Ögmundur Jónasson

Ísland úr NATO!
Friðarferlið sem tyrknesk yfirvöld og forysta Kúrda hafa unnið samkvæmt undanfarin tvö ár er í uppnámi. Grun hef ég um að til þess sé leikurinn gerður.

Hugleiðingar um hagsmuni
Sérhagsmuni og almannahagsmuni hefur borið mjög á góma í sumar.

LÍN breytingar til að skerða og miðstýra
Ég tel hyggilegt að við höldum okkur við núverandi námslánakerfi, helst með enn stífari tekjutengingu afborgana.

Fyrst Þingvellir svo allir hinir!
Gestkomandi vinkona okkar dvaldi hjá okkur um einnar viku skeið um síðustu mánaðamót. Við fórum víða um, skoðuðum söfn í Reykjavík, Bláa Lónið, Krísuvík og Víkingasafnið í Reykjanesbæ.

Leiðari Fréttablaðsins og hvatning Hjörleifs
Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar prýðilegan leiðara í Fréttablaðið miðvikudaginn 8. júlí um virkjanir og orkumál undir heitinu "Að byrja verkið á öfugum enda“.

Ákall til fjölmiðla
Lýðræðisþjóðfélög Vesturlanda byggja á þrískiptingu ríkisvalds. Á okkar söguskeiði var það franski lögspekingurinn Montesquieu, sem greindi þetta vald í þrjá þætti, löggjafarvald, framkvæmdarvald og dómsvald.

Heilbrigðisþjónustunni á ekki að breyta í kyrrþey
Það mun hafa verið undir aldarlokin að kunningi minn lá banaleguna á Borgarspítalanum í Reykjavík með óviðráðanlegt krabbamein. Á sjúkrahúsinu fékk hann þá umönnun og þjónustu sem völ var á. Þó ekki alveg.

Hagsmunabarátta á Alþingi
Pistlahöfundur Fréttablaðsins, Sif Sigmarsdóttir rithöfundur, skrifar mikinn vandlætingarpistil um framgöngu mína í deilum um áfengisfrumvarpið á þingi, síðastliðinn föstudag.

Afturhaldið í áfengismálum
Alþingismenn sem ákafast berjast fyrir því að koma áfengi inn í almennar matvöruverslanir telja sumir hverjir að þeir séu eins konar kyndilberar framfara. Þetta er mikill misskilningur.

TiSA
TiSA hljómar einsog kisa. Kisa og TiSA eiga ýmislegt sameiginlegt, fara hljóðlega um, læðast og læðupokast, saklaus á að sjá, þótt í eðlinu sé að finna grimma og óvægna þætti.

„Þvílík skömm“
Á síðasta degi liðins árs birtist leiðari í Fréttablaðinu sem fjallaði um meðferð embættis Sérstaks saksóknara á málum sem embættið hefur haft til meðferðar. Áður hafði Fréttablaðið – sem stundum fyrr – slegið upp fréttum af meintri valdníðslu

Biðlaunaréttur endurvakinn
Í fyrirtækjum sem starfa á markaði tíðkast svokallaðir starfslokasamningar. Sama gildir um ýmsar stofnanir á vegum hins opinbera. Sérstaklega þær sem starfa sem hlutafélög. Ástæðan fyrir því að þessar stofnanir voru gerðar að hlutafélögum var einmitt sú að með því móti yrði unnt að hafa réttindi af hinum almenna starfsmanni

Viðskiptaráð vill reyna afur
Á tíunda áratug síðustu aldar og upphafsárum nýrrar aldar var Viðskiptaráð og forveri þess, Verslunarráðið, óhemju duglegt. Þetta var í aðdraganda hrunsins.

Inn um bakdyrnar á náttúrupassa
Náttúrupassi Ragnheiðar Elínar Árnadóttur ferðamálaráðherra er með furðulegri uppátækjum í íslenskum stjórnmálum síðari tíma. Hugdetta um náttúrupassa kemur fram. Ráðherrann bítur hana í sig, í ljós kemur að þorri manna er henni andvígur en ráðherrann heldur engu að síður staðfastlega áfram göngu sinni

Þeytum flautur gegn einelti og kynferðisofbeldi
Þetta er ekki fyrsta greinin sem við undirrituð sendum frá okkur í tilefni af alþjóðlegum degi gegn einelti, 8. nóvember. Upphaflega áttum við samræður um einelti á árinu 2009 þegar annað okkar var heilbrigðisráðherra og hitt aktívisti

ÁTVR og SÁÁ
Í mig hringdi gallharður markaðssinni – alvöru kunnáttumaður í markaðsfræðum og flokksbundinn sjálfstæðismaður. Hann sagðist afar ósáttur við málflutning þeirra samflokksmanna sinna sem stæðu að frumvarpi um að leggja niður ÁTVR

Er að vakna skaðabótaskylda?
Í sumar lagði einstaklingur, sem hefur verið háður fjárhættuspilum, fram kæru á hendur rekendum spilakassa og íslenska ríkinu fyrir að valda honum ómældu fjárhagslegu og heilsufarslegu tjóni með því að nýta sér veikleika hans í ábataskyni.

Ein kredda er ekki betri en önnur
jonhakon@frettabladid.is og sme@frettablaidid.is fjalla í örpistli á leiðarasíðu Fréttablaðsins um afstöðu mína til ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins um að sekta Mjólkursamsöluna um 370 milljónir fyrir meint brot á samkeppnislögum:

Endurtekin umræða um hleranir
Sagan endurtekur sig og ekki gerist það ósjaldan í heimi stjórnmálanna. Nú er hafin umræða um eftirlit með framkvæmd símhlerana sem er nánast samhljóða umræðu sem átti sér stað fyrir þremur árum síðan.

Vanhæfir stjórnendur fá liðstyrk
Á starfsferli mínum hef ég kynnst mörgum góðum forstöðumönnum stofnana ríkis og sveitarfélaga. Kæmu upp erfiðleikar í starfseminni þá voru þeir leystir.

Einkaframkvæmd Landspítala er galin
Fjölmiðlar greina frá því að þeir sem á fínu máli kallast "fagfjárfestar“ vilji fjármagna nýjan Landspítala með eignatryggðri fjármögnun, þannig að kostnaðurinn við bygginguna myndi ekki lenda á ríkisreikningi.

Enn ekki búið að slátra Íbúðalánasjóði
Enn er ekki búið að sálga Íbúðalánasjóði þrátt fyrir fagnaðarlæti suður í Brüssel yfir framkomnum hugmyndum í ríkisstjórn um breytingar á sjóðnum.

Handónýt ríkisstjórn?
Þegar ég kom inn á þing um miðjan tíunda áratuginn minnist ég kröftugs málflutnings gegn kvótakerfinu. Með því væri verið að færa tilteknum aðilum eignarhald á sjávarauðlindinni. Framsalið væri augljósasta vísbending þessa auk veðsetningar á óveiddum afla.

Byrjað að stela?
Það sem ég hef óttast mest af hálfu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks er að hún steli af þjóðinni eignum hennar. Sporin hræða. Skyldu menn almennt gera sér grein fyrir því að þrátt fyrir allt bölmóðstalið á sínum tíma, báru ríkisbankarnir sig alla tíð bærilega og voru fullkomlega sjálfbærir.

Eignarnám hér en ekki þar
Það var engan bilbug að finna á Ragnheiði Elínu Árnadóttur iðnaðarráðherra þegar hún mætti í sjónvarpsþátt á dögunum til að réttlæta eignarnám á landi undir rafmagnslínu á Suðurnesjum.

Misvísandi yfirlýsingar innanríkisráðherra
Mér vitandi er ekkert dæmi þess að önnur ríki birti persónugreinanlegar upplýsingar um hælisleitendur og fjarri fer að ég hafi lagt slíkt til. Í frumvarpi því sem ég lagði fyrir Alþingi á síðasta kjörtímabili var skýrt að persónuupplýsingar ættu, eftir sem áður, að vera trúnaðargögn. Enda eiga hælisleitendur að njóta friðhelgi eins og allir aðrir einstaklingar sem hafa mál til meðferðar hjá stjórnvöldum.

Ekki sundra Orkuveitu Reykjavíkur!
Samkvæmt tilskipun Evrópusambandsins skal orkufyrirtækjum sundrað í einingar sem annast vinnslu, dreifingu og sölu á orku og jafnframt ber að aðskilja rækilega rekstur sem flokkast undir samkeppnisrekstur frá starfsemi sem heyrir undir einkaleyfisrekstur.

Baráttudagur gegn einelti og kynferðisofbeldi
Allir dagar eiga að vera baráttudagar gegn einelti og kynferðisofbeldi. Morgundagurinn, 8. nóvember, er þó sérstakur að því leyti að hann hefur verið helgaður þessari baráttu, fyrir alla aldurshópa.

Spurt að gefnu tilefni
Fram hefur komið að ríkisstjórnin vill leita leiða til að einkavæða samgöngukerfið. Einkaaðilar eignist til skamms eða langs tíma flugvelli, hafnir og vegi. Verktakarnir komi með fjármagn í uppbyggingu þessara mannvirkja og rukki síðan notendur. Með þessu móti yrði hægt að lækka skatta en láta notendur borga.

Skattheimta og skipulagsvald til verktaka
Í nýframlögðu fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar er skorið niður um 750 milljónir til almennra framkvæmda í samgöngum. Jafnframt segir ríkisstjórnin að hún vilji ríkari þátttöku einkaaðila í samgönguverkefnum. Hvað þýðir þetta?