
Segir Fram-liðið í ár eitt það sterkasta sem hann hefur þjálfað
Stefán Arnarson þjálfari Fram segir að liðið sem hann vann deildarmeistaratitilinn í Olís-deild kvenna með í vetur sé eitt besta lið sem hann hefur þjálfað á sínum ferli.
Sportið í dag er fréttaþáttur um íþróttir á Stöð 2 Sport. Þátturinn er sýndur alla virka daga klukkan 15.00.
Stefán Arnarson þjálfari Fram segir að liðið sem hann vann deildarmeistaratitilinn í Olís-deild kvenna með í vetur sé eitt besta lið sem hann hefur þjálfað á sínum ferli.
Vignir Svavarsson tilkynnti í gær að hann hafi ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann sér sig ekki fara út í þjálfun eða eitthvað tengt handboltanum því hann hafi ekkert sérstaklega gaman af íþróttinni.
Ásgeir Örn Hallgrímsson segir að það sé Loga Geirssyni að þakka að EHF-bikarinn sem Lemgo vann árið 2006 hafi endað hér á landi. Lemgo hafði þá betur í tveimur leikjum gegn Göppingen í úrslitaeinvíginu.
Könnum Knattspyrnuþjálfarafélags Íslands leiddi í ljós að nær fimmtungur knattspyrnuþjálfara á Íslandi fá launagreiðslur sem eru ekki gefnar upp til skatts.
Flest benti til þess að Ásgeir Örn Hallgrímsson væri á leið til Barcelona áður en örlögin gripu í taumana.
Ásgeir Örn Hallgrímsson segist aldrei hafa verið ósáttur með lítinn spiltíma í landsliðinu enda hafi hann gert sér grein fyrir því að í byrjunarliðinu í hans stöðu hafi einn besti handboltamaður Íslands fyrr og síðar verið, Ólafur Stefánsson.
Pistlar halda áfram að berast frá Kára Kristjáni Kristjánssyni úr skúrnum í Vestmannaeyjum og í Sportinu í dag var sýndur þáttur númer sex í fyrstu seríu.
Birgir Tjörvi Pétursson formaður knattspyrnudeildar Gróttu segir að leikmenn liðsins fái engar fastar launagreiðslur þó að þeir séu komnir upp í deild þeirra bestu. Þeir haldi áfram á svokölluðu bónuskerfi.
Ásgeir Örn Hallgrímsson segir að það hafi sviðið sárt að hafa ekki unnið til gullverðlauna með íslenska landsliðinu á Ólympíuleikunum í London 2012.
Farsælum ferli handboltamannsins Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar er lokið. Aðeins einn leikmaður hefur farið á fleiri stórmót með íslenska landsliðinu en hann.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn var gestur Kjartans Atla Kjartanssonar og Henrys Birgis Gunnarssonar í Sportinu í dag á föstudaginn. Farið var um víðan völl í þættinum sem nú má sjá í heild sinni hér á Vísi.
John Júlíus Cariglia, stjórnarmaður í körfuknattleiksdeild Þórs Akureyri, segir mikinn hug í mönnum fyrir norðan og mikinn áhuga á körfubolta í bænum. Þórsarar eru nú í þjálfaraleit.
„Þær voru þarna nokkrar sem nánast stukku upp í fangið á mér,“ sagði Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, þegar hann rifjaði upp skemmtilega sögu af Evrópumóti kvenna í fótbolta frá árinu 2017. Víðir var þá öryggisstjóri KSÍ.
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, segist hafa lært mikið af því að fylgja íslensku landsliðunum í fótbolta í ferðalögum sem öryggisstjóri KSÍ.
Handboltadrottningin sigursæla Anna Úrsúla Guðmundsdóttir missti mömmu sína fyrir þremur árum og segir það hafa sett hlutina í samhengi fyrir sig. Hún svekki sig ekki lengur á því að lítið hafi orðið úr atvinnumannsferlinum.
Clay Travis, íþróttafréttamaður í Bandaríkjunum, vill eins og fleiri ólmur að farið verði að keppa í íþróttum sem fyrst aftur í landinu. Hann ræddi málin í Sportinu í dag.
Kári Kristján Kristjánsson rifjaði meðal annars upp af hverju hann var eitt sinn á kassanum/bumbunni á veitingastaðnum Lundanum í Vestmannaeyjum árið 2005, í nýjasta innslaginu úr skúrnum sínum í Sportinu í dag.
Það ræðst í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport á morgun hver er besti spilari landsins í FIFA 20 tölvuleiknum. Þá fara fram undanúrslit og úrslit.
„Keppni í fótbolta fullorðinna sýnist mér að geti byrjað í júní,“ segir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, sem var gestur í Sportinu í dag á Stöð 2 Sport.
Víðir Reynisson var gestur Sportsins í dag þar sem hann ræddi m.a. um áhorfendafjölda á fyrstu leikjum Íslandsmótsins.
Kári Kristján Kristjánsson rifjaði upp sögur af miklum svindlurum í innslagi sínu úr bílskúrnum í Vestmannaeyjum í Sportinu í dag.
„Við ætlum ekki að fara að fjárfesta okkur í kaf, en við ætlum að halda áfram að vera með í slagnum,“ segir Ingólfur Jón Geirsson, formaður körfuknattleiksdeildar Tindastóls.
„Við stefnum ótrauð á það að halda mótið,“ segir Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri Breiðabliks, um Símamótið sem Blikar halda árlega. Það er jafnan fjölmennasta krakkamót hvers fótboltasumars.
„Ég mun fara beint á Kaffi Krús. Síðan er það sundlaugin og ein góð pylsa,“ sagði handboltamaðurinn Guðmundur Hólmar Helgason léttur í bragði í Sportinu í dag þar sem tilkynnt var að hann hefði samið við Selfoss.
Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands, sér fram á frábært golfsumar hér á landi eftir tilkynningu ríkisstjórnarinnar um fyrstu skref við að afnema samkomubann vegna kórónuveirufaraldursins.
Sigurður Gunnar Þorsteinsson segist eiga vangoldin laun hjá ÍR. Félagið hefur rift samningi miðherjans við félagið.
Guðmundur Hólmar Helgason gengur í raðir Selfoss frá West Wien í Austurríki.
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segist reikna með því að FIFA og UEFA nýti sína sjóði til að styðja við aðildarsambönd sín vegna fjárhagslegra afleiðinga kórónuveirufaraldursins.
Guðni Bergsson, formaður KSÍ, segir að EM-umspilsleikur Íslands og Rúmeníu gæti hugsanlega verið færður fram í nóvember. Þá þyrfti væntanlega að gera á ný sérstakar ráðstafanir til að hægt yrði að spila á Laugardalsvelli.
Íslenska rafíþróttafélagið Dusty er komið inn í atvinnumannadeild í tölvuleiknum League of Legends. Eigandi Dusty segir það opna á góða tekjumöguleika fyrir félagið.