
Félagsmál

Megi nýtt ár breyta vonum í veruleika
Það er svo margt sem mig langar að segja við áramót. Svo margt sem ég vildi að nýtt ár færi okkur, örþjóðinni sem hefur öll tækifæri í hendi sér til farsældar. En fyrst og fremst vildi ég að nýtt ár færi okkur betra og réttlátara samfélag.

Ljóst að einhverjir kvíða því að starfsemi færist í fyrra horf
Sólarhringsopnun er í neyðarskýlum heimilislausra nú þegar viðbragðsáætlun vegna veðurs er í gildi. Upplýsingafulltrúa á velferðarsviði Reykjavíkurborgar segir gesti ánægða með að hafa aðgengi að skýlunum allan sólarhringinn og ljóst að einhverjir kvíði því að starfsemin færist í sitt fyrra horf.

Frumvarp til laga um bætur til Hjalteyrarbarna í gátt
Dómsmálaráðherra hefur lagt fram í Samráðsgátt drög að frumvarpi til laga um sanngirnisbætur fyrir misgjörðir á vistheimilinu á Hjalteyri í Arnarneshreppi.

Neyðarskýli borgarinnar verða opin fram yfir áramót
Sólarhringsopnun verður í neyðarskýlunum að Grandagarði og á Lindargötu til og með 1. janúar.

Ekki bara jólaboð heldur félagsskapur fyrir hátíðarnar
Á fimmta hundrað sótti jólaboð Hjálpræðishersins sem fór fram í dag. Gestir sögðust þakklátir fyrir boðið, sem sé mikilvæg samvera fyrir marga sem finna fyrir einmanaleika yfir hátíðarnar.

Segir engan í áskrift að mataraðstoð
Formaður Fjölskylduhjálpar Íslands segir engan í áskrift að mataraðstoð í svari til manns sem gagnrýndi að samtökin myndu ekki aðstoða úkraínskar fjölskyldur á Selfossi frekar á árinu.

„Við getum talað um misskilning þegar þetta gerist bara einu sinni“
Stjórnarkona í Samtökum kvenna af erlendum uppruna á Íslandi telur augljóst að Fjölskylduhjálp á Reykjanesi hafi mismunað fólki og segir framkomu þeirra bæði ólöglega og viðbjóðslega. Samtökin krefjast þess að stjórn Fjölskylduhjálpar segi af sér og aðrir með manneskjulegri nálgun taki við.

Neitaði fjölskyldum frá Úkraínu um hjálp út árið
Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, neitar fjölskyldum frá Úkraínu um aðstoð út árið í tölvupóstsamskiptum við Íslending sem tengist fjölskyldunum fyrr í desember.

Halli blandar sér í Fjölskylduhjálparmálið
Haraldur Þorleifsson, frumkvöðull, hefur heitið því að millifæra tuttugu þúsund krónur inn á reikning fimmtíu innflytjenda á Íslandi sem eru hjálpar þurfi. Hann hvetur aðra til að gera slíkt hið sama.

Þvertekur fyrir mismunun og býður þingmanni Pírata að mæta
Sjálfboðaliði hjá Fjölskylduhjálp Íslands hafnar því alfarið að fólki sé mismunað eftir þjóðerni við úthlutun í Reykjanesbæ, líkt og skilja mátti af færslu sem birtist í gær. Hann segir þingmann Pírata sem gagnrýndi færsluna njóta forréttinda og spyr hvort hann hafi nokkurn tíma heimsótt Fjölskylduhjálp. Sjálfboðaliðinn sem birti færsluna hefur verið látinn fara.

Íslendingar fyrst og útlendingar með íslenskar kennitölur svo
Fjölskylduhjálp Íslands á Reykjanesi skipuleggur úthlutun sína þessa dagana. Til stóð að reyna að úthluta mataraðstoð í dag og áttu þá Íslendingar á umsækjendalistanum að ganga fyrir. Þingmaður segir um brot á stjórnarskrá að ræða.

Heimilislausir á Granda fengu snemmbúna jólagjöf á óveðurshelgi
Heimilislaus maður segir að jólin hafi komið snemma um helgina í neyðarskýlinu á Granda. Eftir að notendur þess sendu út neyðarkall hafi samfélagið tekið sig til og gefið mönnunum rúmar hundrað þúsund krónur, eitthvað sem þeir hafa ekki upplifað oft áður.

Nærri 25 þúsund fá eingreiðslu í tæka tíð fyrir jólin
Eingreiðsla til örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega er greidd út í dag. 24.900 manns hljóta eingreiðsluna. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Forsætisráðherra segir engar blekkingar varðandi barnabætur
Forsætisráðherra segir engum blekkingum hafa verið beitt í kynningu á hækkun barnabóta í tengslum við nýgerða kjarasamninga eins og þingmenn í stjórnarandstöðu haldi fram. Formaður Samfylkingarinnar segir muna þremur milljörðum á raunveruleikanum og þeim hækkunum sem ríkisstjórnin kynnti.

Barátta öryrkja skilar árangri: Eingreiðsla og hærra frítekjumark
Í fjárlagaumræðunni í fyrra var tekist harkalega á um greiðslur til öryrkja og þær groddalegu skerðingarreglur sem fólk með skerta starfsgetu býr við.

Neyðarskýli í Reykjavík verða opin á morgun
Neyðarskýlin í Reykjavík verða öll opin á morgun, föstudag. Neyðarskýlin eru þrjú, tvö fyrir karlmenn, við Grandagarð og á Lindargötu, og eitt fyrir konur, Konukot í Eskihlíð.

Eingreiðslan skipti miklu máli í ljósi hækkandi verðlags
Á fjórða tímanum í dag var eingreiðsla upp á 60.300 krónur til örorku og endurhæfingarlífeyrisþega samþykkt á Alþingi.

Áminntur fyrir að ræða um óheiðarleika í framsetningu Katrínar á barnabótum
Þingmaður Samfylkingar sakaði forsætisráðherra um óheiðarlega framsetningu á breytingum á barnabótum vegna kjarasamninga í ræðustól Alþingis í dag og var í kjölfarið beðinn um að gæta orða sinna. Þingmenn stjórnarandstöðunnar tóku áminninguna óstinnt upp og kölluðu eftir sérstökum umræðum um fundarstjórn forseta.

Fleiri fá barnabætur og húsnæðisbætur hækka
Stjórnvöld kynntu á blaðamannafundi á þriðja tímanum aðgerðir sem ráðist verður í vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Gerðar verða kerfisbreytingar á barnabótakerfinu og það einfaldað til muna. Húsnæðisbætur leigjenda hækka um 13,8% í upphafi næsta árs auk þess sem tekjuskerðingarmörk húsnæðisbóta hækka um 7,4%.

Inga grét á Alþingi er hún ræddi eingreiðslur til öryrkja og aldraðra
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, brast í grát er hún ræddi eingreiðslu til öryrkja á Alþingi í dag. Hún ræddi um þegar hún var á þeim stað að geta ekki haldið jól sjálf.

Íbúar í hjólhýsabyggð berjast fyrir varanlegri staðsetningu
Íbúar í hjólhýsabyggðinni í Laugardal berjast fyrir því að fá varanlega staðsetningu fyrir byggðina. Þau fá ekki að skrá lögheimili sitt og skora á borgaryfirvöld að finna langtímalausnir fyrir þá sem kjósa þetta búsetuúrræði.

Réttu megin við strikið
Við í Samfylkingunni sjáum, ólíkt ríkisstjórninni og stjórnarflokkunum, að nauðsynlegt er að huga sérstaklega að stöðu heimila þegar verðbólga er í sögulegu hámarki. Áhrifin á heimilisbókhaldið eru mest hjá millitekjuhópunum og fólki á lægstu laununum.

María segir upp sem forstjóri Sjúkratrygginga
María Heimisdóttir hefur sagt upp sem forstjóri Sjúkratrygginga Íslands. Hún segist ekki geta borið ábyrgð á rekstri stofnunarinnar þar sem hún sé vanfjármögnuð.

Mikilvægt fyrsta skref í heildarendurskoðun á örorkukerfinu
Fyrir þinginu liggur nú frumvarp félags og vinnumarkaðsráðherra um lengingu á greiðslutímabili endurhæfingarlífeyris. Um er að ræða mikilvægt fyrsta skref í heildarendurskoðun á örorkukerfinu.

Ekki of seint að gera betur
Þann 10. nóvember sl. lagði ég fram breytingartillögu við frumvarp fjármálaráðherra til fjáraukalaga. Þar var lagt til að eingreiðsla til öryrkja yrði hækkuð úr 27.772 krónum skatta og skerðingalaust í 60.000 krónur.

Bein útsending: Málþing um komugjöld í heilbrigðisþjónustu
ÖBÍ réttindasamtök standa fyrir málþing um komugjöld í heilbrigðiskerfinu á Grand hótel klukkan 13 í dag.

Forseti Íslands greip spreybrúsann og stækkaði verkefnið um helming
„Ég var drullustressaður,“ sagði Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands á viðburði í Mjódd í dag. Þar var því fagnað að þrjú hundruð römpum hefur verið komið upp um landið í átaksverkefninu Römpum upp Ísland.

Bein útsending: Lúðrablástur og fyrirmenni við vígslu ramps númer þrjú hundruð
Römpum upp Ísland vígir ramp númer þrjú hundruð klukkan 11:30 í Mjóddinni. Verkefnið snýr að því að setja upp eitt þúsund rampa um allt land á fjórum árum. Sýnt verður beint frá athöfninni á Stöð 2 Vísi.

Eingreiðsla til öryrkja
Í því ástandi sem við höfum búið við undanfarin ár, glímu við covid-19 og nú verðbólgu sem herjar verst á þá sem minnst hafa, er sjálfsagt réttlæti að fötluðu fólki sé bættur skaðinn að því litla leiti sem skattlaus eingreiðsla að upphæð 60.000 kr. getur gert það.

Fjárhæð eingreiðslu til handa öryrkjum ákvörðuð í næstu viku
Eingreiðsla til handa örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum í desember verður um helmingi minni en hún var í fyrra samkvæmt fjáraukalögum eða rétt tæpar 28 þúsund krónur. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, formaður fjárlaganefndar, segir að þessi eingreiðsla hefði upphaflega komið til vegna COVID-19 en vegna verðbólgunnar hafi þótt skynsamlegt að leggja hana ekki alveg af. Ekki er búið að taka endanlega ákvörðun um fjárhæðina.