Kynþáttafordómar
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 10 ›
Aðgerðastefna gegn rasisma og fordómum fyrir réttlátara samfélag Það er sorgleg staðreynd að á Íslandi grasseri fordómar og rasismi. Slíkir fordómar og hatur hafa mikil og neikvæð áhrif á stóran hóp fólks á Íslandi. Það er ekki bara ógagnlegt að afneita vandamálinu og gaslýsa fólk sem upplifir slíka fordóma, heldur er það einnig særandi, skaðlegt og stór hluti vandamálsins. Skoðun 25.4.2022 08:31
Fékk símtal sem allar svartar mæður hræðast Móðir unglingspilts, sem lögregla hafði í tvígang afskipti af vegna leitar að strokufanga í vikunni, segist hafa verið hrædd og niðurlægð þegar lögreglu var sigað á son hennar. Hún telur lögreglu hafa gert alvarleg mistök og segir vitundarvakningu um raunveruleika ungmenna af erlendum uppruna nauðsynlega. Innlent 24.4.2022 19:22
Stígur fram vegna máls sonar síns Claudia Ashanie Wilson lögmaður telur lögreglu á höfuðborgarsvæðinu hafa gert alvarleg mistök við afskipti af sextán ára syni hennar í vikunni. Lögregla vitjaði piltsins í tvígang í tengslum við leit að ungum strokufanga en þeir eru báðir dökkir á hörund. Rætt verður við Claudiu um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 en hún hefur ekki tjáð sig um það við fjölmiðla fyrr en nú. Innlent 24.4.2022 15:38
Segir rauðhærða og skeggjaða oft lenda í „þessu veseni“ Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, telur að fólk þurfi að vera „sérkennilega innréttað“ til að sjá kynþáttafordóma í máli þar sem sextán ára þeldökkur drengur var í tvígang stöðvaður af lögreglu í tengslum við leit hennar að strokufanga. Innlent 22.4.2022 10:21
Lögregla hafi ekki átt annarra kosta völ: „Við erum að leita að hættulegum manni“ Ríkislögreglustjóri segist ekki geta útilokað fordóma í lögreglunni en telur lögreglu ekki hafa sýnt fram á rasisma í tengslum við leitina að strokufanga. Hún segir lögreglu ekki hafa val um að fylgja eftir ábendingum í leit að eftirlýstum manni og að viðbrögð lögreglu hafi verið rétt. Henni þyki leitt að ungur maður hafi dregist inn í málið og að verið sé að ræða hvernig bæta megi aðgerðir í framhaldinu. Innlent 21.4.2022 20:00
Telur mál piltsins ekki merki um rasisma í lögreglunni Doktor í afbrotafræði telur ekki að viðbrögð lögreglu, sem hefur nú haft afskipti af unglingspilti í tengslum við leit að strokufanga tvígang, beri vott um rasisma. Pilturinn er ekkert tengdur málinu en er dökkur á hörund eins og strokufanginn. Innlent 21.4.2022 19:05
Club Brugge notar QR-kóða gegn kynþáttafordómum Belgíska félagsliðið Club Brugge ætlar að fara nýjar leiðir í baráttunni gegn kynþáttafordómum. Félagið hefur prentað út rúmlega 24.000 QR-kóða sem verða límdir aftan á sæti á heimavelli félagsins, Jan Breydel vellinum. Fótbolti 21.4.2022 10:00
Öfgamanni tókst að skapa það upplausnarástand sem hann vildi Páskahelgin í Svíþjóð hefur einkennst af ofbeldisfullum átökum á milli lögreglu og mótmælenda víða um landið. Einn er grunaður um manndrápstilraun á hendur lögreglumanni og fleiri en fjörutíu hafa verið handteknir. Rasmus Paludan, danskur róttækur hægrimaður, á töluverðan hlut að máli. Erlent 18.4.2022 21:30
Kjarninn tók út frétt vegna yfirgengilegs rasisma Vefmiðlinn Kjarninn tók út frétt sem birtist á vefnum vegna persónuárása, rasisma og hatursorðræðu gegn Lenyu Rún Taha Karim, varaþingsmanns Pírata. Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans segir að sig hafi sett hljóðan við lestur ummælanna. Innlent 17.4.2022 19:37
Hefja rannsókn eftir að lögreglumaður skaut svartan mann til bana Lögreglan í Michigan-ríki í Bandaríkjunum rannsakar nú mál hvíts lögreglumanns sem skaut hinn 26 ára Patrick Lyoya, sem var svartur, til bana. Myndbönd sýna átök milli Lyoya og ónefnds lögreglumanns vegna rafbyssu, sem enduðu með því að lögreglumaðurinn skaut Lyoya. Mótmælendur krefjast þess að lögreglumaðurinn verði nafngreindur. Erlent 14.4.2022 08:49
Afkomendur Ásmundar segja listakonurnar vega að æru hans Barnabarn Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara segir listakonurnar Bryndísi Björnsdóttur og Steinunni Gunnlaugsdóttur hafa vegið harkalega að æru Ásmundar þegar þær sögðu styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur rasíska. Innlent 13.4.2022 20:10
Feilskot við Nýló Árið 1938 mótaði afi minn Ásmundur Sveinsson myndhöggvari mynd sem hann kallaði Fyrsta hvíta móðirin. Verk þetta sýnir Guðríði Þorbjarnardóttur en talið er að hún hafi verið fyrsta evrópska konan sem ól barn í Ameríku og var það um árið 1000. Skoðun 13.4.2022 17:01
„Ef það er einu sinni of mikið sagt, þá á ekki að endurtaka það“ Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir að til standi að biðja Vigdísi Häsler, formann Bændasamtakanna, afsökunar. Hann hafi gert það opinberlega en ekki gert það persónulega. Þau munu hittast á morgun. Innlent 7.4.2022 19:10
Formaður Framsóknar vankaður eftir svall á Búnaðarþingi Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, hefur hingað til verið talinn einhver traustasti stjórnmálamaður landsins. Með báða fætur fast á jörðu. En um nótt á Búnaðarþingi á dögunum felldi hann grímu geðfelldninnar með umdeildum ummælum og stendur eftir vankaður pólitískt. Innlent 6.4.2022 13:00
Segist hafa látið ummælin falla í pirringi eftir mikla skemmtun Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir ummæli sín um Vigdísi Häsler framkvæmdastjóra Bændasamtakanna hafa fallið eftir mikinn gleðskap og í pirringi. Sigurður Ingi tjáði sig í fyrsta sinn um málið við fjölmiðla í kvöldfréttum RÚV eftir að hafa komið sér undan fréttamönnum eftir ríkisstjórnarfund í dag. Innlent 5.4.2022 21:34
Ummæli Sigurðar óverjandi Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að Sigurður Ingi Jóhannsson verði sjálfur að ákveða hvort hann þurfi að segja af sér ráðherraembætti vegna ummæla hans um framkvæmdastjóra Bændasamtakanna í síðustu viku. Sigurður Ingi kom sér undan fréttamönnum eftir ríkisstjórnarfundi í dag. Innlent 5.4.2022 20:38
Þvertekur fyrir að Framsókn sé rasískur flokkur Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra þvertekur fyrir að Framsókn sé á einhvern hátt rasískur flokkur og segir það duga þingflokki Framsóknar að Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður flokksins, hafi beðist afsökunar á ummælum sínum um Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Innlent 5.4.2022 15:01
Segir ráðherra reyna að stjórna umræðunni Ragna Sigurðardóttir, forseti Ungra jafnaðarmanna, hefur ýmislegt við hegðun Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra, að athuga. Bæði varðandi ummælin sem hann lét falla í garð Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, en líka hvernig hann hefur kosið að bregðast við eftir að fréttir af atvikinu tóku að spyrjast út. Innlent 5.4.2022 14:39
Ekki komið til umræðu að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist hafa orðið mjög döpur vegna þeirra særandi ummæla sem Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra viðhafði um Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, á Búnaðarþingi. Ekki hafi komið til umræðu innan Vinstri grænna að slíta ríkisstjórnarsamstarfinu hyggist Sigurður Ingi sitja áfram í ráðherrastól. Innlent 5.4.2022 12:23
Brynja telur Sigurð Inga ekki vera rasista: „Við erum mannleg og við skítum stundum upp á bak“ Brynja Dan Gunnarsdóttir, varaþingmaður Framsóknarflokksins, segir það hafa verið ömurlegt og sárt að heyra af ummælum sem Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, lét falla á Búnaðarþingi um helgina. Sigurður Ingi hringdi í Brynju vegna málsins í gær og segir Brynja að hann sé fullur iðrunar. Þá segir hún stigsmunur á að segja eitthvað rasískt og að vera rasisti. Innlent 5.4.2022 11:38
Sigurður Ingi fór undan í flæmingi og fann ekki bílinn Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra vildi ekkert ræða við fjölmiðla að loknum fundi ríkisstjórnarinnar í Ráðherrabústaðnum í morgun. Sigurður Ingi vísaði einfaldlega til yfirlýsingar sinnar á Facebook og sagðist vera búinn að segja það sem hann ætlaði að segja. Innlent 5.4.2022 10:41
„Greinilega persónulegur pirringur“ Sérstök og breytt umræðuhefð á Alþingi var til umræðu í Íslandi í dag í gær. Brynjar Níelsson fyrrverandi þingmaður sagði þar að hluti deilanna sem sést hafi á Alþingisrásinni nýlega séu augljóslega persónulegar. Innlent 5.4.2022 09:15
Ungir jafnaðarmenn krefjast afsagnar Sigurðar Inga Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, hafa krafist afsagnar Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra vegna rasískra ummæla sem beindust að Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, og hann lét falla í boði Framsóknarflokksins í tengslum við Búnaðarþing síðastliðið fimmtudagskvöld. Framkoma aðstoðarmanns ráðherra er jafnframt fordæmd. Innlent 5.4.2022 08:27
„Í öllum öðrum lýðræðisríkjum stæði ráðherra hér og segði af sér“ Þingmaður Pírata segir ekki nóg að ráðherra biðjist afsökunar á rasískum ummælum. Í öllum öðrum lýðræðisríkjum segði hann af sér tafarlaust fyrir brot á eigin lögum. Innlent 4.4.2022 19:10
„Verðum að geta tekið því þegar fólk biðst afsökunar með mjög skýrum hætti“ Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist ekki draga í efa heilindi Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra. Sigurður Ingi kallaði framkvæmdastjóra Búnaðarþings „þá svörtu“ á gleðskap í tengslum við Búnaðarþing í síðustu viku. Innlent 4.4.2022 15:50
Biðst innilegrar afsökunar á orðum sínum um Vigdísi Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra biðst innilegrar afsökunar á orðum sem hann lét falla í garð Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, aðfaranótt föstudags í gleðskap í tengslum við Búnaðarþing. Þetta kemur fram í stuttri færslu Sigurðar Inga á Facebook. Innlent 4.4.2022 14:55
Þingmenn bregðast við frásögn Vigdísar af fordómum Þingmenn úr nokkrum flokkum hafa brugðist við færslu Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, sem segir Sigurð Inga Jóhannsson innviðaráðherra hafa viðhaft særandi ummæli um aðfaranótt föstudagsins síðastliðins á samkomu í tengslum við Búnaðarþing. Innlent 4.4.2022 14:26
Vigdís segir Sigurð Inga hafa viðhaft særandi ummæli Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, segir að innviðaráðherra hafi látið afar særandi ummæli falla í aðdraganda myndatöku á nýafstöðnu Búnaðarþingi. Hún segir særandi að reynt sé að gera lítið úr upplifun hennar. Innlent 4.4.2022 12:49
Unglingur dæmdur í fangelsi fyrir að beita Rashford kynþáttaníði Nítján maður hefur verið dæmdur í sex vikna fangelsi fyrir að beita Marcus Rashford kynþáttaníði á Twitter eftir úrslitaleik Englands og Ítalíu á Evrópumótinu í fótbolta í fyrra. Enski boltinn 30.3.2022 15:30
Hittir strákana sem beittu hann kynþáttaníði Colin Kazim-Richards, leikmaður Derby County, ætlar að hitta unglingsstrákana sem beittu hann kynþáttaníði eftir leik gegn Nottingham Forest á síðasta tímabili. Enski boltinn 11.3.2022 13:00