Innlent

Fimm bjargað úr sjónum eftir að skemmtibát hvolfdi

Lovísa Arnardóttir skrifar
Björgunarsveitarmenn við störf í mynni Patreksfjarðar.
Björgunarsveitarmenn við störf í mynni Patreksfjarðar. Landsbjörg

Síðan á miðnætti hafa verið fimm útköll á sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Í tilkynningu segir að það sé óvenju mikið miðað við árstíma. Fyrsta útkallið var frá fólki sem var á siglingu á miðjum Seyðisfirði og hin fjögur vegna strandveiðibáta í vandræðum.

Fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg að útkallið í Seyðisfirði hafi komið upp úr klukkan eitt hafi borist tilkynning frá fólkinu sem hafi verið á siglingu á litlum skemmtibát. Bátnum hafði á einhvern hátt hvolft og fólkið sem var um borð, fimm manns, komist á kjöl bátsins.

Björgunarsveitin Ísólfur hafi brugðist við þessu og sjósett björgunarbát, Björgunarskipið Hafbjörg á Neskaupstað auk smærri björgunarbáts björgunarsveitarinnar Gerpis á Neskaupstað. Auk þess var áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar kölluð út.

Um tuttugu mínútum eftir útkall var búið að bjarga öllum skipverjum um borð í björgunarbát Ísólfs, Árna Vilhjálmsson og var þá öðrum snúið við, skipum, bátum og þyrlu samkvæmt tilkynningu Landsbjargar. 

Fólkið var samkvæmt tilkynningu flutt í land og varð ekki meint af þessu óhappi. Í kjölfarið fór áhöfn Árna Vilhjálms aftur á slysstað og náði að koma bátnum á réttan kjöl og draga til hafnar. Aðgerðum í Seyðisfirði var lokið upp úr þrjú í nótt.

Fjögur útköll vegna strandveiðibáta

Síðar, í morgun, bárust svo með skömmu millibili fjögur útköll vegna strandveiðibáta í vandræðum. Fyrsta útkallið var vegna báts í Faxaflóa, skammt undan Syðra Hrauni, sem hafði orðið fyrir vélarbilun. Skipverji þurfti að drepa á vél bátsins ella hefði sjór flætt inn. Björgunarbáturinn Margrét Guðbrands frá Björgunarfélagi Akraness fór á vettvang og tók bátinn í tog og fer með hann til Akraness.

Annað útkallið barst um tíu mínútum síðar vegna báts í Ísafjarðardjúpi sem var án vélarafls. Björgunarsveitin Kofri fór í það verkefni á nýjum björgunarbát sveitarinnar, Svan, og eru skipin nú í mynni Ísafjarðardjúps á leið til lands.

Björgunarskipið Vörður II r nú á leið til hafnar á Patreksfirði í þéttri þoku en með fiskibátinn í togi.Landsbjörg

Klukkutíma síðar, eða rétt upp úr klukkan átta, barst svo beiðni frá litlum fiskibát í mynni Patreksfjarðar, enn á ný vegna vélarbilunar. Björgunarskipið Vörður II hélt þegar út til aðstoðar og er nú á leið til hafnar á Patreksfirði samkvæmt tilkynningu í þéttri þoku en með bátinn í togi.

Og rétt um níu í morgun barst svo fimmta útkallið, þegar áhöfn Hannesar Þ Hafstein, björgunarskipsins í Sandgerði var kölluð út vegna lítils fiskibáts sem staddur var vestur af Syðra Hrauni með bilaða vél.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×