UNICEF afhjúpar táknræna útstillingu fyrir tapaðar skólastundir barna Börn á skólaaldri um allan heim hafa samanlagt orðið af alls 1,8 billjón klukkustundum af kennslu. Heimsmarkmiðin 17. september 2021 15:20
10 ár án réttinda Ímyndum okkur hóp einstaklinga á vinnumarkaði sem hefur ekki einungis vinnuskyldum að gegna heldur þurfi líka að sinna t.d. fjölskyldu sinni, húsnæði, heilsu o.s.frv. Atvinnu- og tekjuöryggi þessa hóps er þess vegna mikilvægt til að geta framfleytt sér. Það er þó eitt sem einkennir hópinn sem við erum að ímynda okkur. Skoðun 17. september 2021 09:01
Húsnæðisskorturinn verði vonandi úr sögunni strax á næsta ári Lýðskólinn á Flateyri hefur þurft að vísa frá umsækjendum vegna húsnæðisskorts í bænum. Ráða á bót á húsnæðisvandanum með byggingu nemendagarða, fyrstu íbúðarhúsum sem byggð verða í bænum í 25 ár. Innlent 17. september 2021 09:01
Kynjaskráning liðin tíð en hægt að velja úr átta persónufornöfnum Framhaldsskólarnir eru hættir að skrá kyn nemenda og geta þeir nú valið á milli átta persónufornafna í nemendakerfinu Innu. Að sögn konrektors Menntaskólans við Hamrahlíð er aðeins hægt að velja eitt fornafn eins og stendur en þessu verður breytt. Innlent 17. september 2021 06:46
Grímuskylda í leikskólum borgarinnar að minnsta kosti fram að mánaðamótum Ákveðið var á fundi hjá Reykjavíkurborg í morgun að viðhalda og ítreka grímuskyldu í leik- og grunnskólum borgarinnar fram að mánaðamótum. Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að flestir þeir sem sæta einangrun þessa dagana eru börn á yngsta og miðstigi grunnskóla. Innlent 16. september 2021 09:32
Tíu greindust smitaðir á Reyðarfirði og skólum lokað Alls greindust tíu manns með kórónuveiruna á Reyðarfirði eftir fjöldasýnatöku gærdagsins sem ráðist var í eftir að grunur kom upp um smit í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Skólum verður áfram lokað í dag á meðan smitrakning stendur yfir. Innlent 16. september 2021 08:32
Að læra að kenna Undanfarið hefur krafa um breyttar áherslur í kennslu orðið sífellt háværari. Ýmislegt hefur breyst á síðastliðnum árum, í auknum mæli sækja kennarar sér endurmenntun og gera margir hverjir sitt allra besta til að koma til móts við kröfur sem á kennara eru lagðar. Skoðun 16. september 2021 07:01
Kennarar ráðalausir vegna víðtæks en óskiljanlegs þjófnaðar Það geisar þjófnaðarfaraldur í íslenskum grunnskólum, þar sem eftirsóttasti fengurinn eru fábrotnir innanstokksmunir eins og klukkur eða skilti. Sökudólgarnir eru undir alþjóðlegum áhrifum og æðsta takmark þeirra er að gorta sig af þýfinu á TikTok. Innlent 15. september 2021 20:20
Grunnskólakerfið er ein mikilvægasta stoð samfélagsins okkar Grunnskólakerfið er ein mikilvægasta stoð samfélagsins okkar. Í skólum landsins eru unnin þrekvirkvirki á hverjum degi, þrátt fyrir þann þrönga stakk sem þeim er oft sniðinn. Eftir að hafa starfað við kennslu í 5 ár hef hef ég séð mörg mikilvæg skref tekin i rétta átt og jákvæða þróun á mörgum sviðum. Þrátt fyrir það eru ákveðnir hlutir sem ég hef staldrað við. Skoðun 15. september 2021 16:02
Skarðshlíðarleikskóli lokaður í dag vegna smits meðal nemenda Skarðshlíðarleikskóli í Hafnarfjarðarbæ var lokaður í dag vegna Covid-19 smits. Um er að ræða eitt barn af um 80 sem skráð eru á fjögurra deilda leikskólann. Innlent 15. september 2021 14:05
Grunnskólanum lokað vegna gruns um smit Grunur leikur á Covid-19 smiti í grunnskólanum á Reyðarfirði og hefur því verið ákveðið að loka skólanum í dag meðan unnið er að kortlagningu mögulegs smits. Innlent 15. september 2021 13:44
Kvistaborgarbörn í Safamýrarskóla næstu mánuði vegna rakaskemmda Starfsemi leikskólans Kvistaborg í Fossvogi færist tímabundið í Safamýrarskóla næstu mánuði vegna framkvæmda sem framundan eru í húsnæði leikskólans vegna rakaskemmda og uppfærslu á húsnæði leikskólans. Innlent 15. september 2021 07:29
Nýjar takmarkanir fá misjafnar viðtökur: Menntskælingar í skýjunum en hárgreiðslumenn brjálaðir Nýjar samkomutakmarkanir sem taka gildi á miðnætti leggjast misjafnlega í fólk. Hárgreiðslufólk skilur ekkert í því að þurfa áfram að bera grímur á meðan menntaskólanemar geta ekki beðið eftir að komast aftur á skólaböll. Innlent 14. september 2021 19:27
Sálfræðinga í alla framhaldsskóla landsins! Flokkur fólksins telur mikilvægt að sálfræðingar verði í öllum framhaldsskólum landsins. Sálfræðingar eru í einhverjum framhaldsskólum en Flokkur fólksins vill, komist hann til áhrifa á Alþingi, berjast fyrir að fá sálfræðinga í alla framhaldsskóla landsins. Skoðun 13. september 2021 15:30
Hanna Björg fer í framboð Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, framhaldsskólakennari og kynjafræðingur hefur ákveðið að bjóða sig fram til formennsku í Kennarasambandi Íslands. Innlent 11. september 2021 21:22
Jón Sigurðsson látinn Jón Sigurðsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, Seðlabankastjóri og ráðherra, er látinn, 75 ára að aldri. Innlent 11. september 2021 00:20
Hólmurum fjölgar hratt: „Það er bara geggjuð stemmning hérna í bænum” Íbúum í Stykkishólmi hefur fjölgað um ríflega hundrað á síðustu fjórum árum, og munar þar mest um barnafjölskyldur. Aðfluttur fjölskyldufaðir í bænum segist njóta lífsins mun betur í kyrrðinni. Innlent 10. september 2021 21:38
Tekur við starfi forseta samfélagssviðs af nýráðnum rektor Bryndís Björk Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin sviðsforseti samfélagssviðs Háskólans í Reykjavík, en undir sviðið heyra sálfræðideild, viðskiptadeild, lagadeild og íþróttafræðideild. Viðskipti innlent 10. september 2021 13:24
Ragnar Þór lætur staðar numið hjá Kennarasambandinu Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, sækist ekki eftir endurkjöri sem formaður sambandsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sambandinu. Innlent 10. september 2021 11:05
CLF á Íslandi: Áframhaldandi uppbygging í Úganda í þágu stúlkna Skólinn býður ungum stúlkum sem eiga erfitt uppdráttar upp á nám þar sem áhersla er lögð á öruggt umhverfi, sálrænan stuðning og valdeflingu. Heimsmarkmiðin 10. september 2021 10:26
Skólalokanir auka ójöfnuð í Suður-Asíu að mati UNICEF Lokanir á skólum hafa raskað námi 434 milljóna barna í Suður-Asíu. Heimsmarkmiðin 9. september 2021 13:35
Fjölbreyttari menntun Á síðustu áratugum hefur íslenskum börnum og ungmennum verið steypt í sama formið sem gefur lítið rými fyrir frávik. Þrátt fyrir að öflugt menntakerfi byggi grunn að sterku velferðar- og efnahagskerfi þá er staðan þannig að foreldrar hafa lítinn sveigjanleika þegar þeir senda börnin sín í skóla. Skoðun 8. september 2021 11:32
Langþreyttir foreldrar leikskólabarna í Reykjavík Til þeirra sem málið varðar. Ég er foreldri tveggja barna á leikskólaaldri. Yngri sonur minn er að hefja skólagöngu sína í leikskóla hjá Reykjavíkurborg núna á föstudaginn, hann er rúmlega tveggja ára. Eldri sonur minn er að hefja síðasta vetur sinn á leikskólanum. Skoðun 7. september 2021 14:31
Ninja Ýr tekur við sem forstöðumaður fjármála HR Ninja Ýr Gísladóttir hefur við ráðin forstöðumaður fjármála Háskólans í Reykjavík og hefur hafið störf. Viðskipti innlent 7. september 2021 13:53
Óttast að milljónir barna fái enga menntun Samkvæmt nýrri skýrslu eru menntamál í ólestri í 48 þjóðríkjum Heimsmarkmiðin 6. september 2021 13:59
Framsókn hefur brugðist framtíðinni Ráðherrar Framsóknarflokksins hafa ítrekað básúnað um ágæti sinna starfa á kjörtímabilinu en þeir eru fátt annað en frasar án innihalds. Skoðun 5. september 2021 18:00
Virkjar ungdóminn til að efla menningarlífið í landinu Ásrún Magnúsdóttir dansari og danshöfundur er að stofna nýjan skóla fyrir ungt fólk á aldrinum þrettán til átján ára. Skólinn er fyrir unglinga sem langar til þess að verða listamenn, sýningarstjórar, aktívistar eða hvað sem er sem er tengt menningu og listum. Lífið 5. september 2021 11:00
Börnin vigti matarleifar sínar Þátttaka í að minnka matarsóun er skemmtilegt verkefni fyrir börn. Skólar sem eru skilgreindir grænir skólar eru með ýmis verkefni fyrir börn til að vekja þau til vitundar um mikilvægi þess að sporna gegn matarsóun í nærumhverfinu og setja sér skýr markmið í umhverfismálum. Skoðun 4. september 2021 14:01
Fjölskyldur í forgang? Í gær ákvað meirihlutinn í borgarstjórn að skerða opnunartíma leikskólanna í Reykjavík. Frá og með næstu áramótum verður opnunartíminn aðeins til 16:30, en ekki 17:00. Skoðun 3. september 2021 17:01
Ekki vitað hvort og hvar 279 börn á grunnskólaaldri stunda nám Ekki er vitað hvort eða hvar að minnsta kosti 279 börn á skólaskyldualdri stunda nám. Flest þeirra eru af erlendum uppruna og sveitarfélögin telja líklegt að flest þeirra séu búsett erlendis jafnvel þótt þau séu skráð til heimilis á Íslandi samkvæmt Þjóðskrá. Innlent 3. september 2021 12:48