

Áhugafólk um Bónus-deild karla í körfubolta getur mætt og gert sér glaðan dag í Minigarðinum í kvöld en þar verður fyrri hluti deildarinnar gerður upp með skemmtilegum hætti, í Bónus Körfuboltakvöldi.
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, sagði að herslumuninn hefði vantað hjá hans mönnum gegn toppliði Stjörnunnar í Bónus deild karla í kvöld. Stjörnumenn unnu leikinn, 90-100.
Viðar Örn Hafsteinsson var hæstánægður eftir magnaðan sigur Hattar gegn Álftanesi í kvöld. Eftir að hafa lent 22-2 undir í upphafi kom Höttur til baka og vann að lokum eftir æsispennandi lokamínútur.
Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, fór glaður út á Reykjanesbrautina eftir sigurinn á Njarðvík í Bónus deild karla í kvöld, 90-100.
Keflavík tapaði fyrir Stjörnunni í síðustu umferð Bónus deildar karla í körfubolta á meðan Þór Þ. vann Álftanes. Liðin eigast við í Sláturhúsinu í kvöld.
Grindvíkingar máttu sætta sig við 120-112 tap gegn KR í framlengdum leik í kvöld en Grindvíkingar kláruðu leikinn nánast á fimm leikmönnum eftir að hafa misst Jordan Aboudou út úr húsi með tvær tæknivillur og Daniel Mortensen af velli með fimm villur.
Stjörnumenn fara með bros á vör inn í jólin eftir 90-100 sigur á Njarðvíkingum á útivelli í 11. umferð Bónus deildar karla í kvöld. Hilmar Smári Henningsson skoraði 35 stig fyrir Stjörnuna sem er með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar.
Höttur batt endi á fjögurra leikja taphrinu sína með mögnuðum endurkomusigri á Álftnesingum í kvöld. Eftir skelfilega byrjun komu Hattarmenn til baka með Obi Trotter fremstan í flokki en hann skoraði sautján stig í fjórða leikhluta.
Keflavík tók á móti Þór Þorlákshöfn í Bónus deild karla í kvöld þegar lokaumferðin fyrir jólafrí fór fram. Keflavík sýndi mátt sinn og megin og fór með sannfærandi nítján stiga sigur 105-86.
KR-ingar tóku á móti Grindvíkingum á Meistaravöllum í kvöld í jöfnum og spennandi leik, sem endaði með 120-112 sigri heimamanna eftir framlengingu.
„Ég vildi spila síðasta leikinn því hann var mjög mikilvægur fyrir liðið, og mig líka, þetta er í fyrsta sinn sem ég spila utan Frakklands. Við byrjuðum tímabilið illa þannig að það var mikilvægt fyrir mig að enda á góðum nótum og það skiptir mig miklu máli að hafa skilað öðrum sigri áður en ég fer frá liðinu,“ sagði Steeve Ho You Fat, sem lék sinn síðasta leik fyrir Hauka í 96-93 sigri gegn ÍR í kvöld. Hann vonar þó að þetta hafi ekki verið hans síðasti leikur á Íslandi.
Eftir fjóra sigurleiki í röð tapaði ÍR gegn botnliði Hauka, 93-96. Haukar leiddu nánast allan leikinn, voru svo næstum því búnir að kasta sigrinum frá sér undir lokin en tókst að vinna, í annað sinn á tímabilinu.
Tveir leikmenn úr Bónus deildar karla í körfubolta voru í dag dæmdir í leikbann af Aga- og úrskurðarnefnd Körfuknattleikssambands Íslands.
Körfuboltamaðurinn Jason Gigliotti er genginn í raðir KR og mun klára tímabilið með liðinu.
Nýr leikmaður Álftnesinga í Bónus deild karla í körfubolta hefur spilað yfir sjötíu leiki í NBA-deildinni. Hann var valinn númer 40 í nýliðavalinu af Sacramento Kings árið 2019.
Sérstakur jólaþáttur Körfuboltakvölds Extra verður á dagskrá á Stöð 2 Sport í kvöld.
Justin James er nýr leikmaður Álftnesinga í Bónus deild karla í körfubolta en um leið hefur félagið látið annan Bandaríkjamenn fara.
Steeve Ho You Fat og Tyson Jolly eiga aðeins eftir að spila einn leik í viðbót með Haukum og síðan fara þeir frá félaginu.
„Líf okkar er á Íslandi,“ segir körfuboltaþjálfarinn Borche Ilievski sem ætlaði að stoppa stutt við á Íslandi með fjölskyldu sinni en nú, átján árum síðar, hafa þau fest rætur hér á landi.
Farið var yfir tilþrif 10. umferðar Bónus-deildar karla í þættinum Bónus Körfuboltakvöld á föstudaginn. Dómari í leik Hattar og ÍR átti þar toppsætið.
Lokaþáttur Kanans fer í loftið á Stöð 2 og Stöð 2 Sport í kvöld. Meðal viðmælenda í kvöld er Keyshawn Woods, fyrrum leikmaður Tindastóls sem lék með liðinu þegar yfir 60 ára bið Skagfirðinga eftir Íslandsmeistaratitlinum lauk.
Óhætt er að segja að Jón Halldór Eðvaldsson taki ekki undir þá gagnrýni sem sett hefur verið fram á mikinn fjölda erlendra leikmanna í efstu deildum Íslands í körfubolta. Hann kveðst hundleiður á umræðu um þessi mál.
Grindvíkingar komu sér aftur á beinu brautina í Bónus-deild karla í kvöld þegar liðið lagði Íslandsmeistara Vals 97-90. Liðin mættust einnig í bikarnum á sunnudag og Grindvíkingar höfðu harma að hefna í kvöld.
Kjartan Atli Kjartansson, þjálfari Álftaness, segir að stóru augnablikin hafi skilið á milli þegar hans menn máttu þola ellefu stiga tap gegn Þór í Þorlákshöfn í kvöld.
Lárus Jónsson, þjálfari Þórs frá Þorlákshöfn, segist ekki vera hissa á því að það hafi reynst hans mönnum erfitt verkefni að landa ellefu stiga sigri gegn Álftanesi í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld.
Grindavíkingar unnu sjö stiga sigur á Val, 97-90, í lokaleik tíundu umferðar Bónus deildar karla í körfubolta. Grindvíkingar virtust ætla að vinna öruggan sigur en þeir hleyptu Valsmönnum aftur inn í leikinn í fjórða leikhlutanum. Grindavíkurliðið stóðst þó atlögu Íslandsmeistaranna og sá til þess að Valsmenn sitja áfram í fallsæti.
Nikolas Tomsick var stigahæsti maður vallarins er Þór Þorlákshöfn vann sterkan ellefu stiga sigur gegn Álftanesi í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld.
Bragi Hinrik Magnússon er í hópi þeirra sem hafa áhyggjur af stöðu íslenska leikmanna í Bónus deild karla í körfubolta.
Þór Þorlákshöfn vann sterkan ellefu stiga sigur er liðið tók á móti Álftanesi í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld, 89-78.
Í tilraun sinni til að hleypa fersku lífi í karlalið ÍR í körfubolta ákváðu forráðamenn félagsins að ráðast í þjálfarabreytingar og ráða inn gamlan vin, Borche Ilievski. Hann hefur aðeins eitt markmið í huga. Að koma ÍR aftur í úrslitaeinvígi efstu deildar.