Kvöldfréttir Stöðvar 2
22 23 24 25 26 27 28 29 30 … 62 ›
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dómsmálaráðherra telur ekki ástæðu til að endurskoða brottflutning hælisleitenda til Grikklands, ólíkt félagsmálaráðherra Vinstri grænna, sem telur hollt að taka þá umræðu. Á þessari stundu stendur til að vísa 98 flóttamönnum úr landi sem hér eru, en af þeim finnast ekki 39. 116 hefur verið komið úr landi það sem af er ári. Snorri Másson fer ítarlega yfir þessi mál í kvöldfréttatímanum á slaginu 18:30 en hart var tekist á um þau á Alþingi í dag. Innlent 7.11.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bjarni Benediktsson var í dag endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins og hlaut 59 prósent atkvæða á móti Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Guðlaugur sér ekki eftir að hafa boðið sig fram og hefur engar áhyggjur af sínum pólitíska ferli. Við förum yfir formannskjörið í kvöldfréttum okkar í kvöld. Innlent 6.11.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þingmaður Viðreisnar segir meinta ólöglega vopnasölu föður ríkislögreglustjóra og takmarkaða rannsókn lögreglu á henni mjög óþægilega. Efla þurfi eftirlit með störfum lögreglu svo traust almennings á henni rýrni ekki. Innlent 5.11.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Aldrei hafa jafn margir beðið eftir plássi á hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og nú. Yfir þrjú hundruð manns eru á biðlista en dæmi eru um fólk hafi beðið í meira en ár. Í kvöldfréttum verður rætt við dóttur áttatíu og níu ára konu sem bíður eftir plássi segir langa bið hafa orðið til þess að móðir hennar hafi misst allan lífsþrótt. Innlent 4.11.2022 18:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Skólastjóri Fjölbrautarskólans við Ármúla segir framkomu stjórnvalda við tvo íraska nemendur skólans svo ómannúðlega að það er engu lagi líkt. Nemendurnir voru teknir höndum af lögreglu á leið heim úr skólanum í gær og svo sendir úr landi, líkt og fjöldi annarra í umdeildri fjöldabrottvísun á hælisleitendum. Við fjöllum ítarlega um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30, ræðum við forsætisráðherra og förum yfir þá gríðarlegu gagnrýni sem dunið hefur á stjórnvöldum í dag. Innlent 3.11.2022 18:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Byssusmiður, sem segist hafa breytt tveimur ólöglegum og hálfsjálfvirkum rifflum sem faðir ríkislögreglustjóra seldi, segir engan innan lögreglunnar hafa viljað snerta á málinu. Erfiðlega hefur gengið að fá svör frá lögreglu og öðrum viðeigandi yfirvöldum í dag; fulltrúar benda hvern á annan. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 2.11.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum förum við yfir það helsta í mestu aðhaldsaðgerðum Reykjavíkurborgar frá hruni. Einar Þorsteinsson verðandi borgarstjóri segir að tryggja þurfi sjálfbæran rekstur og skapa svigrúm til fjárfestinga. Við heyrum einnig álit oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni á aðgerðunum. Fréttir 1.11.2022 18:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stjórnarþingmenn telja ólíklegt að hægt verði að halda stjórnarsamstarfinu áfram verði Guðlaugur Þór kjörinn nýr formaður flokksins næstu helgi. Stjórnmálaskýrandi segir formannsslaginn hreinlega snúast um hvort blása eigi til þingkosninga í ár. Farið verður yfir málið og fyrirkomulag formannskjörsins í kvöldfréttum Stöðvar 2. Fréttir 31.10.2022 17:59
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra vill að Sjálfstæðisflokkurinn verð langstærsti flokkur landsins og býður sig fram á móti sitjandi formanni. Bjarni Benediktsson ætlar að hætta í pólitík ná hann ekki endurkjöri á Landsfundi flokksins um næstu helgi. Við fjöllum ítarlega um vendingar dagsins í kvöldfréttum klukkan 18:30 og ræðum við Bjarna Benediktsson í beinni útsendingu. Innlent 30.10.2022 18:10
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Algjör endurnýjun varð á forystu Samfylkingarinnar á landsfundi flokksins um helgina. Nýr formaður boðar endurreisn velferðarkerfisins og breytingar í flokknum. Hún svarar því ekki beint hvort hún útiloki ríkisstjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum, en fór þó hörðum orðum um hann í stefnuræðu. Við fjöllum um landsfundinn og ræðum við nýkjörna stjórnarmeðlimi í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 29.10.2022 18:16
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Logi Einarsson sagði í kveðjuræðu sinni á landsfundi Samfylkingarinnar í dag að jafnaðarstefnan væri svarið við úrlausn risavaxinna vandamála samtímans vegna misskiptingar, sóunar og loftslagsbreytinga. Kristrún Frostadóttir tekur við formannsembætti flokksins í kvöld og við ræðum við hana í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 28.10.2022 17:58
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Svartur reykur hefur legið yfir Akranesi og nærliggjandi svæði eftir að mikill eldur kom upp í um eitt hundrað bílhræjum við bæjarmörkin í dag. Framkvæmdastjóri Málma endurvinnslu segir eldinn hafa breiðst hratt út og að stoltið sé sært vegna atviksins. Við verðum í beinni þaðan í kvöldfréttum og ræðum við slökkvilið um stöðu mála. Innlent 27.10.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjármálaráðherra er með frumvarp í undirbúningi þannig að hægt verði að slíta ÍL sjóði á næsta ári en segist helst vilja semja við kröfuhafa þannig að ekki þurfi að leggja frumvarpið fram. Stjórnarandstöðuþingmenn saka ráðherra um að ætla að varpa skuld sjóðsins yfir á lífeyrissjóðina. Innlent 26.10.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þingmenn tókust harkalega á um stöðu fólks sem sækir um alþjóðlega vernd á Íslandi á Alþingi í dag. Dómsmálaráðherra segir stefna í að fjörutíu sinnum fleiri sæki um vernd á þessu ári en í fyrra. Stjórnarandstöðuþingmenn sökuðu ráðherra um brot á ýmsum lögum. Innlent 25.10.2022 18:01
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Rishi Sunak verður næsti forsætisráðherra Bretlands og sá þriðji á þessu ári. Stjórnarandstaðan kallar eftir kosningum og segir Íhaldsmenn ekki geta teflt fram nýjum leiðtoga í hverjum mánuði. Innlent 24.10.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Maður sem kærði gróf kynferðisbrot sem hann varð fyrir í æsku hefur áhyggjur af því að meintur gerandi haldi áfram að brjóta á börnum þar sem málið er nú fyrnt. Meintur gerandi sé veikur og hættulegur. Tveir aðrir hafa stigið fram og kært sama mann. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt að auki við réttarsálfræðing um kæruferli og fyrnd brot. Innlent 23.10.2022 17:53
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Barnshafandi kona á Egilsstöðum þarf að flytja alla fjölskyldu sína til Akureyrar yfir jólin þar sem ljóst þykir að hún muni ekki geta fætt barn í Neskaupstað. Þar finnst enginn skurðlæknir til að vera á vakt. Þetta er ástand sem þarf að breytast, segir konan, sem sjálf er hjúkrunarfræðingur. Aðeins er hægt að ganga út frá fæðingarþjónustu vísri árið um kring á þremur stöðum á landinu. Innlent 22.10.2022 18:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra hefur verið lagt fram á Alþingi. Í frumvarpinu er meðal annars kveðið á um að réttindi þeirra sem fá synjun um alþjóðlega vernd falli niður þrjátíu dögum frá endanlegri ákvörðun. Innlent 21.10.2022 18:14
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Þyngstu dómar sem fallið hafa í fíkniefnamáli hér á landi féllu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Það voru tveir sakborningar í Saltdreifaramálinu svokallaða sem hlutu dómana, sem hljóða upp á tólf ára fangelsi. Þrír aðrir voru dæmdir í fangelsi og verjendur hafa þegar ákveðið að áfrýja dómnum. Hallgerður Kolbrún var í héraðsdómi. Fjallað er um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 ásamt ýmsu öðru. Innlent 20.10.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Móðir tólf ára stúlku sem reyndi að svipta sig lífi vegna hrottalegs eineltis segir það skelfilegra en orð fá lýst að horfa upp á samnemendur kvelja dóttur hennar svo mánuðum skiptir. Málið vakti mikla athygli í dag en við ræðum við mæðgurnar í kvöldfréttum. Innlent 19.10.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Tvöfalda þarf orkuframleiðslu í landinu á næstu átján árum til að ná fram markmiðum um orkuskipti miðað við núverandi orkunýtingu Íslendinga. Umhverfis- orku- og loftslagsráðherra segir að flókið geti reynst að ná fram nauðsynlegri pólitískri samstöðu um þetta en telur alla sammála um markmiðin. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 18.10.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Móðir drengs sem veiktist mjög í myglunni í Fossvogsskóla segir son sinn enn ekki geta verið innan veggja skólans þrátt fyrir endurbætur. Hún vonar að fljótt verði greitt úr vandanum - annars verði borgin að finna nýjan skóla fyrir son hennar. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 17.10.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Taka þarf ofbeldi meðal barna og ungmenna föstum tökum að sögn framkvæmdastjóra Barna- og fjölskyldustofu. Þrír fjórtán ára drengir réðust á fólk að tilefnislausu á nokkrum stöðum í miðbænum í gærkvöldi. Innlent 16.10.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Erla Bolladóttir stefnir á að fara með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og ætlar ekki að gefast upp. Dóttir Erlu segir að kerfið hafi greinilega brugðist móður sinni. Við sýnum frá samstöðufundi sem fram fór í dag. Innlent 15.10.2022 17:55
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Dómsmálaráðherra segir nauðsynlegt að koma á fót nýju búsetuúrræði svo takmarka megi för flóttamanna fyrir brottvísun. Stjórnvöld hafi misst stjórn á stöðunni og stíga þurfi fast til jarðar. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við þingmann stjórnarandstöðunnar í beinni útsendingu. Innlent 14.10.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Neyðarskýli fyrir heimilislausa verða ekki opnuð á daginn. Þetta segir formaður velferðarráðs borgarinnar sem vill fjölga búsetuúrræðum en ekki neyðarskýlum. Heimilislaus maður segir nauðsynlegt að virkja þá sem búa á götunni enda hafi þeir margt til brunns að bera. Innlent 13.10.2022 18:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Verkalýðsfélögin á almenna vinnumarkaðnum koma að óbreyttu sundruð til viðræðna við stjórnvöld í tengslum við komandi kjarasamninga. Starfandi forseti Alþýðusambandsins segir það skyldu sína að reyna að ná sáttum við þau stóru stéttarfélög sem gengu af þingi sambandsins, sem í dag var frestað fram á næsta vor. Innlent 12.10.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Formenn þriggja stærstu verkalýðsfélaga landsins hafa dregið framboð sín í forsetaembætti ASÍ til baka og íhuga stöðu sína innan sambandsins. Fjallað verður ítarlega um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við verkalýðsleiðtogana. Innlent 11.10.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Aldrei hafa fleiri alvarleg ofbeldisbrot verið skráð hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en á fyrstu níu mánuðum ársins. Brotin hafa ríflega tvöfaldast á fimmtán árum. Lögreglan rannsakar nú hvort saknæmt athæfi hafi átt sér stað þegar kona á sextugsaldri lést um helgina en tveir eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Innlent 10.10.2022 18:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Rafmagnsleysi og víðtækar lokanir á vegum eru helsti skaði sem ofsaveður hefur valdið á landinu í dag. Rauðar viðvaranir eru í gildi á Norðausturlandi, Austurlandi og Suðausturlandi. Björgunarsveitir hafa haft lítið að gera í dag. Við tökum stöðuna á landanum og ræðum við fulltrúa almannavarna í beinni útsendingu. Innlent 9.10.2022 17:59