Hjólreiðar

Ekið á hjólreiðamann í miðborginni
Karlmaður um fimmtugt slasaðist þegar ekið var á hann á horni Tryggvagötu og Geirsgötu í miðborg Reykjavíkur síðdegis í dag.

Komdu út að hjóla...
Í borginni eru margir staðir til að næra sál og líkama. Mörgum finnst gott að ganga, finna lyktina af náttúrunni og njóta útsýnis. Öðrum finnst skemmtilegra að hjóla, vera í síbreytilegu umhverfi innan borgarmarkanna, hjóla meðfram sjónum með vindinn í fangið, upplifa sólsetur með sjávarlykt eða horfa á borgina vakna í hversdagsleikann í upphafi vinnuviku.

Arna Sigríður fimmtánda í mark
Handahjólreiðakonan Arna Sigríður Albertsdóttir endaði í 15. sæti í götuhjólreiðum á Ólympíumótinu sem fer fram í Tókýó þessa dagana. Þetta var síðasta keppni Örnu Sigríðar á leikunum.

Arna Sigríður lauk keppni í ellefta sæti
Arna Sigríður Albertsdóttir, handhjólreiðakona, keppti í tímatöku í flokki H 1-3 í nótt á Ólympíumóti fatlaðra sem fram fer í Japan. Arna Sigríður lauk keppni í 11. sæti.

Hjól og hælisleitendur
Fyrir mörgum er reiðhjól ansi ómerkilegur hlutur. Undanfarin ár og áratugi hefur reiðhjólið hins vegar sótt mikið á sem ferðamáti, líkamsrækt og tómstundaiðkun. Búnaðurinn hefur líka orðið dýrari og betri; Nú má fá allt frá rafmagnshjólum og rafskútum yfir í kolefnistrefjagötuhjól.

„Þetta snýst svolítið um að pína sig áfram“
Arna Sigríður Albertsdóttir er á meðal þeirra íslensku íþróttamanna sem halda til Tókýó að keppa á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics. Hún mun keppa í handahjólreiðum á leikunum.

24 ára Ólympíufari fannst látin
Nýsjálenska hjólreiðakonan Olivia Podmore er látin en hún fannst á heimili sínu í gær. Örlög hennar eru mikið áfall fyrir alla í íþróttaheiminum á Nýja Sjálandi og víðar.

„Ég stend fyrir 82 milljónir flóttamanna og allar konur í Afghanistan“
Afganska hjólreiðakonan Masomah Ali Zada er á meðal 25 manns sem keppir fyrir lið flóttafólks á Ólympíuleikunum í Tókýó. Það er ekki aðeins mikilvægt fyrir hana persónulega, heldur einnig fyrir þúsundir kvenna um heim allan sem mega ekki einu sinni ferðast um á reiðhjóli.

Gat nú fagnað ÓL-gullinu sem hún hélt að hún hefði unnið um helgina
Hollenska hjólreiðakonan Annemiek van Vleuten varð Ólympíumeistari í brautarkeppni hjólreiðanna í Tókýó í nótt. Hún vann þar sín fyrstu gullverðlaun á leikunum en var þó ekki að fagna sigri í fyrsta sinn á þessum Ólympíuleikum.

Stærðfræðidoktor vann fyrsta ÓL-gull Austurríkis í hjólreiðum í meira en öld
Stærðfræðingar eru vanir að vinna einir að lausn sinna vandamála og einn af nýjum Ólympíumeisturunum í Tókýó vill enga hjálp frá þjálfurum eða öðrum sérfræðingum þegar hún stundar sína íþrótt. Hún þorir að vera öðruvísi og það skilaði henni sögulegu Ólympíugulli.

Gullinn mánudagur fyrir Breta
Mánudagurinn 26. júlí 2021 fer í hóp með bestu dögum Bretlands á Ólympíuleikunum því Bretar unnu þrenn gullverðlaun í dag.

Kópavogsbúar hjóla í nýju fjallahjólabrautina sína
Yfirvöld í Kópavogi fá það óþvegið á Facebook-síðu sinni en íbúar hafa aldrei fyrr séð eins marflata fjallahjólabraut og þeim er boðið uppá. Þeim ofbýður gersamlega.

Eldur í bifreið
Upp úr klukkan sex í gærkvöldi var tilkynnt um eld í bifreið í Háaleitis- og Bústaðahverfi. Slökkvilið réð niðurlögum eldsins.

Arna Sigríður sjötti keppandi Íslands í Tókýó
Handahjólreiðakonan Arna Sigríður Albertsdóttir verður sjötti fulltrúi Íslands á Ólympíumóti fatlaðra, Paralympics, sem fram fer í Tókýó dagana 24.ágúst - 5.september. Arna verður fyrst íslenskra kvenna til að keppa í hjólreiðum á Ólympíumóti fatlaðra.

Skiltakonan hugsaði ekki um neitt nema að koma sér í sjónvarpið
Frakklandshjólreiðarnar, Tour de France, eru í fullum gangi en hegðun eins áhorfandans stal svo sannarlega fyrirsögnunum á fyrstu dögum keppninnar.

Nýtt met í hjólahvísli
Allt er gott sem endar vel, segir Hjólahvíslarinn, eða Bjartmar Leósson, sem endurheimti í dag hjól sitt sem hafði verið stolið í nótt. Og þetta eru skilaboðin sem hann segist hafa verið að reyna að senda hjólaþjófum: Það eru augu alls staðar.

Konan sem setti Tour de France í uppnám handtekin
Þrítug frönsk kona sem olli meiriháttar árekstri í fyrsta áfanga Tour de France-hjólreiðakeppninnar um helgina gaf sig fram við lögreglu. Konan er nú í varðhaldi sökuð um að hafa valdið líkamstjóni og sett líf fólks í hættu af gáleysi.

Hjóli sjálfs Hjólahvíslarans stolið
Hjóli Bjartmars Leóssonar var stolið í nótt. Sá hvimleiði og því miður nokkuð algengi atburður sem hjólastuldur er væri varla fréttnæmur nema vegna þess að Bjartmar hefur í um tvö ár staðið í hálfgerðu stríði við hjólaþjófa borgarinnar. Svo þekktur er hann fyrir þá baráttu sína að flestir þekkja hann sem Hjólahvíslarann.

„Skilaðu hjólinu!“: Mættu fylktu liði að heimili manns sem hafði í hótunum
Bjartmar Leósson tók málin í eigin hendur á dögunum þegar hjólaþjófar voru farnir að hóta honum fyrir að sinna sínu starfi. Hjólahvíslarinn stendur í ströngu núna í því sem kallað hefur verið hjólaþjófnaðarfaraldri.

Leita áhorfanda sem olli stórum árekstri á Tour de France
Franska lögreglan leitar nú að kvenkyns áhorfanda sem olli meiriháttar árekstri fjölda keppenda í fyrsta áfanga Tour de France-hjólreiðakeppninnar í gær. Áhorfandinn hélt á skilti og hallaði sér í veg fyrir hjólreiðagarpana.

Hjólahvíslarinn hefur fengið nóg og boðar aðgerðir
Seinna í dag ætlar Bjartmar Leósson að láta til skara skríða gegn manni sem hann segir ótíndan hjólaþjóf. Hópur á hans vegum ætlar að banka uppá og beita hópefli.

Jake Catterall kominn í mark
Eini keppandinn í einstaklingsflokki Síminn Cyclathon er kominn í mark. Jake Catterall hjólaði á tímanum 64:08:00.

Team Cube fyrsta liðið í mark í Síminn Cyclothon
Team Cube var fyrsta liðið í mark í Síminn Cyclothon hjólreiðakeppninni. kl. 08:02 á tímanum 37:02:29. Team Ljósið voru aðrir í mark kl. 09:34 á tímanum 38:34:39.

Hjólaði 400 kílómetra með höndunum á sólarhring
Arnar Helgi Lárusson, sem er lamaður fyrir neðan brjóst lauk hjólaferð sinni nú í kvöld á Selfoss eftir að hafa hjólað með höndunum fjögur hundruð kílómetra leið á sólarhring með fram suðurströndinni.

Þeysist eftir Þjóðvegi 1 í hjólastól
Handahjólreiðamaðurinn Arnar Helgi Lárusson er á fleygiferð í áttina að lokamarki sínu að hjóla 400 km fyrir lok dags.

Ætlar að hjóla 400 kílómetra með höndunum
Handahjólreiðamaðurinn Arnar Helgi Lárusson hyggst hjóla 400 kílómetra á innan við sólarhring í næstu viku. Tilgangurinn með afrekinu er að vekja athygli á hreyfingu fyrir hreyfihamlaða og að safna fyrir fjórum rafmagnsfjallahjólum fyrir hreyfihamlaða.

„Ég nýt þess að hjóla með vindinn í bakið“
„Eftir að hafa legið bjargarlaus í sjúkrarúmi og ekki getað náð sambandi við nokkra manneskju en þó með heila hugsun allan tímann sem ég gat ekki tjáð þá hefur hugurinn þroskast og sýn mín á lífið breyst,“ segir Katrín Björk Guðjónsdóttir.

Blue Lagoon Challenge haldið í 25. skipti
Þann 12.júní næstkomandi klukkan16:00 verður blásið í lúðra og stórum hópi hjólreiðafólks hleypt af stað í eitt vinsælasta fjallahjólamót ársins, The Blue Lagoon Challenge en það er nú haldið í 25. sinn.

Vindur í Reykjavík snarminnkar og er á pari við Kaupmannahöfn
Meðalvindur í Reykjavík er á pari við vindinn í Kaupmannahöfn, eftir að hafa snarminnkað á undanfarinni hálfri öld. Það er engin tilviljun: Gróður og byggingar breyta öllu þar um.

Örugg á hjólinu
Hjólreiðafólki hefur fjölgað ört síðastliðin ár og njóta hjólreiðar sívaxandi vinsælda bæði sem íþrótt og samgöngumáti. Síminn Cyclothon verður haldið dagana 22. til 25. júní 2021 en fjöldi málefna hafa fengið góðan stuðning frá Cyclothon í gegnum árin.