Stj.mál

Fréttamynd

Alfreð kallar Perluna hringekju

Ungir sjálfstæðismenn færðu Alfreð Þorsteinssyni, formanni stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur, Monopoly spilið að gjöf í morgun. Þeir segjast  hafa gert það til að mótmæla taumlausri eyðslu hans á kostnað borgarbúa. Alfreð endursendi hins vegar spilið skömmu síðar og hvatti gefendurna til að spila það við Davíð Oddsson í „hringekjunni í Öskjuhlíð“.

Innlent
Fréttamynd

Ríkisstjórn leysi byggðavanda

Hátt í 140 manns hefur verið sagt upp eða verður sagt upp á næstunni hjá fjórum fyrirtækjum á landsbyggðinni. Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, telur ríkisstjórnina þurfa að finna lausnir til að viðhalda byggð í landi.

Innlent
Fréttamynd

Ósáttur við Orkuveitu

Oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur segist ósáttur við þátttöku Orkuveitu Reykjavíkur í uppbyggingu á frístundabyggð við Úlfljótsvatn.

Innlent
Fréttamynd

Undrandi á Deep Throat

Blaðamenn <em>Washington Post</em>, sem áttu einna stærstan þátt í að fletta ofan af Watergate-hneykslinu, segjast enn þann dag í dag ekki vita hvers vegna Mark Felt, starfsmaður bandarísku alríkislögreglunnar, hafi ákveðið að veita þeim upplýsingar.

Erlent
Fréttamynd

Halldór skoðar skoska þingið

Halldór Blöndal, forseti Alþingis, er nú í heimsókn í Skotlandi í boði skoska þingforsetans til að kynna sér starfshætti skoska þingsins. Með þingforseta í för eru þrír þingmenn og forstöðumaður þingfundasviðs skrifstofu Alþingis. Sendinefndin mun eiga fundi með George Reid, forseta skoska þingsins, hitta fulltrúa frumkvöðla- og menningarnefndar þingsins og umhverfis- og landsbyggðarmálanefndar þess.

Innlent
Fréttamynd

Eyjamenn hafa tapað milljarði

Þegar dagbátar voru settir undir krókaaflamark og Alþingi samþykkti línuívilnun voru aflaheimildir að andvirði um eins milljarðs króna færðar með handafli frá Vestmannaeyjum. Sindri Viðarsson útskriftarnemi bendir á þetta í lokaritgerð sinni frá sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Skrifa ríkisstjóra vegna Arons

RJF-hópurinn hefur skrifað ríkisstjóranum í Texas bréf til að knýja á um lausn Arons Pálma Ágústssonar úr haldi í Texas. Bréfinu til Ricks Perrys ríkisstjóra fylgir bænabréf frá biskupi Íslands þar sem fram kemur að velferð og frelsi Arons Pálma hafi verið bænarefni í kirkjum landsins og verði þar til hann verður látinn laus.

Innlent
Fréttamynd

Vilja rannsókn á bankasölu

Frjálslyndi flokkurinn krefst ítarlegrar opinberrar rannsóknar einkavæðingu bankanna. Þetta kemur fram í kjölfar umfjöllunar <em>Fréttablaðsins</em> um málið. Í yfirlýsingu frá flokknum segir að nú hafi verið upplýst að Landsbankinn hafi lánað vinum ráðamanna fé til kaupa bankanna og að forsætisráðherra hafi stýrt sölu Búnaðarbankans og VÍS. Þetta séu spilltir stjórnarhættir og þá verði að leggja af.

Innlent
Fréttamynd

Góð störf tapast vegna krónunnar

Sveinn Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir jafn mikla ástæðu til að hafa áhyggjur af því að íslensk fyrirtæki kjósi nú að stofna til reksturs erlendis og því að fyrirtæki segi upp fólki hérlendis.

Innlent
Fréttamynd

Evrópulestin farin út af sporinu

Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslnanna í Frakklandi og Hollandi boða verulegt bakslag í samrunaferlið í Evrópu. Framundan er nákvæm naflaskoðun og á meðan verður sambandið sett í hlutlausan gír.

Erlent
Fréttamynd

Varnarsamningurinn ræddur í júlí

Davíð Oddsson utanríkisráðherra segist eiga von á að viðræður um varnarsamninginn hefjist í fyrri hluta júlímánaðar. Hann telur áhugaleysi Bandaríkjamanna ekki um að kenna að nokkur dráttur hafi orðið á viðræðunum heldur stóru og svifaseinu kerfi þar ytra.

Innlent
Fréttamynd

Frjálslyndir krefjast rannsóknar

Frjálslyndi flokkurinn krefst ítarlegrar, opinberrar rannsóknar á allri starfsemi Einkavæðingarnefndar og vill að mat verði lagt á gerðir hennar og ráðherranna.

Innlent
Fréttamynd

Endurvinnsla auk kjaftasagna

Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir ekkert undarlegt við það að hæsta tilboði í Landsbankann hafi ekki verið tekið á sínum tíma. Honum virðist umfjöllun <em>Fréttablaðsins</em> um einkavæðinguna vera endurvinnsla á gamalli skýrslu með nokkrum kjaftasögum sem lítið sé til í.

Innlent
Fréttamynd

Alfreð vill flugvöllinn burt

Alfreð Þorsteinsson, Framsóknarflokki og borgarfulltrúi R-listans, telur tímabært að höggva á hnútinn um Reykjavíkurflugvöll og Vatnsmýrina. Hann vill reisa nýjan flugvöll á uppfyllingu við svonefnd Löngusker í Skerjafirði og segir það ekki kostnaðarsamara en að reisa orkuver á Hellisheiði.

Innlent
Fréttamynd

Sharon og Abbas hittast 21. júní

Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, greindi frá því í dag að hann myndi funda með Mahmoud Abbas, leiðtoga Palestínu, 21. júní næstkomandi. Í tilkynningu frá forsetanum segir að ísraelskir og palestínskir embættismenn myndu hittast áður og ræða vopnhléið sem leiðtogarnir sömdu um á fyrsta fundi sínum í febrúar í Egyptalandi.

Erlent
Fréttamynd

Lýsa furðu á framkvæmd

"Reykjavíkurlistinn ætlar aldrei að læra. Fjárfestingar Orkuveitunnar í fjarskiptarekstri og risarækjueldi er búið að kosta borgarbúa milljarða og áfram er haldið," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, fulltrúi sjálfstæðismanna í stjórn Orkuveitunnar.

Innlent
Fréttamynd

Frístundabyggð samþykkt

Orkuveitan hyggst ekki byggja sumarhús við Úlfljótsvatn heldur aðeins annast skipulag jarðarinnar. Heimild er í hluthafasamkomulagi milli Orkuveitunnar og dótturfélags Íslandsbanka til að byggja og selja hús á jörðinni. Félögin stefna að frekari jarðakaupum.

Innlent
Fréttamynd

Alfreð vill fyrsta sæti Framsóknar

Búist er við því að framsóknarmenn velji fulltrúa sína á R-listann með flokksvali á kjördæmisþingi flokksins eða í prófkjöri en fleiri munu hallast að fyrrnefnda kostinum.

Innlent
Fréttamynd

Stefnir í að Hollendingar hafni

Skoðanakannanir benda til að hollenska þjóðin feti í fótspor þeirrar frönsku og hafni stjórnarskrá Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu í dag.

Erlent
Fréttamynd

Alfreð hafður undir

Sjálfstæðismenn í stjórn Orkuveitunnar lögðu fram bókun á stjórnarfundi fyrirtækisins í gær þar sem þeir lýstu furðu sinni á því að viljayfirlýsing um álver í Helguvík væri ekki á dagskrá fundarins.

Innlent
Fréttamynd

Kópavogur 50 þúsund manna borg

Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, tekur launalaust leyfi frá Alþingi á meðan hann gegnir bæjarstjórastarfinu. Framtíðarsýn nýja bæjarstjórans er að innan ekki langs tíma verði Kópavogur orðinn fimmtíu þúsund manna borg.

Innlent
Fréttamynd

Gunnar tekur við bæjarstjórastarfi

Gunnar I. Birgisson tók við bæjarstjóraembættinu í Kópavogi nú klukkan tíu . Hann tekur við lyklunum úr höndum Hansínu Björgvinsdóttir, fráfarandi bæjarstjóra. Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur gerðu með sér samkomulag í upphafi kjörtímabilsins að bæjarstjórastóllinn, sem framsóknarmenn hafa setið í um árabil, færðist yfir til sjálfstæðismanna.

Innlent
Fréttamynd

Framsókn í sögulegu lágmarki

Í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup hlaut Framsóknarflokkurinn lægstu útkomu sem mælst hefur í skoðanakönnunum Gallup, en hann mældist með 8,5% fylgi. Áður hafði hann neðst mælst í 10 prósentum, en flokkurinn fékk 18 prósent atkvæða í síðustu kosningum.

Innlent
Fréttamynd

Fagna uppbyggingu

"Ég fagna allri uppbyggingu í sveitarfélaginu," segir Gunnar Þorgeirsson, oddviti í Grímsnes- og Grafningshreppi, um fyrirhugaða frístundabyggð við Úlfljótsvatn.

Innlent
Fréttamynd

Bæjarstjóraskipti í Kópavogi

Hansína og Gunnar hafa stólaskipti því hún tekur nú við starfi formanns bæjarráðs Kópavogs en Gunnar hefur verið formaður ráðsins frá 1990.

Innlent
Fréttamynd

F-listi andvígur sölunni

Ólafur F. Magnússon, fulltrúi Frjálslynda flokksins í borgarstjórn, hefur lýst sig andvígan því að Reykjavíkurborg selji Heilsuverndarstöðina við Barónsstíg. Heilsuverndarstöðin hefur þjónað því hlutverki sem nafnið gefur til kynna í rúm 50 ár, allt frá árinu 1954.

Innlent
Fréttamynd

Styðja austurrísku leiðina

Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, hafa lýst yfir stuðningi við frumvarp Kolbrúnar Halldórsdóttur, þingmanns Vinstri - grænna, um austurrísku leiðina um viðbrögð lögreglu við heimilisofbeldi. Hún felur í sér breytingu á lögum um meðferð opinberra mála sem ætlað er að tryggja friðhelgi fórnarlambsins á eigin heimili með því að fjarlægja ofbeldismanninn af heimilinu í stað þess að fórnarlambið þurfi að flýja.

Innlent
Fréttamynd

Rökstuðningur ókominn

Stjórn Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi er að ganga frá rökstuðningi fyrir ráðningu Guðjóns Guðmundssonar, fyrrverandi þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í stöðu framkvæmdastjóra Dvalarheimilisins í byrjun mánaðarins. Guðjón var ráðinn með atkvæðum þriggja sjálfstæðismanna í stjórn dvalarheimilsins.

Innlent
Fréttamynd

Ráðherra óskar eftir upplýsingum

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hefur óskað eftir nákvæmum skriflegum upplýsingum frá breskum stjórnvöldum um atvikið sem átti sér stað þegar rúmlega áttatíu þúsund rúmlítrar af geislavirkum vökva láku úr skemmdu röri í endurvinnslustöðinni í Sellafield.

Innlent
Fréttamynd

Raffarin sagði af sér

Jean-Pierre Raffarin, forsætisráðherra Frakklands, hefur sagt af sér. Hann afhenti Jacques Chirac forseta afsögn sína fyrir stundu. Chirac hefur tilnefnt Dominique de Villepin sem eftirmann Raffarins en afsögn hans kemur í kjölfar þess að Frakkar kolfelldu stjórnarskrá Evrópusambandsins í fyrradag.

Erlent