Tækni

Erfið staða hjá Netflix
Bandaríska streymisveitan Netflix birti í fyrrinótt fjórðungsskýrslu sína og hafa tæknimiðlar vestan hafs í greiningum sínum sagt hana sýna svarta, eða að minnsta kosti gráa, stöðu hjá fyrirtækinu.

Vill að FBI rannsaki FaceApp
Leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings, ChucK Schumer, fer fram á að bandarísk yfirvöld rannsaki smáforritið FaceApp sem tröllríður nú öllum samfélagsmiðlum.

Instagram prófar að fela „lækfjölda“
Samfélagsmiðillinn Instagram mun hefja nýja tilraun í því skyni að sporna við félagslegri pressu sem margir notendur segjast finna fyrir á miðlinum.

Musk borar inn í heila
NeuraLink, fyrirtæki í eigu Elons Musk, kynnti afrakstur vinnu sinnar að því að tengja mannsheilann við tölvur og gervigreind. Óttast komandi yfirburði gervigreindar og vilja skapa ofurgreind með samlífi manns og gervigreindar.

Nýir eigendur að Opnum kerfum
Sjóðurinn MF1, sem er í eigu lífeyrissjóða og annarra fagfjárfesta, hefur eignast ríflega 77 prósenta hlut í Opnum kerfum í kjölfar 430 milljóna króna hlutafjáraukningar upplýsingatæknifyrirtækisins.

Skaginn hagnast um 400 milljónir
Hátæknifyrirtækið Skaginn, sem þróar, framleiðir og selur tækjabúnað fyrir matvælaiðnaðinn, hagnaðist um 397 milljónir króna á síðasta ári en til samanburðar var hagnaður fyrirtækisins 340 milljónir á árinu 2017.

Vélræn þekkingarsköpun
Pælum aðeins í hugtakinu vélræn þekking.

Standa vörð um Huawei-bann
Öldungadeildarþingmenn úr flokkum bæði Demókrata og Repúblikana í Bandaríkjunum lögðu í gær fram frumvarp sem myndi meina ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta að heimila viðskipti við kínverska tæknirisann Huawei án samþykkis þings.

Mars-jeppi prófaður á hálendi Íslands
Rannsóknarbúnaður sem notaður verður á Mars er til prófunar á hálendi Íslands. Tilgangurinn er að prófa vél- og hugbúnað fyrir svokallaðan Mars-jeppa sem verður notaður í leiðangri til reikistjörnunnar á næsta ári.

Fjórða byltingin
Flestir hafa heyrt af þeim breytingum sem eru í vændum með fjórðu iðnbyltingunni svokölluðu.

Svifbretti stal senunni á Þjóðhátíðardegi Frakka
Þjóðhátíðardagur Frakka var haldinn hátíðlegur í dag með árlegri hersýningu á Champs-Élyssées.

Undirbúa Marsleiðangur NASA undir Langjökli
Bróðir Elizu Reid forsetafrúar stýrir nú prófunum á gervigreindarhugbúnaði sem gæti nýst fyrirhuguðum könnunarleiðangri til Mars.

Evrópsk eldflaug hrapaði í Atlantshafið
Farmur hennar var hergervihnöttur frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þetta er í fyrsta skipti sem evrópsk Vega-eldflaug bregst.

Meniga opnar skrifstofur á Spáni og Singapúr
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Meniga hefur opnað skrifstofur í Singapore og Barcelona.

Sýn kaupir Endor
Sýn hefur gengið frá samkomulagi um kaup á Endor með fyrirvörum svo sem um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar og samþykki eftirlitsaðila. Kaupin verða væntanlega frágengin í ágúst 2019, þegar áreiðanleikakönnun lýkur.

Hannaði kolefnisjöfnunarreiknivél til að losna við flugviskubit
Íslenskur doktorsnemi í tölvunarfræði hefur gert forrit sem reiknar út hve mörgum trjám ferðalangar þurfa að planta til að kolefnisjafna flugferðir sínar.

Hönnuður MacBook, AirPods og iPhone hættir hjá Apple
Sir Jony Ive, maðurinn á bakvið hönnunina á helstu vörum tæknirisans Apple hefur ákveðið að stíga til hliðar og einbeita sér að öðrum verkefnum en Apple.

Losa sig við áreitisvörnina til að fjölga körlum
Aðstandendur íslenska stefnumótaforritsins The One telja að upphafleg útgáfa forritsins hafi verið of stór hindrun fyrir karlmenn.

Segir að engin gögn bendi til afskipta Rússa
Engin sönnunargögn benda til þess að utanaðkomandi aðilar á borð við rússnesk stjórnvöld hafi nýtt sér samfélagsmiðilinn Facebook til þess að hafa óeðlileg afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu Breta um útgöngu úr Evrópusambandinu sumarið 2016.

Upplýsingar bætast við titilinn
Gunnlaugur Th. Einarsson hefur verið ráðinn upplýsingatæknistjóri Origo. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Tölvutek hættir rekstri og lokar verslunum sínum
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu þar sem segir að lokunina megi rekja til "óviðráðanlegra ástæðna“.

Hætta sölu DVD-diska
Frá opnun hefur ELKO selt tæpar tvær milljónir DVD-diska.

Áherslan ekki á skyndikynni í íslenska appinu The One
The One er nýtt íslenskt stefnumóta app þar sem konur ráða því hvaða karlmenn fá aðgang. Makamál hitti stofnendur The One og fengu að heyra meira um appið.

Brúðkaupsljósmyndari hertogahjónanna varð fyrir barðinu á tölvuþrjótum
Ljósmyndarinn Alexi Lubomirski varð fyrir tölvuárás nú á dögunum.

Lönduðu tugmilljóna samningi við danskt sveitarfélag
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið MainManager hefur gert samning við sveitarfélagið Árósa í Danmörku.

Samruni Advania og Wise úr sögunni
Advania hefur hætt við áður tilkynnt kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Wise lausnum vegna afstöðu Samkeppniseftirlitsins til kaupanna. Ekkert verður af samruna fyrirtækjanna tveggja.

Tvær tölvuárásir gerðar á heimasíðu Isavia í dag
Að sögn Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia, er tímasetningin athyglisverð en um var að ræða svokallaða ddos árás.

Fjarskiptarisar veðja á afþreyingu
Fjarskiptafyrirtæki víða um heim hafa byggt afþreyingu ofan á innviði sína til að sporna við minnkandi vægi farsímaþjónustu. Yfirvöld í Bandaríkjunum og Evrópu nálgast markaðinn með ólíkum hætti.

iTunes kveður eftir átján ára samfylgd
Apple tilkynnti á mánudag að tónlistarforritinu iTunes yrði skipt út fyrir þrjú ný forrit.
