

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Ítrekar að Manchester United sé ekki í krísu
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, er harður á því að félagið sé ekki í krísu og segir að liðið geti snúið slæmu gengi við ef allir haldi sig við það sem hefur verið lagt upp með.

Barcelona hefur áhuga á að fá útlægan Sancho
Spænska stórveldið Barcelona er sagt áhugasamt um að fá Jadon Sancho í sínar raðir frá Manchester United.

Segir lið sitt geti ekki treyst á að koma alltaf til baka
„Við verðum að spila betur en við gerðum í fyrri hálfleik,“ sagði Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, eftir sigur liðsins á Úlfunum í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.

„Við vorum skilvirkir og við vorum þolinmóðir“
Pep Guardiola var himinlifandi með 3-1 sigur Englandsmeistara Manchester City á West Ham United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Meistararnir lentu undir en komu til baka og var Pep mjög sáttur með sigurinn enda Man City áfram með fullt hús stiga.

Ten Hag ekki sáttur með tapið en sá þó margt jákvætt
Erik ten Hag, þjálfari Manchester United, var heldur súr þegar hann ræddi við fjölmiðla eftir tap sinna manna gegn Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni í dag. Liðið hafði leikið 31 leik í röð án þess að tapa á Old Trafford fyrir daginn í dag. Hann telur lið sitt geta komist aftur í hæstu hæðir.

Newcastle marði Brentford
Newcastle United vann 1-0 sigur á Brentford í síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Ótrúleg endurkoma Tottenham
Gott gengi Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu heldur áfram en liðið vann 2-1 heimasigur á nýliðum Sheffield United í dag. Aston Villa og Fulham náðu einnig í þrjú stig í dag.

Meistararnir enn með fullt hús stiga eftir endurkomusigur
Englandsmeistarar Manchester City unnu góðan 3-1 útisigur gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Brighton batt enda á góðan árangur Man United á heimavelli
Fyrir leik dagsins á Old Trafford hafði Manchester United leikið 31 leik án þessa að bíða ósigurs á heimavelli. Brighton & Hove Albion gat vart verið minna sama um þann árangur en gestirnir hrósuðu 3-1 sigri í stórskemmtilegum leik.

Liverpool á toppinn eftir endurkomusigur gegn Úlfunum
Liverpool vann góðan 3-1 útisigur gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Fótboltaheimurinn nötrar vegna Sáda
Opinber fjárfestingasjóður Sádi-Arabíu hefur rutt sér til rúms í íþróttaheiminum með gífurlegum fjárútlátum síðustu mánuði. Í fótboltanum er bitið til baka, á fleiri en einum vettvangi.

Man United sótti fjórar á gluggadegi
Það var nóg um að vera á skrifstofu kvennaliðs Manchester United en silfurliðið frá síðustu leiktíð í ensku úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu samdi við fjóra leikmenn í gær en glugginn til þess að sækja leikmenn er nú lokaður.

Palhinha framlengir óvænt við Fulham
Joao Palhinha hefur skrifað undir nýjan samning við Fulham.

Ten Hag um Sancho: „Kúltúrinn innan félagsins var ekki góður“
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að hann hafi þurft að stíga fast til jarðar hjá félaginu og innleiða aga hjá því.

Bjarna Fel bregður fyrir í færslu Liverpool
Í færslu sem birtist á samfélagsmiðlareikningi enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, á dánardegi íþróttafréttamannsins og knattspyrnukapans fyrrverandi Bjarna Felixssonar, má sjá Bjarna bregða fyrir.

Luton hafði samband við sérfræðing BBC sem þeim fannst sýna liðinu vanvirðingu
Enska úrvalsdeildarliðið Luton Town setti sig í samband við sérfræðing BBC sem þeim finnst hafa sýnt sér vanvirðingu.

Kyle Walker framlengir við City
Kyle Walker, leikmaður Manchester City hefur skrifað undir nýjan samning við félagið til ársins 2026.

Ten Hag mun ekki gefa sig: Krefst afsökunarbeiðni frá Sancho
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United, vill fá afsökunarbeiðni frá Jadon Sancho, leikmanni félagsins, áður en hann snýr aftur í aðalliðið hjá Rauðu djöflunum. Sancho æfir nú einn síns liðs vegna agabrots.

Maguire undrar sig á gagnrýninni og efast ekki um hlutverk sitt hjá Man Utd
Harry Maguire, leikmaður Manchester United og enska landsliðsins í knattspyrnu, undrar sig á þeirri gagnrýni sem hann hefur mátt sæta undanfarnar vikur.

Heimsmeistari til United
Irene Guerrero, sem var í heimsmeistaraliði Spánar í fótbolta, er gengin í raðir Manchester United.

Mætti fjórum tímum of snemma á æfingu
Á meðan fréttir berast af erfiðleikum Jadons Sancho að mæta á æfingar hjá Manchester United á réttum tíma er Anthony Martial hinum enda kvarðans.

Yfirlýsing Manchester United: Sancho fær ekki að æfa með aðalliðinu
Jadon Sancho, sóknarmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United mun æfa einn, fjarri aðalliði félagsins vegna agavandamáls. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá enska úrvalsdeildarfélaginu.

Einn af helstu stjórnendum Arsenal lætur af störfum eftir tímabilið
Vinai Venkatesham, framkvæmdastjóri Arsenal, mun láta af störfum hjá félaginu eftir yfirstandandi tímabil. Frá þessu greinir félagið í yfirlýsingu.

Vildi fá Emmu Hayes til að taka við Leicester
Gary Lineker vildi fá Emmu Hayes, knattspyrnustjóra Chelsea, til að taka við liðinu sínu, Leicester City.

Gagnrýnir ósmekklegan Onana fyrir að öskra á Maguire
Jamie Carragher segir að André Onana hafi farið langt yfir strikið þegar hann öskraði á Harry Maguire í æfingaleik Manchester United í sumar.

Móðir Maguire tjáir sig: „Óska þess að enginn verði fyrir svona aðkasti“
Móðir Harry Maguire, leikmanns enska landsliðsins í fótbolta og Manchester United, segir það taka mjög á að horfa upp á hann þurfa að ganga í gegnum það aðkast sem beint hefur verið að honum undanfarið. Hún óski engum að ganga í gegnum það sem sonur hennar er að ganga í gegnum.

Leikmaður Nottingham Forest dæmdur í fimm mánaða bann
Harry Toffolo, varnarmaður Nottingham Forest, fannst sekur um 375 brot á veðmálareglum enska knattspyrnusambandsins. Hann var dæmdur í fimm mánaða bann frá knattspyrnuiðkun og sektaður um 20.956 sterlingspund.

Opnar sig um erfiða tíma og leitar til sálfræðings
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Richarlison ætlar sér að leita sér hjálpar hjá sálfræðingi er hann snýr aftur til Englands að landsleikjahléinu loknu.

Ungstirni United hermdi eftir Salah
Hannibal Mejbri, leikmaður Manchester United, virtist gera grín að Mohamed Salah þegar hann skoraði sigri Túnis á Egyptalandi.

Sárnar fréttirnar og segir ágóðann renna til góðgerðarmála
John Terry, fyrrverandi fyrirliði Chelsea, segir að allur ágóði af „Kvöld með John Terry,“ nýjum viðburði þar sem aðdáendum gefst tækifæri á að hitta Chelsea-goðið, renni til góðgerðarstarfsemi.