Leik lokið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Kristófer Ingi Kristinsson skoraði þrennu fyrir Blika í kvöld þrátt fyrir að hafa ekki komið inn á völlinn fyrr en á 68. mínútu.
Kristófer Ingi Kristinsson skoraði þrennu fyrir Blika í kvöld þrátt fyrir að hafa ekki komið inn á völlinn fyrr en á 68. mínútu. Vísir/Hulda Margrét

Blikar unnu 4-1 endurkomusigur í Garðabænum í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld og geta þakkað varamanninum Kristófer Inga Kristinssyni fyrir það.

 náðu Víkingum að stigum með sigrinum en Víkingar halda toppsætinu á markatölu.

Kristófer Ingi kom inn á sem varamaður á 68. mínútu þegar Stjarnan var búið að vera yfir í næstum því sextíu mínútur eftir laglegt mark Benedikts Warén.

Kristófer jafnaði metin á 70. mínútu og kom Blikum síðan yfir sjö mínútum síðar. Hann innsiglaði síðan sigurinn og þrennuna sína með marki á 85. mínútu.

Aron Bjarnason skoraði síðan fjórða markið í uppbótatíma og Blikar skoruðu því fjögur mörk á síðstu 25 mínútum leiksins.

Kristófer fagnaði hóflega en hann var þarna að skora þrennu á móti uppeldisfélaginu en þetta voru gríðarlega mikilvæg mörk fyrir Blika sem voru án fyrirliðans Höskuldar Gunnlaugssona og markamaskínunnar Tobias Thomsen.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira