Erlent

Óttast um ör­lög far­þega eftir á­rekstur flug­vélar og þyrlu í Washington

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Mikill viðbúnaður er við ána en ef marka má erlenda miðla verður að teljast ólíklegt að nokkur finnist á lífi.
Mikill viðbúnaður er við ána en ef marka má erlenda miðla verður að teljast ólíklegt að nokkur finnist á lífi. Getty/Anadolu/Celal Gunes

Óttast er um örlög farþega og áhafnar flugvélar American Airlines sem féll í Potomac-ána nærri Reagan-alþjóðaflugvellinum fyrir utan Washington eftir árekstur við herþyrlu.

Alls voru 64 innanborðs.

Miklar aðgerðir standa yfir á vettvangi en enn sem komið er hefur enginn fundist á lífi. Um 300 manns koma að björgunarstörfunum en aðstæður eru erfiðar og vatnið í ánni ískalt.

Um er að ræða Bombardier CRJ700 farþegavél í innanlandsflugi sem var að koma frá Witchita í Kansas. Hún lenti á Sikorsky UH-60 Black Hawk þyrlu frá Fort Belvoir í Virginíu í aðfluginu að Reagan.

Öllum brottförum og lendingum á flugvellinum hefur verið frestað.

Leitað er úr lofti og úr bátum á ánni.AP/Alex Brandon

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tjáð sig um málið á Truth Social og segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir slysið og virðist telja sökina liggja hjá flugturninum og þyrluflugmanninum. „EKKI GOTT!!!“ segir forsetinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×