Bandaríkin

Segir Biden „algjörlega vanhæfan“
Donald Trump forsetaframbjóðandi Repúblikana, segir að aldur Joe Bidens mótframbjóðanda hans, sé ekki vandamálið, heldur „algjört vanhæfi“ hans. Trump ávarpaði stuðningsmenn sína í Virgina-ríki í dag.

„Ég veit að ég er ekki ungur maður“
Joe Biden bandaríkjaforseti, hélt kraftmikla ræðu í dag, þar sem hann svaraði óbeint fyrir gagnrýni sem hann hefur sætt fyrir slaka frammistöðu í kappræðum forsetaefnanna í nótt.

„Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda
Joe Biden Bandaríkjaforseti beið afhroð í forsetakappræðum hans og Donalds Trump í nótt, að mati stjórnmálaskýrenda. Þegar er farið að heyrast ákall um að Demókratar velji sér nýjan frambjóðanda, sem íslenskur sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum telur ekki útilokað.

Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum
Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra og fyrrverandi ritstjóri fylgdist með kappræðunum vestan hafs sem fram fóru í nótt og honum er brugðið – vægast sagt.

Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna
Fyrri kappræður forsetaframbjóðendanna tveggja í Bandaríkjunum, Joe Biden, núverandi forseta, og Donald Trump, fyrrverandi forseta, fóru fram í gær. Í umfjöllun erlendra miðla er í flestum þeirra talað um að kappræðurnar hafi einkennst af persónulegum árásum og að Joe Biden hafi tekist illa upp með að verjast árásum og röngum staðhæfingum Trump um hin ýmsu mál.

Bein útsending: „Óvinsælustu frambjóðendur sem boðið hefur verið upp á“
Spennan magnast vestanhafs fyrir forsetakappræður Joes Biden og Donalds Trump sem fara fram í nótt.

Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt
Joe Biden og Donald Trump mætast í fyrri kappræðum sínum fyrir forsetakosningarnar í nótt. Prófessor í stjórnmálafræði segir á brattann að sækja fyrir Biden, sem þurfi að sanna sig fyrir kjósendum í kappræðum kvöldsins.

Fyrstu kappræðurnar í fjögur ár gætu skipt sköpum
Fyrstu kappræður forsetaefnanna tveggja, Joe Biden, Bandaríkjaforseta fyrir Demókrataflokkinn, og Donald Trump fyrrverandi forseta fyrir Repúblikanaflokkinn, í fjögur ár fara fram í kvöld á sjónvarpsstöðinni CNN. Kappræðurnar gætu skipt sköpum fyrir baráttu frambjóðendanna tveggja og ljóst er að mikið er í húfi.

Íslendingur áberandi í bandarískri raunveruleikaseríu
Ingi Hilmar Thorarensen fór eins langt út fyrir þægindarammann og hann gat hugsað sér þegar hann ákvað að kýla á það að verða hluti af risastórri bandarískri raunveruleikaseríu ásamt kærustu sinni Coronu.

Kjarnorkubréf Einsteins til sölu
Bréf sem Albert Einstein skrifaði til Franklíns D. Roosevelt Bandaríkjaforseta árið 1939 verður falt á uppboði. Í bréfinu hvatti Einstein forsetann til að hefja þróun á kjarnorkusprengjum þar sem að Þýskaland nasismans væri farið að gera það.

Söngvari Crazy Town látinn
Shifty Shellshock, söngvari hljómsveitarinnar Crazy Town, er látinn 49 ára að aldri. Söngvarinn, sem heitir Seth Binzer, lést í gær samkvæmt upplýsingum frá réttarmeinafræðingum í Los Angeles. Söngvarinn fannst látinn heima hjá sér en ekkert hefur verið gefið upp um dánarorsök.

Haldin Cher-legri aðdáun á Jökli og félögum
Íslenska hljómsveitin Kaleo hitti bandarísku stórstjörnuna Cher á dögunum á tónleikaferðalagi þeirra um Norður Ameríku. Hljómsveitin birti mynd af þeim með tónlistarkonunni á Instgram.

Gleðitíðindi að koma Assange loks úr fangelsi
Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, fagnar því í dag að Julian Assange, stofnandi Wikileaks sé frjáls maður eftir áralanga frelsissviptingu. Hann segir að ekki verði hægt að greina frá dómssáttinni í smáatriðum fyrr en á morgun.

Ekki vön því að tala um eiginmann sinn sem frjálsan mann
Stella Assange, eiginkona Julians Assange, segist í skýjunum með það eiginmaður hennar hafi gert dómsátt við dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Í samtali við breska ríkisútvarpið segist hún ekki vön því að tala um eiginmann sinn frjálsan í nútíð frekar en framtíð.

Assange farinn frá Bretlandi
Julian Assange, stofnandi Wikileaks, er farinn frá Bretlandi. Hann hefur náð samkomulagi við yfirvöld í Bandaríkjunum um að gangast undir dómsátt þar sem hann mun játa sök í njósnamáli á hendur honum, en ekki sitja í fangelsi.

Assange sagður játa sök til að ganga laus
Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, er sagður munu játa sök í sakamáli sem bandarísk stjórnvöld höfða á hendur honum. Það sé hluti af dómsátt sem dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna bjóði honum.

Táningur ákærður fyrir morð sjö ára drengs
Sextán ára drengur var ákærður fyrir morð í Chicago í Bandaríkjunum í gær. Hann er grunaður um að hafa orðið sjö ára dreng að bana með byssuskoti.

Fær ekki frest og hefur afplánun 1. júlí
Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum hefur hafnað umleitan Steve Bannon, sem eitt sinn var helsti bandamaður Donald Trump, um frest á afplánun.

Auðmaður gaf sjö milljarða í kosningasjóð Trump
Milljarðamæringurinn Timothy Mellon lét 50 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði sjö milljarða króna, renna í einn af kosningasjóðum Donald Trump daginn eftir að síðarnefndi var dæmdur fyrir skjalafals.

Rutte næsti framkvæmdastjóri NATO
Forsætisráðherra Hollands, Mark Rutte, verður næsti framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, NATO. Það varð ljóst í dag þegar eini andstæður Rutte, Klaus Iohannis, forseti Rúmeníu, dró framboð sitt til framkvæmdastjóra NATO til baka.

Travis Scott handtekinn í Miami
Rapparinn Travis Scott var handtekinn í Miami í nótt vegna drykkjuláta og rifrildis sem virðist hafa orðið til þess að rapparinn fór óleyfilega um borð í snekkju sem hann átti ekki. Rapparinn var handtekinn um klukkan 01:45 í nótt að staðartíma.

Boðorðin tíu upp á vegg í öllum skólastofum í Louisiana
Boðorðin tíu verða að vera til sýnis í öllum kennslustofum í opinberum skólum í Louisiana ríki í Bandaríkjunum. Það er allt frá leikskólum og til háskóla. Ríkisstjóri Louisiana, Jeff Landry, staðfesti lög þess efnis í dag.

Lýtalæknir handtekinn hálfu ári eftir að eiginkonan lést eftir aðgerð
Benjamin Jacob Brown, lýtalæknir í Flórída í Bandaríkjunum, hefur verið handtekinn vegna gruns um að hafa drepið eiginkonu sína af gáleysi í nóvember í fyrra.

Timberlake ákærður og handtökumyndin birt
Lögregluyfirvöld vestanhafs hafa birt myndina sem tekin var af tónlistarmanninum Justin Timberlake eftir að hann var handtekinn fyrir ölvunarakstur um helgina.

Telja lifrarbólgu E mögulega vera kynsjúkdóm
Teymi bandarískra vísindamanna telur að þeir hafi fundið nýjan kynsjúkdóm sem geti leitt til banvænnar lifrabilunar eða ófrjósemi ef fólk fær ekki viðeigandi meðferð. Rannsakendur við Ohio-háskóla í Bandaríkjunum fundu lifrarbólgu E í sæðisfrumusýnum svína sem þeir telja geta gefið til kynna að veiran smitist með kynlífi.

Meðlimir viðriðnir hatursglæpi og jafnvel grunaðir um morð
Lektor í lögreglufræðum segir ástæðu til að ætla að samtökin Norðurvígi geti falið í sér ógn við samfélagið hérlendis. Þekkt sé að meðlimir samtakanna hafi verið viðriðnir ýmsa hatursglæpi og séu jafnvel grunaðir um morð.

Justin Timberlake handtekinn
Söngvarinn og leikarinn Justin Timberlake var handtekinn fyrir ölvunarakstur snemma í morgun á Long Island eyjunni á austurströnd Bandaríkjanna.

Skilgreina Norðurvígi sem hryðjuverkasamtök
Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur formlega skilgreint nýnasistasamtökin Norðurvígi sem hryðjuverkasamtök.

Maðurinn sem uppgötvaði Bieber kveður bransann
Umboðsmaðurinn Scooter Braun hefur ákveðið að segja skilið við tónlistarbransann. Braun er maðurinn sem uppgötvaði Justin Bieber og bauð honum samning hjá útgáfufyrirtæki. Þá hefur hann unnið með mörgum stærstu stjörnum tónlistarbransans, þar á meðal Kanye West, Ariönu Grande, David Guetta og Black Eyed Peas.

Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi
Stjörnukokkurinn og Íslandsvinurinn Gordon Ramsay minnir fylgjendur sína á að hjóla ávallt með hjálm í nýrri færslu á X. Hjálmurinn hafi bjargað honum þegar hann lenti í hættulegu reiðhjólaslysi í Connecticut-ríki í Bandaríkjunum í vikunni.