
Svíþjóð

Íslenskt súkkulaðistykki ódýrara í Svíþjóð en á Íslandi
Íslenska súkkulaðistykkið Draumur frá Freyju er ódýrara í Svíþjóð en í helstu verslunum á Íslandi.

„Þetta er ekki jafn svakalegt og maður ímyndar sér“
„Þetta var svo fallegt einhvern veginn, að vera í öðru landi og tengjast einhverjum,“segir Sigurbjörg Erna Halldórsdóttir. Bróðir hennar, Hlynur Halldórsson greindist með bráðahvítblæði árið 2018 og þurfti í kjölfarið að ganga í gegnum stofnfrumuskipti, þar sem blóð er sótt í beinmerg úr heilbrigðum einstaklingi og fært yfir í þann greinda. Það var úr að Sigurbjörg varð stofnfrumugjafi og tók þannig beinan þátt í krabbameinsmeðferð bróður síns.

Þriðja ungmennið handtekið vegna drápsins í Landskrónu
Fimmtán ára stúlka var handtekin í tengslum við dráp á táningsstúlku í bænum Landskrónu í Svíþjóð. Hún neitar allri sök. Tvö önnur ungmenni eru grunuð um aðild að drápinu á stúlkunni.

Fjórtán ára stúlka myrt í Svíþjóð og jafnaldrar hennar í haldi
Tvö ungmenni hafa verið handtekin í Landskrona í Svíþjóð í tengslum við andlát fjórtán ára stúlku á dögunum.

Ætla sér inn á Ólympíuleikana með hjálp dómstóla
Sex ósáttir íþróttamenn frá Svíþjóð munu leitar réttar síns vegna þess að þeir voru ekki valdir í Ólympíulið Svíþjóðar fyrir leikana í París.

Tveir fundust skotnir til bana í brunnum bíl í Malmö
Sænska lögreglan rannsakar nú mál þar sem tvö lík fundust skotin og brunnin í bílaleigubíl á iðnaðarsvæði í Malmö. Um var að ræða ökumann og farþega sem virðast hafa verið drepnir á sunnudag, samkvæmt Aftonbladet.

Þekktur sænskur rappari skotinn til bana
Sænski rapparinn C. Gambino var skotinn til bana á bílastæði í Gautaborg í gærkvöldi. Í maí síðastliðnum vann hann til hinna sænsku Grammis-verðlauna.

Tveir skotnir til bana í Norrköping
Lögregla í Svíþjóð hefur handtekið mann sem grunaður er um að hafa skotið tvo menn til bana í íbúð í fjölbýlishúsi í borginni Norrköping.

Vatnsskortur í Stokkhólmsmaraþoninu
Stokkhólmsmaraþonið fer fram í dag og er fjöldi fólks með að þessu sinni.

Bjarni fundar með Selenskí í Stokkhólmi
Forsætisráðherrar Norðurlandanna koma saman í Stokkhólmi í dag til þess að funda með Volódómír Selenskí Úkraínuforseta.

Gefa Úkraínumönnum eftirlitsflugvélar
Ríkisstjórn Svíþjóðar hefur ákveðið að senda umfangsmikinn hergagnapakka til til Úkraínu. Í honum eru fjölmargir bryndrekar, skriðdrekar, Starlink-kerfi, skotfæri fyrir stórskotalið og loftvarnarkerfi og tvær eftirlitsflugvélar, sem veita eiga Úkraínumönnum mun betri getu til að fylgjast með háloftunum yfir víglínunni, svo eitthvað sé nefnt.

Saka Rússa um að skapa ótta á Eystrasalti
Ráðherrar ríkja við Eystrasalt segja tilburði Rússa til að breyta mörkum hafsvæða þar hluta af óhefðbundnum hernaði þeirra gegn Evrópu og NATO sem sé ætlað að valda ótta og óvissu. Rússar segja ekkert „pólitískt“ við breytingarnar.

Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu
Sænska flugvélafyrirtækið Heart Aerospace tilkynnti í dag að það hefði ákveðið að flytja hluta af þróunarstarfi vegna þrjátíu sæta tvinn-rafmagnsflugvélar frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Jafnframt hefur félagið hætt við verksmiðjubyggingu í Halmstad en í staðinn ákveðið að reisa rannsóknar- og þróunarmiðstöð í Los Angeles í Kaliforníu.

Von á ákæru eftir spennuþrungna daga í Malmö
Fulltrúi Hollands í Eurovision sem var meinuð þátttaka á úrslitakvöldinu klukkustundum fyrir keppni verður að líkindum ákærður fyrir hótanir að sögn sænsku lögreglunnar. Hinn 26 ára gamli Joost Klein komst á spjöld sögunnar því engum keppanda hefur áður verið vísað úr keppni.

Mætti í eftirpartý og verður eftir í Malmö
Hollenski tónlistarmaðurinn Joost Klein mætti var í eftirpartýi úrslitakvölds Eurovision-keppninnar í gærkvöldi, þrátt fyrir að hafa verið vísað úr keppninni fyrr um daginn. Hann verður þá eftir í Malmö, þar sem keppnin fór fram, þrátt fyrir að aðrir úr hollenska föruneytinu haldi heim á leið.

Ísland lenti í síðasta sæti í Eurovision
Framlag Íslands til Eurovision 2024 lenti í síðasta sæti keppninnar. Atriðið fékk þrjú stig á undankvöldi keppninnar, minnst allra þjóða.

Sviss sigurvegari Eurovision 2024
Sviss er sigurvegari Eurovision árið 2024. Nemo flutti lagið The Code og sigraði í Malmö í Svíþjóð fyrir hönd Sviss og bar sigur úr býtum að lokum.

Eurovision-vaktin: Nemo vann á dramatísku kvöldi í Malmö
Söngkvárið Nemo frá Sviss stóð uppi sem sigurvegari þegar úrslitakvöld Eurovision fór fram í Malmö í kvöld. Hán söng lagið The Code með miklum tilþrifum og naut hylli bæði meðal dómnefnda Evrópa og þeirra sem kusu í símakosningu.

Hollenska söngvaranum bannað að keppa í kjölfar „hótana“
Hollenska söngvaranum Joost Klein hefur verið meinað að keppa í úrslitakvöldi Eurovision í kvöld. Forsvarsmenn söngvakeppninnar lýstu því yfir í dag, eftir að hann var yfirheyrður í gær.

Bashar Murad endurgerir palestínskt lag föður síns
Bashar Murad sendir í dag frá sér smáskífuna, Stone, af væntanlegri plötu sem hann er að vinna með Einari Stef. Lagið er endurgerð af lagi sem hljómsveit föður hans gaf út.

Baulað á Ísrael sem flaug áfram í úrslitin
Nú liggur fyrir hvaða þjóðir keppa á úrslitakvöldi Eurovision í Malmö. Síðara undanúrslitakvöldið fór fram í kvöld þegar tíu þjóðir tryggðu sér sæti í úrslitunum. Þátttaka Ísraels þykir afar umdeild en sjónvarpsáhorfendur í Evrópu kusu Ísrael áfram í úrslitin.

Baulað á keppanda Ísrael á æfingu
Hótanir hafa borist ísraelska Eurovision-teyminu og keppandinn hefur varla yfirgefið hótelherbergi sitt vegna þessa. Baulað var á hana á æfingu í gær en hún stígur á svið í Malmö í kvöld, á síðara undanúrslitakvöldi keppninnar.

Hera Björk fékk sprengjubrot að gjöf
Hera Björk Eurovison-fari segist djúpt snortin eftir að henni barst listaverk og myndir úr sprunginni eldflaug að gjöf, sem úkraínsk börn höfðu búið til. Úkraínski fjölmiðillinn Razom færði Heru gjöfina fyrir undankeppnina í Malmö í gær.

Eurovision-hópurinn afklæðist milli atriða
Bakraddasöngvarar Heru Bjarkar klæðast glæsilegum svörtum klæðnaði með gylltu kögri í stíl við gylltan samfesting Heru á sviðinu í kvöld. Þrátt fyrir glæsileikann þykir fatnaðurinn með eindæmum óþægilegur og er hópurinn fljótur að henda sér í kósýgallann á milli rennsla.

Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld
Ekki tókst að selja í öll auglýsingaplássin sem í boði eru á RÚV á meðan fyrri undankeppni Eurovision fer fram í Malmö í kvöld. Færri auglýsingar hafa selst fyrir keppnina en búist var við.

Nánast engar líkur taldar á að Hera komist áfram
Hera Björk stígur á svið í Málmey í Svíþjóð á fyrra undankvöldi Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í kvöld. Veðbankar telja hverfandi líkur á að hún taki þátt í lokakeppninni á laugardagskvöld.

Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision
Sænsk löggæsluyfirvöld hafa aukið viðbúnað í Malmö áður en Eurovision-vikan hefst, bæði vegna keppninnar og mótmælafundanna sem hafa verið boðaðir í borginni á sama tíma.

Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni
Skipuleggjendur Eurovision hafa ákveðið að banna palestíska fánann og skilti með pólitískan boðskap inni í Malmö Arena þar sem keppnin fer fram dagana 7. til 11. maí.

Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm
Karl og kona á 75. aldursári létust þegar bíll hafnaði í sjónum nálægt Stokkhólmi við Furusund. Verið var að aka bílnum um borð í ferju þegar bíllinn fór fyrir borð.

Er fyrirmyndarríkið Ísland í ruslflokki í sorpmálum?
Flokkun á sorpi er að færast í aukana og er það vel, en hvað svo? Félagi minn sem var á ferð fyrir vestan sá þrjár sorptunnur fyrir utan heimili eitt, sem er varla frásögu færandi, nema að á eina tunnuna var skrifað „Fíflholt“ á aðra „Danmörk“ og á þriðju „Svíþjóð“.