Innlent

Fara fram á gæslu­varð­hald vegna al­var­legrar stunguárásar

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einum.
Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir einum. Vísir

Lögreglan á Suðurnesjum hefur handtekið einn einstakling eftir alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ. Fórnarlambið var með alvarlega stunguáverka og er á sjúkrahúsi. Farið verður fram á gæsluvarðhald í dag.

„Lögreglan á Suðurnesjum fékk tilkynningu kl. 22:16 í gærkvöldi um alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ. Þegar lögreglumenn komu á vettvang ásamt sjúkraliði var ljóst að viðkomandi var með alvarlega stunguáverka og því fluttur til Reykjavíkur undir læknishendur,“ segir í tilkynningu á heimasíðu lögreglunnar.

Lögregla hóf strax leit og fannst einstaklingurinn á höfuðborgarsvæðinu fljótlega eftir miðnætti. Lögregla mun fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum í dag.

„Vegna alvarleika málsins og rannsóknarhagsmuna, mun lögreglan fara fram á gæsluvarðhald yfir árásaraðila í dag.“

Rannsókn málsins er á frumstigi en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum er um að ræða einn árásarmann og eitt fórnarlamb.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×