltaf fram,“ sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti þegar hann ávarpaði þjóð sína í dag. Erlent 7.11.2024 17:22
Harris búin að hringja í Trump og undirbýr ávarp Kamala Harris forsetaframbjóðandi demókrata, sem laut í lægra haldi gegn Donald Trump frambjóðanda repúblikana, er búin að ræða við þann síðarnefnda og játa ósigur. Hún sleppti því að ávarpa stuðningsmenn sína í nótt en hyggst gera það síðar í kvöld. Erlent 6.11.2024 19:11
Donald Trump forseti á nýjan leik Donald Trump verður að öllum líkindum aftur forseti Bandaríkjanna. Fjölmiðlar vestanhafs hafa lýst yfir sigri hans í sveifluríkinu Pennsylvaníu og þar með í forsetakosningunum öllum. Án sigurs í Pennsylvaínu á Kamala Harris ekki leið til að tryggja sér þá 270 kjörmenn sem þarf til að vinna í kosningunum. Erlent 6.11.2024 07:17
Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Ísraelski herinn sagði íbúum 25 bæja og þorpa í sunnanverðu Líbanon í dag að yfirgefa heimili sín. Byggðirnar eru norður af Litani-á en hún markar svæði sem átti að vera nokkurs konar hlífðarsvæði samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2006 og þykir yfirlýsingin til marks um mögulega útvíkkun innrásar Ísraela í Líbanon. Erlent 3. október 2024 16:18
Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að hann væri ekki hlynntur því að Ísraelar gerðu loftárásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Ísraelar eru sagðir íhuga slíkar árásir eftir að íranski herinn skaut um tvö hundruð skotflaugum að Ísrael á þriðjudaginn. Erlent 3. október 2024 12:02
Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Donald Trump heimsótti í gær bæinn Valdosta í Georgíuríki en bærinn er sem rústir einar eftir að fellibylurinn Helena gekk þar yfir. Erlent 1. október 2024 07:24
Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að með drápinu á Hassan Nasrallah hafi Ísrael verið að framfylgja réttlætinu fyrir hönd fórnarlamba hans. Ísrael sé í fullum rétti á að verja sig gegn Hezbollah, Hamas, Hútum í Jemen og öðrum hryðjuverkasamtökum sem fjármögnuð eru af Íran. Erlent 28. september 2024 19:52
Sendir Patriot, svifsprengjur og skotfæri til Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í dag umfangsmikla hernaðaraðstoð til Úkraínu og sagði hann að stuðningurinn ætti að hjálpa Úkraínu að „vinna“ stríðið gegn Rússum. Hann mun seinna í dag fá Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, í heimsókn til Hvíta hússins. Erlent 26. september 2024 13:18
Senda svifsprengjur fyrir F-16 Yfirvöld í Bandaríkjunum íhuga að senda Úkraínumönnum nýjar svifsprengjur sem hægt er að varpa með F-16 orrustuþotum, sem Úkraínumenn hafa þegar fengið. Enn er verið að leggja lokahönd á næsta hergagnapakka sem Bandaríkjamenn ætla að senda en hann á að vera metinn á um 375 milljónir dala. Erlent 21. september 2024 14:55
Svanhildur afhenti Biden trúnaðarbréf Svanhildur Hólm Valsdóttir sendiherra afhenti Joseph R. Biden Bandaríkjaforseta trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Bandaríkjunum á miðvikudag. Innlent 20. september 2024 16:11
Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Þingmenn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykktu í dag frumvarp um að Lífvarðaþjónusta Bandaríkjanna (e. Secret Service) eigi að auka gæslu með forsetaframbjóðendum til jafns við þá gæslu sem sitjandi forseti fær. Erlent 20. september 2024 16:07
Rýnt í kannanirnar: Hnífjafnt hjá Harris og Trump Frá því Kamala Harris tók við tilnefningu Demókrataflokksins til forsetakosninganna í nóvember hafa orðið töluverðar breytingar á fylgi frambjóðanda. Joe Biden, núverandi forseti og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, var ekki í góðri stöðu gegn Trump en myndin hefur breyst. Erlent 9. september 2024 15:17
Hunter Biden breytir afstöðu í skattsvikamáli Hunter Biden, sonur Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, ætlar að breyta afstöðu sinni til sakarefnis í skattsvikamáli gegn honum í dag. Hann hafði áður lýst yfir sakleysi sínu og heldur því í raun áfram en segist ætla að gangast við þeirri refsingu sem dómarinn telur að hann eigi að hljóta. Erlent 5. september 2024 16:45
Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Mark Zuckerberg forstjóri Meta segist sjá eftir því að hafa látið undan þrýstingi ríkisstjórnar Joe Biden um að ritskoða upplýsingar á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram. Efnið sem hann var beðinn um að fjarlægja voru það sem stjórnvöld kölluðu misvísandi upplýsingar um ýmislegt tengt Covid-19, og fréttir um upplýsingar á fartölvu Hunter Biden, sonar Joe Biden Bandaríkjaforseta. Viðskipti erlent 27. ágúst 2024 18:47
„Ég gaf ykkur mitt besta“ „Ég gerði mörg mistök á ferli mínum en ég gaf ykkur mitt besta,“ sagði Joe Biden Bandaríkjaforseti þegar hann steig á svið á landsþingi Demókrataflokksins í gærkvöldi. Erlent 20. ágúst 2024 07:05
Leggja loks fram skýrslu sína um meint brot Biden Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings lögðu loks fram skýrslu með niðurstöðum rannsóknar sinnar á því sem þeir kalla embættisbrot Joes Biden Bandaríkjaforseta. Óljóst er hvort skýrslan leiði til þess að þeir kæri Biden formlega fyrir embættisbrot. Erlent 19. ágúst 2024 15:38
Dró framboðið til baka til að forðast innanflokkserjur Joe Biden Bandaríkjaforseti telur að keppnin milli sín og Donalds Trump hefði ekki ráðist fyrr en á lokasprettinum hefði hann haldið áfram í framboði. Hann segist hafa dregið sig í hlé til þess að innanflokkserjur um framboð sitt skemmdu ekki fyrir demókrötum í kosningunum. Erlent 12. ágúst 2024 08:52
Er óviss um friðsamleg forsetaskipti ef Trump tapar Joe Biden Bandaríkjaforseti segist alls ekki viss um að forsetaskiptin muni fara friðsamlega fram ef Donald Trump tapar í forsetakosningunum vestanhafs. Erlent 8. ágúst 2024 07:06
Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Æviskipanir hæstaréttardómara heyra sögunni til og dómarar þurfa að starfa eftir siðareglum nái tillögur Joe Biden Bandaríkjaforseta fram að ganga. Fráfarandi forsetinn vill einnig breyta stjórnarskrá til þess að bregðast við nýlegum dómi um friðhelgi forseta. Erlent 29. júlí 2024 10:52
„Það er svolítill vælukjóatónn í honum“ Borgarfulltrúi hefur áhyggjur af því að Joe Biden, Bandaríkjaforseti hafi ekki þrek til að klára síðustu mánuðina í embætti, svo veiklulegur hafi hann verið í ávarpi sínu til þjóðarinnar í gær. Innlent 25. júlí 2024 15:07
Segir persónulegan metnað ekki mega standa í vegi fyrir lýðræðinu Joe Biden Bandaríkjaforseti segist ætla að klára kjörtímabil sitt. Hins vegar væri komin tími til að ný og yngri kynslóð tæki við keflinu af honum. Erlent 24. júlí 2024 23:30
Ávarpar þjóðina á morgun Joe Biden Bandaríkjaforseti mun ávarpa Bandaríkjamenn frá Hvíta húsinu annað kvöld klukkan átta að staðartíma, á miðnætti á íslenskum. Forsetinn hefur ekki sést síðan greint var frá því 17. júlí að hann hefði greinst með Covid-19. Erlent 23. júlí 2024 16:04
Trump hafi „misst kúlið“ í kjölfar ákvörðunar Bidens Sagan mun fara mjúkum höndum um Joe Biden og ákvörðun hans um að hætta við að sækjast eftir endurkjöri, að mati sérfræðinga um bandarísk stjórnmál. Kamala Harris varaforseti er langlíklegust til að taka við keflinu af forsetanum, en hún mun eiga á brattann að sækja gegn Trump. Erlent 22. júlí 2024 21:46
Þekkir Kamölu Harris: „Ég held að hún eigi eftir að rassskella hann nokkrum sinnum“ Margrét Hrafnsdóttir, mikil áhugakona um bandarísk stjórnmál, þekkir Kamölu Harris, varaforseta Bandaríkjanna og líklegt forsetaefni Demókrataflokksins. Hún hefur mikla trú á sinni konu í baráttunni við Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og frambjóðanda Repúblikana. Erlent 22. júlí 2024 18:46