Innlent

Al­þjóð­legi hamingjudagurinn 2025: Hamingja, sam­kennd og Riddarar kær­leikans

Árni Sæberg skrifar
Halla Tómasdóttir forseti tekur þátt í svokölluðu arinspjalli.
Halla Tómasdóttir forseti tekur þátt í svokölluðu arinspjalli. Vísir/Vilhelm

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, veitir fyrsta spilastokknum sem tileinkaður er Riddurum kærleikans og Minningarsjóði Bryndísar Klöru viðtöku á málþingi á Alþjóðlega hamingjudaginn sem haldið er í Hátíðarsal Háskóla Íslands klukkan 13:00 þar sem yfirskriftin er: Kærleikur og samkennd– mikilvægi félagslegra tengsla fyrir hamingju og velsæld. Málþingið má sjá í beinni útsendingu hér á Vísi.

Á málþinginu verður farið yfir hvar Ísland er á listanum yfir hamingjusömustu þjóðir heims. Einnig munu forseti Íslands, Halla Tómasdóttir og dr. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri lýðheilsu hjá embætti landlæknis, eiga samtal um hamingju, samkennd og Riddara kærleikans. Þar að auki verða kynntar nýjar niðurstöður um líðan, tengsl og öryggi barna eftir fjárhagsstöðu. Við heyrum frá fulltrúa unga fólksins og lærum um félagslega töfra. Edda Björgvinsdóttir mun leiða hamingjudans og Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi Sjálfbærs Íslands, mætir með gítarinn og spilar undir fjöldasöng. Þá verða pallborðsumræður um karlmennsku og kærleik sem dr. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, stýrir.

Fundarstjóri er Elín Hirst.

Embætti landlæknis skipuleggur málþingið í samvinnu við Endurmenntun Háskóla Íslands og eru öll velkomin á meðan að húsrúm leyfir.

Beina útsendingu frá málþinginu má sjá hér að neðan:

Dagskrá:

  • 13:00 Opnunarávarp – María Heimisdóttir, landlæknir
  • 13:10: Arinspjall með forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur og dr. Dóru Guðrúnu Guðmundsdóttur um hamingju, samkennd og Riddara kærleikans.
  • 13:40: Jöfnuður til farsældar: Líðan, tengsl og öryggi barna eftir fjárhagsstöðu, Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis
  • 13:55: Auðmýkri, opnari og mildari, Hera Fönn Lárusdóttir, nemandi við Grunnskólann í Hveragerði
  • 14:10: Hamingjudans leiddur af Eddu Björgvinsdóttur
  • 14:30 Hamingjustund – tengsl - ávextir og kaffi
  • 15:00 Félagslegir töfrar – Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands
  • 15:20: Pallborðsumræður: Karlmennska og kærleikur. Ásmundur Einar Daðason, fyrrum mennta- og barnamálaráðherra, Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi sjálfbærs Íslands hjá forsætisráðuneytinu, Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og Kári Einarsson, forseti Nemendafélags Verslunarskóla Íslands.
  • 15:50 Fjöldasöngur – Gítar: Eggert Benedikt Guðmundsson leiðir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×