Ísafjarðarbær

Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út
Lögreglan á Vestfjörðum fékk fyrir skömmu tilkynningu um að hvítabjörn hafi gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum.

Ákall um aðgerðir!
Það þarf oft alvarlega atburði svo stjórnvöld vakni við og grípi til aðgerða og sá alvarlegi atburður sem varð þegar farþega rúta brann rétt utan við gangnamunna Vestfjarðarganga hlýtur að vekja stjórnvöld við og að ráðist verði í viðunandi ráðstafanir í Vestfjarðargöngum sem eru orðin eins og rússnesk rúlletta með mikilli umferð og einbreiðum göngum að stærstum hluta.

Funda með Vegagerðinni um Vestfjarðagöng
Rútan sem kviknaði í nálægt Ísafirði fyrir helgi var nýkomin út úr Vestfjarðagöngunum. Slökkviliðið fundar með Vegagerðinni á næstunni og segir slökkviliðsstjórinn að með aukinni umferð um göngin þurfi að tvöfalda einbreiðu kaflana.

„Við erum hundfúl yfir þessu“
Bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar var í síðustu viku falið að krefja Vegagerðina svara um stöðu framkvæmda á Dynjandiheiði, en aðeins sjö kílómetra vantar upp á að bundið slitlag verði á heiðinni allri. Svarið sem barst var einfalt; fjármagn skortir og ekkert verður aðhafst í bili.

Rúta í ljósum logum á Ísafirði
Eldur logar í rútu í Tungudal í Ísafirði. Slökkvilið á Ísafirði sinnir verkefninu en getur engar frekari upplýsingar veitt að svo stöddu.

Manngerðar hörmungar á Flateyri
Spilling íslenska kvótakerfisins birtist m.a. í furðulegum undirlægjuhætti stjórnvalda með þeim stóru í greininni á meðan nýliðun er gerð erfiðari og nánast útilokuð. Það er t.d. gert með sérstökum vigtarreglur fyrir þá stóru sem reka, samhliða útgerð, eigin fiskvinnslu og eru reglurnar þeim mun hagstæðari en þær reglur sem gilda fyrir þá minni. Afleiðingin er hröð samþjöppun í greininni og byggðaröskun.

Björgunarsveit í fýluferð vegna neyðarblyss
Áhöfn björgunarskipsins Gísla Jóns á Ísafirði var kölluð út á laugardagkvöldið eftir að tilkynning barst frá íbúa sem hafði séð fleiri en eitt neyðarblys á lofti í firðinum. Sveitin var síðar afturkölluð eftir að ljós kom að blysunum hafði verið skotið á loft af hópi fólks sem hafði komið saman vegna hátíðarhalda fyrir utan veitingastað á Skutulsfjarðareyri.

Sjö sóttu um embætti héraðsdómara
Sjö umsækjendur voru um tvö embætti héraðsdómara sem dómsmálaráðuneytið auglýsti lausar til umsóknar í ágúst.

Skútur rekur á land í röðum
Þrjár skútur hefur rekið í land við Pollinn á Ísafirði það sem af er degi, eftir að hafa slitnað af legufærum í höfninni. Einni skútunni var komið í tog í morgun og bjargað en of slæmt er í sjóinn eins og er til að bjarga hinum tveimur.

Skúta slitnaði frá bryggju í aftakaveðri fyrir vestan
Bálhvasst hefur verið á Norðvesturlandi og á Vestfjörðum í morgun og björgunarsveitum á svæðinu hafa borist fjölmargar tilkynningar. Á Ísafirði slitnaði lítil skúta frá bryggju og rak upp í grjótgarðinn við Pollinn.

Skólabörn óttuðust mann sem sofnaði á bekk í almenningsgarði
Lögreglan á Vestfjörðum kom manni í andlegu ójafnvægi undir læknishendur í gær eftir að tilkynnt var um veru hans í almenningsgarði á Ísafirði. Hann hafði legið sofandi á bekk í garðinum yfir nóttina og þegar kennsla hófst í grunnskóla bæjarins hafði maðurinn vaknað og nemendur orðið hræddir við hann.

Tæplega þrjátíu missa vinnuna á Vestfjörðum
Tæplega þrjátíu starfsmönnum Vestfirskra verktaka var sagt upp störfum á föstudaginn. Framkvæmdastjóri segir verkefnastöðu ekki nógu góða auk þess sem eigendurnir ætli hvort í sína áttina.

Elsti karlmaður landsins fallinn frá
Karl Sigurðsson, elsti íslenski karlmaðurinn, er fallinn frá 106 ára að aldri. Karl fæddist á Ísafirði þann 14. maí 1918 og var skírður 1. desember 1918 á sama degi og Ísland varð fullvalda. Karl lætur eftir sig stóran hóp afkomenda.

Handbært fé þúsundfaldaðist milli ára
Handbært fé eignarhaldsfélags Guðmundar Fertrams Sigurjónssonar, forstjóra Kerecis, ríflega þúsundfaldaðist milli áranna 2022 og 2023, úr tæpum ellefu milljónum króna í tæpa þrettán milljarða króna.

Gott að eldast á Vestfjörðum
Nú standa stjórnvöld fyrir vegferðinni „Gott að eldast“ þar sem tekið er utan um málefni eldra fólks með nýjum hætti þar sem aðgerðaráætlun er fylgt eftir til að tryggja betri þjónustu við eldra fólk, meðal annars með samþættingu á þjónustu, forvörnum, heilsueflingu og aukinni virkni.

Engar fundargerðir um tjón á kvíum og einn dagur í starfsþjálfun
Matvælastofnun fann sjö frávik, þar af fimm alvarleg, í reglubundinni úttekt stofnunarinnar á starfstöð fiskeldisfyrirtækisins Arctic Sea Farm hf. í Dýrafirði í vor. Að mati stofnunarinnar voru alvarleg frávik frá gæðakröfum hvað varðar eldisbúnað, þjálfun starfsfólks, gæðahandbók og innra eftirlit og úttektir. Þá gerir MAST einnig athugasemdir við eftirlit og viðgerðir fyrirtækisins á netapokum og við verklagsreglur.

Öllum velkomið að skoða fornminjar á Hrafnseyri
Það verður mikið um að vera á Hrafnseyri við Arnarfjörð á morgun, sunnudag, því þá verður sérstakur fornminjadagur þar sem gestum og gangandi er boðið að fá kynningu á fornminjum á Hrafnseyri, auk þess að skoða Auðkúlu, en þar hefur verið grafið upp landnámsbýli.

Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar
Sigurgeir Svanbergsson synti í gær frá Flateyri til Holtsstrandar og sló hraðamet í sundinu sem hann vill kalla Drengjasund. Sigurgeir stundar sjósund til að berskjalda sig fyrir því sem honum þykir óþægilegt. Hann segir hafi geta verið hættulegt og skelfilegt en það jafnist ekkert á við tilfinninguna að skríða upp hinum megin.

Rýna ekki frekar í þyrlubjörgun við Fljótavík
Landhelgisgæslan ætlar ekki að rýna frekar í þyrluútkall til að sækja ferðamann við Fljótavík á norðanverðum Vestfjörðum umfram það sem hefðbundið er. Slökkviliðsstjóri á Ísafirði taldi björgun mannsins „vísi að misnotkun“ á neyðarþjónustu Gæslunnar.

Neyðarþyrluflug með ferðamann á Jökulfjörðum „vísir að misnotkun“
Slökkviliðsstjórinn á Vestfjörðum telur það „vísi að misnotkun“ á neyðarþjónustu Landhelgisgæslunnar að þyrla hafi sótt bandarískan ferðamann sem óskaði eftir aðstoð á Jökulfjörðum. Landhelgisgæslan hefur ekki á dagskrá að kryfja málið frekar.

Tölum endilega íslensku, takk
Um þessar mundir eiga sér íslenskunámskeið Háskólaseturs Vestfjarða stað á Ísafirði. Námskeið í íslensku sem annað mál eins og gefur að skilja. Árlegur viðburður. Íbúar Ísafjarðar ættu orðið að þekkja það íslenskuþyrsta fólk sem námskeiðin sækir.

Sóttu veikan göngumann á Hornstrandir
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti veikan göngumann á Hornstrandir á tíunda tímanum í morgun. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús á Ísafirði.

Covid-faraldur fyrir vestan: „Maður hélt að þetta væri liðin tíð“
Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, var án þónokkurra leikmanna þegar lið hans sótti HK heim í Bestu deild karla um helgina. Leiknum lauk 1-1 en veikindi herja á Vestramenn.

Sæmdur fálkaorðu fyrir endurreisn safns Samúels Jónssonar
Forseti Íslands sæmdi í gær þýska myndlistarmanninn Gerhard König riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf hans í þágu varðveislu íslenskrar menningarsögu. Gerhard er frá Þýskalandi og hefur í yfir aldarfjórðung unnið að endurreisn listasafns Samúels Jónssonar í Selárdal í Arnarfirði.

Sækja slasaðan göngumann á Hornstrandir
Björgunarfélag Ísafjarðar var boðað í morgun til björgunaraðgerða í Hornvík þar sem maður hafði slasast á fæti.

Kæra MAST vegna rekstrarleyfis til Arnarlax
Fjöldi einstaklinga og samtaka hefur lagt fram kæru á hendur Matvælastofnun – MAST – vegna útgáfu á rekstrarleyfi til fiskeldis í Óshlíð, Drangsvík og Eyjahlíð sem dagsett er 13. júlí til Arnarlax.

„Það hefur í raun og veru ekkert sumar komið hjá okkur“
Það var sumar í tvo daga á Snæfellsnesi að sögn björgunarsveitarmanns á svæðinu þar sem gular viðvaranir hafa verið í gildi. Tré rifnuðu upp með rótum á Þingeyri í gær og hjólhýsi fuku í Húnavatnssýslu.

Tók myndband af óveðrinu og þá féll grein beint fyrir framan hana
Gríðarlegt rok var á Þingeyri í gær. Mörg tré brotnuðu og nokkur féllu til jarðar með rótum. Íbúi sem ætlaði að festa óveðrið á filmu þurfti að koma sér inn eftir að stór grein féll beint fyrir framan hana.

Bein útsending: Guðmundur Fertram tilnefndur til virtra nýsköpunarverðlauna
Evrópsku nýsköpunarverðlaunin, European Inventor Award, verða veitt við við hátíðlega athöfn í Valetta á Möltu klukkan 10 að íslenskum tíma. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, er einn þriggja tilnefndra í flokki iðnaðar fyrir uppfinningu sína á því hvernig nota megi fiskroð til að græða sár.

Bifhjólamaðurinn á Vestfjörðum ekki í lífshættu
Svo virðist sem bifhjólaslysið sem varð í norðanverðum Arnarfirði í gær hafi komið til vegna óhapps. Engin umferðarlagabrot virðast hafa átt stað, segir Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum.