

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Gefur Englendingum ekki háa einkunn: „Flatt, leiðinlegt og ömurlegt“
Enskir sparkspekingar voru ekki með hýrri há eftir England tapaði fyrir Íslandi, 0-1, í síðasta leik sínum fyrir Evrópumótið í Þýskalandi sem hefst í næstu viku.

Stjórnarformaður Liverpool staðráðinn í að spila leiki utan Englands
Tom Werner, stjórnarformaður Liverpool, vill að leikir í ensku úrvalsdeildinni verði spilar á erlendri grundu. New York yrði fyrsti áfangastaður áður en frekari útbreiðsla færi af stað.

Chelsea vann kapphlaupið um Adarabioyo
Enski varnarmaðurinn Tosin Adarabioyo er genginn í raðir Chelsea á frjálsri sölu frá Fulham.

„Ísland var gríðarlega óheppið í umspilinu“
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, er spenntur fyrir leik kvöldsins við Ísland fyrir troðfullum Wembley í Lundúnum.

„Veit hvernig börnin mín myndu vilja fá svona fréttir“
Gareth Southgate, þjálfari enska karlalandsliðsins í fótbolta, átti erfiðan dag í gær líkt og hann greinir frá við Stöð 2 Sport.

Maðurinn sem skallaði Roy Keane sakfelldur fyrir líkamsárás
Scott Law, maðurinn sem skallaði Roy Keane á leik Arsenal og Manchester United hefur verið sakfelldur fyrir líkamsárás.

Sorg í Lundúnum og öllum fullkomlega sama um Ísland
Spennan er iðulega mikil fyrir leikjum Íslands við stórþjóðir og leikur morgundagsins við England á Wembley er þar ekki undantekning. Hjá Tjöllunum er staðan allt önnur.

Grealish og Maguire ekki í enska EM-hópnum
Jack Grealish og Harry Maguire verða ekki í hópi enska landsliðsins í fótbolta á Evrópumótinu í Þýskalandi.

Öll liðin nema eitt vildu halda VAR í ensku úrvalsdeildinni
Myndbandsdómgæsla verður áfram í ensku úrvalsdeildinni. Tillaga Wolves um að hætta með VAR var felld með miklum meirihluta.

Arsenal, Chelsea, Newcastle og Man Utd á eftir framherja Leipzig
Benjamin Šeško er nafn sem reikna má með að verði mikið í fjölmiðlum í sumar en þessi 21 árs gamli framherji RB Leipzig er eftirsóttur af Arsenal, Chelsea, Manchester og Newcastle United.

Leikmannasamtök ensku úrvalsdeildarinnar beita sér gegn eyðsluþaki
Fundur eiganda liða í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta fer fram síðar í dag. Þar er talið næsta víst að kosið verði gegn hugmynd um eyðsluþak en sú umræða kom upp á dögunum.

Evans í viðræðum við United um nýjan samning
Jonny Evans, varnarmaður Manchester United, er í viðræðum við félagið um að framlengja samningi sínum.

Arteta vill fá leikmann sem skoraði gegn Íslandi
Úkraínskur leikmaður Girona á Spáni er undir smásjá Arsenal, silfurliðs síðustu tveggja ára í ensku úrvalsdeildinni.

Ætla að banna starfsfólki United að borða með leikmönnunum
Sir Jim Ratcliffe og félagar hans í INEOS eru byrjaðir að taka til hendinni hjá Manchester United og ætla að breyta ýmsu hjá félaginu, meðal annars hverjir mega snæða með leikmönnum þess á æfingasvæðinu.

Sádagullið heillar De Bruyne: „Þú ert að tala um ótrúlegar upphæðir“
Kevin De Bruyne, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, segir að það gæti orðið erfitt að hafna freistandi tilboði frá Sádi-Arabíu.

City fer í mál við ensku úrvalsdeildina: „Ógnarstjórn meirihlutans“
Englandsmeistarar Manchester City hefur farið í mál við ensku úrvalsdeildina vegna fjárhagsreglna hennar.

Helsti styrktaraðili Liverpool sakaður um tengsl við hryðjuverkasamtök
Breski bankinn Standard Chartered hefur verið sakaður um tengsl við hryðjuverkamenn. Kemur þetta fram í réttarskjölum frá New York í Bandaríkjunum.

Segir enska knattspyrnusambandið vilja dæma Paquetá í lífstíðarbann
Brasilíski miðjumaðurinn Lucas Paquetá, leikmaður West Ham United í ensku úrvalsdeildinni, er enn á ný í vandræðum vegna fjölda veðmála tengdum spilamennsku hann. Blaðamaður enska götublaðsins The Sun telur að enska knattspyrnusambandið vilji dæma leikmanninn í lífstíðarbann.

Steve Bruce orðinn þreyttur á atvinnuleysinu: „Leicester, þið vitið hvar þið finnið mig“
Steve Bruce, fyrrum leikmaður og þjálfari fjölmargra liða á Englandi, er orðinn þreyttur á atvinnuleysinu og vill finna sér eitthvað að gera. Hann lítur á opnun í stjórastarfi Leicester City sem mikið tækifæri.

Leitaði ráða hjá Rio Ferdinand áður en hann tók flugið til Ísafjarðar
Það vakti gífurlega athygli þegar að Rio Ferdinand, fyrrverandi leikmaður Manchester United og enska landsliðsins setti inn athugasemd við myndband sem að Besta deildin setti inn á Instagram af marki Toby King, leikmanns Vestra gegn Stjörnunni á dögunum. Ferdinand er náinn fjölskylduvinur Toby og hefur hann geta leitað ráða hjá honum í gegnum sinn feril í fótboltanum.

United og Liverpool berjast um miðvörð Sporting
Portúgalski miðvörðurinn Goncalo Inácio er eftirsóttur, meðal annars af ensku stórliðunum Manchester United og Liverpool.

Vonar að landsliðsdyrnar séu enn opnar: „Ég hef ekki heyrt múkk“
Atvinnumaðurinn í knattspyrnu, Jón Daði Böðvarsson hefur ekkert heyrt frá núverandi landsliðsþjálfara Íslands síðan að sá tók við þjálfun liðsins. Hann vonar að landsliðsdyrnar séu enn opnar.

Hareide yngri orðinn yfirmaður íþróttamála hjá ensku C-deildarliði
Bendik Hareide, sonur Åge Hareide – landsliðsþjálfara íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, er orðinn yfirmaður íþróttamála hjá enska C-deildarliðinu Burton Albion.

Styttist í að Ten Hag fái að vita hvað framtíðin ber í skauti sér
Þrátt fyrir að vinna tvo titla á sínum fyrstu tveimur árum sem þjálfari enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United þá er framtíð Erik ten Hag í lausu lofti. Hann vonast til að fá hana á hreint á næstu dögum.

Maresca tekinn við hjá Chelsea
Chelsea hefur gengið frá ráðningu á nýjum þjálfara. Enzo Maresca mun yfirgefa Leicester og taka við starfinu af Mauricio Pochettino.

Ferguson hafi átt leynilegan fund í Lundúnum
Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri og goðsögn í sögu enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United, er sagður hafa fundað með Dougie Freedman, yfirmanni knattspyrnumála hjá Crystal Palace, varðandi þrjá leikmenn félagsins sem Manchester United er sagt á höttunum eftir.

Fyrrverandi leikmaður Arsenal og Everton alvarlega veikur á spítala
Kevin Campbell, fyrrverandi leikmaður Arsenal, Everton og fleiri liða, liggur alvarlega veikur á spítala.

Tvítugur norskur strákur vann Fantasy leik ensku úrvalsdeildarinnar
Norðmenn áttu ekki aðeins markakóng ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili í Erling Haaland því annar ungur Norðmaður vann Fantasy leik ensku úrvalsdeildarinnar.

Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal
Arsenal er á höttunum á eftir leikmanni til að bæta í framherjasveit sína. Einn markahæsti leikmaður ítölsku deildarinnar síðustu árin er sagður spenntur fyrir skiptum til enska stórliðsins.

Ekkert verður af kaupunum á Everton
Everton leitar sér nú að nýjum kaupanda eftir að ekkert varð að kaupum bandaríska fjárfestingafélaginu 777 Partners á enska úrvalsdeildarfélaginu.