
Líf Magneudóttir: Lítilmagnar samtímans
Það er ekki langt síðan Íslendingar þekktu neyðina mætavel. Fyrr á árum var börnum fátæklinga komið fyrir í þrælkun á þeim bæjum sem voru tilbúnir að taka við þeim fyrir lægstu meðgjöfina frá sveitinni. Niðursetningarnir eru ekki fjær okkur í tíma en svo að einhverjir þeirra kunna enn að vera á lífi, þó nánast allir af þeirra kynslóð séu gengnir á vit feðra sinna. Örlög þeirra réðust af fátækt - af því að heimili leystust upp, kannski vegna dauðsfalls, eða af því að foreldrarnir voru einhverra hluta vegna ekki færir um að sjá fyrir börnunum sínum. Niðursetningarnir áttu síðan að vera bændum þakklátir fyrir að fá þak yfir höfuðið, eitthvað að éta og starfa. Og nær okkur í tíma fann efnalítið fólk í húsnæðisvandræðum skjól í Kamp Knox og öðrum misjöfnum hermannabröggum. Margir muna líka eftir að hafa búið þar. Þeir sem yngri eru þekkja braggahverfin kannski helst af skrautlegu mannlífi í bókum Einars Kárasonar og bíómynd gerðri eftir þeim, svona dálítið eins og My Fair Lady eða Oliver, og jafn óraunverulegt og fjarlægt og þær sögur. Fúkkalyktin og rottugangurinn sitja kannski meira í minni þeirra sem ólust þar upp, eineltið, níðið og örvæntingin.
Við erum sem betur fer komin talsvert langt frá þessum aðstæðum hérna á Íslandi og upplifum þær vonandi aldrei framar. Ekkert barn á að þurfa að alast upp við slík kjör. En við verðum líka að horfast í augu við raunveruleikann, þó að það sé kannski skemmtilegra að láta sig dreyma um lundabjarg í Húsdýragarðinum og glæsilega golfvelli.
Nú er farið að ganga á sparifé gætnu fjölskyldnanna og bráðum verður séreignarsparnaðurinn uppurinn. Margir hafa misst vinnuna og ekki fundið aðra. Margir eiga sífellt erfiðara með að borga af lánum og standa í skilum og fjöldi fólks óttast að missa húsnæðið. Hvert á það að fara ef sá ótti verður að veruleika? Hvernig ætlum við að hjálpa fjölskyldunum svo að þær leysist ekki upp vegna ómegðar og bjargarleysis?
Þetta er ekki vinsælt umræðuefni í kosningabaráttu, ekki frekar en að misskipting í samfélaginu hefur aukist og heldur áfram að aukast ef ekkert er að gert. Við ættum að hafa áttað okkur á að blind einstaklingshyggja hefur komið okkur í ógöngur og við þurfum að snúa við blaðinu. Það er hluti af því að lifa og hrærast í samfélagi að taka sameiginlega ábyrgð. Fólkið sem mundi mætavel ástandið sem ég drap á hér að ofan barðist hörðum höndum við að koma upp velferðarkerfi til að tryggja að enginn þyrfti að þola sömu örlög og fátæklingar fyrri tíma. Um það velferðarkerfi og velferðarþjónustu þarf að standa dyggan vörð og koma í veg fyrir að bilið á milli fátækra og ríkra verði óbrúanlegt.
Fátækt er ekki sjarmerandi, söngelsk eða skemmtileg. Hún er óvættur sem við eigum ekki að þurfa að líða í okkar samfélagi.
Skoðun

Er Ísrael ennþá útvalin þjóð Guðs?
Ómar Torfason skrifar

Flokkurinn hans Gunnars Smára?
Guðbergur Egill Eyjólfsson skrifar

Raforkuverð: Stórnotendur og almenningur
Ingvar Júlíus Baldursson skrifar

Hætt við að hækka ekki skatta á almenning
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Skattafíkn í skjóli réttlætis: Tímavélin stillt á 2012
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Hver borgar brúsann?
Ingibjörg Isaksen skrifar

Hvers vegna berðu kross?
Hrafnhildur Sigurðardóttir skrifar

Þannig gerum við þetta?
Ísak Ernir Kristinsson skrifar

Stærsta framfaraskref í námsmati íslenskra barna í áratugi
Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar

Falleinkunn skólakerfis?
Helga Þórisdóttir skrifar

Þjónusta sem gleður – skilar sér beint í kassann
Margrét Reynisdóttir skrifar

Hvar er auðlindarentan?
Birta Karen Tryggvadóttir skrifar

Miðflokkurinn – Rödd skynseminnar í borginni
Ómar Már Jónsson skrifar

Virði barna og ungmenna
Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sættir þú þig við þetta?
Jón Pétur Zimsen skrifar

Alþingi gleymir aftur fötluðum börnum
Lúðvík Júlíusson skrifar

Lægri gjöld, fleiri tækifæri
Bragi Bjarnason skrifar

Tölum um stóra valdaframsalsmálið
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Litla landið sem kennir heiminum – Ísland og þróunarsamvinna í gegnum menntun GRÓ skólanna
Verena Karlsdóttir,Hreiðar Þór Valtýsson,Þór Heiðar Ásgeirsson skrifar

Öflugar varnir krefjast stöndugra fréttamiðla
Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar

Gott frumvarp, en hvað með verklagið?
Bogi Ragnarsson skrifar

Augnablikið
Magnús Jóhann Hjartarson skrifar

Það þarf ekki að biðjast afsökunar á því að segja satt
Þórður Snær Júlíusson skrifar

Lífeyrissjóðirnir og Íslandsbanki, hluthafafundur á mánudag
Bolli Héðinsson skrifar

„Þegar arkitektinn fer á flug“ - opinber umræða á villigötum
Eyrún Arnarsdóttir skrifar

Heilbrigðiskerfið þarf stjórnvöld með bein í nefinu
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Börn eru hvorki veiðigjöld né öryggis- og varnarmál
Grímur Atlason skrifar

Í vörn gegn sjálfum sér?
Ólafur Stephensen skrifar

Mig langar að byggja heim með frið og umlykja með ást
Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar