Taylor Swift sló met á VMA-hátíðinni Madonna og Taylor Swift fóru með sigur af hólmi á MTV Video Music-verðlaunahátíðinni 2026, VMA. Madonna hlaut þrenn verðlaun en Swift fékk verðlaun fyrir besta myndbandið, The Fate of Ophelia, og varð um leið sú tónlistarkona sem hefur hlotið flest verðlaun í sögu hátíðarinnar. Tónlist 28. september 2026 07:17
Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Breska hryðjuverkalögreglan rannsakar nú hvort Íran standi að baki meintum sprengjuáformum eftir að vopnaðir lögreglumenn fundu sprengiefni í þremur sendibílum sem lagt hafði verið í nokkurra mínútna fjarlægð frá herstöð Bandaríkjanna í Fairford í Gloucestershire í Bretlandi í gær. Bandaríski flugherinn hefur notað herstöðina í aðgerðum gegn Íran samkvæmt frétt Guardian. Erlent 28. september 2026 06:45
Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Stjórnvöld í Íran segja að deilan við Bandaríkin og Ísrael verði aðeins leyst með diplómatískum leiðum. Þetta kom fram í máli Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran í gær, degi eftir að Donald Trump lýsti því yfir að hann hafi hafnað tillögu Írana um að opna Hormússund og binda enda á átökin. Erlent 28. september 2026 06:40
Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Donald Trump Bandaríkjaforseti segir mennina fimm sem handteknir voru nærri herflugstöðinni RAF Fairford í Englandi í nótt hafa ætlað að valda „miklum skaða“ á stöðinni. Hann segir bandarísk yfirvöld hafa haft mennina undir eftirliti um nokkurt skeið og fagnar samstarfi við Breta. Erlent 27. september 2026 16:19
Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Fimm voru handteknir nærri herflugstöðinni Fairford í Englandi í nótt eftir að íbúar þorps á svæðinu hringdu í lögreglu vegna þriggja sendiferðabíla sem þóttu grunsamlegir. Hringt var á lögregluna skömmu fyrir klukkan eitt í nótt en mennirnir sem voru í kjölfarið handteknir hafa verið sakaðir um brot á lögum um sprengiefni. Þeir liggja einnig undir grun um skipulagningu hryðjuverka. Erlent 27. september 2026 13:14
Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Heart Aerospace, fyrirtæki sænska frumkvöðulsins Anders Forslund, hefur kynnt breytta hönnun tvinn-rafmagnsflugvélar sinnar. Núna er fyrirhugað að hún verði með 36 farþegasæti og tuttugu prósentum meiri burðargetu en hin 30 sæta ES-30 flugvél sem áður var stefnt að og Icelandair hafði skráð sig fyrir. Erlent 26. september 2026 22:33
„Ég hafna samningi þeirra“ Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur staðfest að hann hafi hafnað tillögu Írana sem fólst í því að opnað yrði fyrir umferð flutningaskipa um Hormússund á ný. Hann segir tillöguna „óásættanlega“. Erlent 26. september 2026 21:30
Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Roelf Meyer, nýr sendiherra Suður-Afríku í Bandaríkjunum, segir ekkert „þjóðarmorð á hvítum“ eiga sér stað í heimalandi sínu og að Donald Trump forseti hafi verið blekktur. Hann er sjálfur Búi með afríkönsku að móðurmáli og var lykilmaður í samningaviðræðunum um að binda enda á aðskilnaðarstefnuna. Erlent 26. september 2026 20:25
Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Hinsegin bar í bandarískum smábæ hefur ratað í kastljós heimsmiðla eftir að eigandinn tók þá umdeildu ákvörðun að aflétta grímuskyldu á laugardögum, sem vakti hörð viðbrögð frá fastakúnnum. Erlent 26. september 2026 18:59
Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Kína og Bandaríkin hafa samþykkt að koma á fót sérstakri „samskiptarás“ til að meðhöndla atvik er tengjast gervigreind og flýta fyrir vinnu við samskipti í hernaðarlegum neyðartilvikum. Erlent 26. september 2026 13:53
Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Íranir lögðu fram tillögu að samkomulagi við Bandaríkin um opnun Hormússunds innan við viku með milligöngu Katar. Bandaríkjaforseti er sagður hafa hafnað tillögunni. Erlent 26. september 2026 08:33
Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Dómsdagur er í nánd,“ hafa verið skilaboð gervigreindariðnaðarins til almennings og stjórnmálamanna á undanförnum vikum. Forseti tölvunarfræðideildar HÍ ræðir við Vísi um hvort gervigreindin sé í þann veginn að tortíma mannkyninu. Innlent 26. september 2026 07:03
Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Bæði Repúblikanar og Demókratar eru að dæla milljörðum í kosningabaráttuna um annað öldungadeildarsæti Texasríkis. Repúblikanar hafa áhyggjur af því að missa sætið, sem hefur verið í höndum þeirra um árabil, og Demókratar sjá tækifæri til að ná mögulega meirihluta í öldungadeildinni. Erlent 25. september 2026 22:46
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Xi Jinping lýkur ferð sinni til Bandaríkjanna með ferð í Skjalasafn Bandaríkjanna þar sem Donald Trump ætlar að sýna honum frelsisyfirlýsinguna frægu frá 1776 og réttindaskrá Bandaríkjanna. Bæði þessi skjöl marka grunnstoðir bandarísks lýðræðis. Trump lýsti þeim sem einhverjum mestu fjársjóðum Bandaríkjanna, áður en hann ætlaði að sýna þau leiðtoga öflugasta kommúnistaríkis heims. Erlent 25. september 2026 15:00
Þriggja turna þras í furstadæmunum Talsmaður Vladimírs Pútín segir að þriggja hliða fundur milli Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna gæti átt sér stað í náinni framtíð. Það sé þó ekki ljóst enn og viðræður við Bandaríkjamenn standi enn yfir. Vólódímír Selenskí segir að Bandaríkjamenn hafi lagt til að fundurinn fari fram í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Erlent 25. september 2026 10:29
Holmes flutt á áfangaheimili Elizabeth Holmes, stofnandi fallna heilbrigðisfyrirtækisins Theranos sem olli einu mesta fjaðrafoki Kísildals, verður flutt úr lágmarksöryggisfangelsi á áfangaheimili í ágúst á næsta ári. Erlent 25. september 2026 09:02
Frægt fólk meðal handtekinna í New York Yfir eitt hundrað voru handteknir á fjölmennum mótmælum í New York í gær í tengslum við ræðu Benjamins Netanyahu forsætisráðherra Ísraels á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Þekktir einstaklingar voru á meðal þeirra sem handteknir voru. Erlent 25. september 2026 07:25
„Höfum aldrei átt betra samband“ Donald Trump Bandaríkjaforseti bauð Xi Jinping, forseta Kína, til veglegrar kvöldverðarveislu í Hvíta húsinu í gær þar sem báðir leiðtogar lofuðu nýtt og betra samband ríkjanna. Á sama tíma söfnuðust mótmælendur saman fyrir utan hlið Hvíta hússins og voru nokkrir þeirra handteknir. Erlent 25. september 2026 06:33
50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Fyrirtækið 50skills hefur tryggt sér um 729 milljónir íslenskra króna, eða sex milljónir Bandaríkjadala, í fjármögnun til áframhaldandi vaxtar og þróunar á sviði sjálfvirknivæðingar mannauðsferla. Viðskipti innlent 24. september 2026 14:46
Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Twilight-leikarinn Taylor Lautner hefur eignast barn með eiginkonu sinni og samnafna Taylor Lautner. Barn hjónanna fékk einnig nafnið Taylor. Lífið 24. september 2026 09:08
Veturinn verði Rússum erfiður Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, varaði yfirvöld í Moskvu við því í gær að Úkraínumenn myndu gera veturinn kostnaðarsaman fyrir Rússa, samþykki þeir ekki orkuvopnahlé. Ráðamenn í Úkraínu og bandamenn þeirra hafa lýst yfir vilja til að semja við Rússa um að hætta árásum á orkuinnviði og kornflutninga um Svartahaf. Erlent 24. september 2026 07:57
Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Þann 2. september voru liðin 50 ár frá því að Flugfélag Norðurlands hóf flugþjónustu fyrir Sirius-sleðahundasveitina á Grænlandi. Í dag sinnir Norlandair þessum mikilvægu verkefnum, en höfuðstöðvar félagsins eru sem kunnugt er á Akureyri. Skoðun 24. september 2026 07:29
Bannaði Trump að banna fjölmiðla Alríkisdómari í Washington DC hefur skipað Hvíta húsinu að veita þremur fjölmiðlum sem Donald Trump bannaði úr byggingunni í síðustu viku aftur aðgang að byggingunni. Samkvæmt úrskurðinum eiga miðlarnir að fá aðgang að Hvíta húsinu næstu fjórtán daga á meðan málið er til meðferðar fyrir dómi. Erlent 24. september 2026 06:36
Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Forseti Írans sakaði Bandaríkin um hryðjuverk í ræðu sinni fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og sagði Írani aldrei myndu beygja sig og bugta fyrir Bandaríkjunum. Þá hélt hann á myndum af hinum látna leiðtoga Ayatollah Khameinei sem og af látnum almennum borgurum. Á sama tíma lýsti hann Írani opna fyrir viðræðum en sendinefnd Bandaríkjanna yfirgaf salinn. Erlent 23. september 2026 20:59
Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Patrick Clancy, fyrrverandi eiginmaður Lindsay Clancy, á von á barni með eiginkonu sinni. Lindsay sat réttarhöld ákærð fyrir að hafa myrt þrjú börn þeirra árið 2023. Lífið 23. september 2026 15:43
Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Embættismenn innan ríkisstjórnar Donalds Trump segja það vera „forréttindi“ fyrir fjölmiðla að fá aðgang að Hvíta húsinu. Starfsmenn CNN, MS NOW og Politico hafi brotið gegn reglum og viðmiðum um siðprýði og þess vegna hafi þeim verið meinaður aðgangur að Hvíta húsinu. Erlent 23. september 2026 13:17
Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Taívan og mannréttindi marka rauðar línur fyrir ráðamenn í Kína, hvað varðar viðræður Donalds Trump og Xi Jinping í Washington DC í dag. Sendiherra Kína í Bandaríkjunum segir að Bandaríkjamenn eigi að hætta að reyna að skapa átyllur eins og þjóðaröryggismál, efnahagslegt ójafnvægi og þrælkunarvinnu til að reyna að halda aftur af framrás Kína. Erlent 23. september 2026 09:15
Bað Trump um „vetrarpakka“ Vólódímír Selenskí bað Donald Trump um „vetrarpakka“ af hernaðaraðstoð og þá sérstaklega um flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, til að verjast skotflaugaárásum Rússa. Hann segir einnig að Bandaríkjamenn séu líklegir til að reyna að koma á vopnahléi sem snýr sérstaklega að orkuinnviðum í bæði Úkraínu og Rússlandi. Erlent 23. september 2026 07:47
Segir stóra ákvörðun framundan Donald Trump forseti Bandaríkjanna hótaði í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær að afmá klerkastjórnina í Íran ef átökin leystust ekki. Samskipti áttu sér stað á milli fulltrúa landanna á þinginu í gær. Erlent 23. september 2026 06:44
Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Xi Jinpin, forseti Kína, er talinn ætla að fara fram á það við Donald Trump að Bandaríkin hætti að selja vopn til Taívan. Xi hefur nokkuð öflugt vopn í formi sjaldgæfra málma til að beita Trump þrýstingi. Á móti hefur Trump getu til að skaða efnahag Kína töluvert. Erlent 22. september 2026 23:30