
Víkingur Reykjavík

Ljóst hvaða liðum Breiðablik, Stjarnan, Valur og Víkingur geta mætt
Á morgun, þriðjudaginn 18. júní, kemur í ljós hvaða liðum Breiðablik, Stjarnan, Valur og Víkingur mæta í Evrópukeppnum karla í knattspyrnu. Hér að neðan má sjá mögulega móthejra liðanna.

Sjáðu Öglu skora úr horni, sjálfsmark sem bjargaði stigi og markaveislu Vals
Áttunda umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta lauk í gær með þremur leikjum og í þeim voru skoruð tíu mörk. Nú er hægt að sjá þessi mörk hér inn á Vísi.

„Auðvitað ekkert ánægður að fá bara eitt stig en þetta var frábær leikur“
John Andrews gat glaðst yfir frammistöðu Víkings í 1-1 jafntefli gegn Tindastóli á Sauðárkróki í dag.

Tindastóll-Víkingur 1-1 | Jafntefli niðurstaðan fyrir norðan eftir spennandi lokamínútur
1-1 jafntefli varð niðurstaðan þegar Tindastóll og Víkingur Reykjavík leiddu saman hesta sína í Bestu deild kvenna í blíðskaparveðri á Sauðárkróki í dag.

Stórskotalið var á blaðamannafundi Vals
Valsmenn voru með skemmtilegan blaðamannafund klukkan 13.00 þar sem hitað var upp fyrir leik Vals og Víkings í Bestu-deildinni.

„Fínt að vera í þessu umhverfi, fá smá mótlæti og brekku“
Fyrir síðasta tímabil skipti Kristall Máni Ingason til danska liðsins Sönderjyske eftir erfiðan tíma hjá Rosenborg í Noregi. Þar fann hann leikgleðina aftur og var einn besti maður liðsins sem tókst að tryggja sér sæti í efstu deild á næsta tímabili.

Undanúrslit Mjólkurbikarsins: Arnar Grétarsson fer á fornar slóðir og bikarmeistararnir fá Stjörnuna
Dregið var í undanúrslit Mjólkurbikars karla í kvöld. Þar munu mætast KA og Valur annars vegar, Víkingur og Stjarnan hins vegar.

Helgi Guðjónss.: Strákarnir vita það að ég kem oftast með fasta bolta fyrir á þá
Helgi Guðjónsson var einn af þeim leikmönnum Víkings sem hafði hvað mest áhrif á útkomu leiks þeirra gegn Fylki í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í kvöld. Hann lagði upp tvö mörk í 3-1 sigri og var ánægður með dagsverkið.

Uppgjörið, myndir og viðtöl: Víkingur - Fylkir 3-1 | Víkingur hreinlega kann ekki að detta úr bikarnum
Víkingur tryggði farseðilinn í undanúrlit Mjólkurbikarsins með famannlegum sigri á Fylki fyrr í kvöld. Leikurinn endaði 3-1 og er hægt að segja að leikurinn hafi verið í höndum heimamanna lungan úr honum. Fylkir ætlaði verjast djúpt og hafði ekki erindi sem erfiði.

„Ég er ekki stoltur af þessu“
Danijel Djuric, leikmaður Víkings, segist hafa lært mikið af atviki sem átti sér stað eftir leik liðsins á Kópavogsvelli þann 30. maí. Hann var í kjölfarið dæmdur í tveggja leikja bann.

Dæmdur í bann fyrir að fleygja „fullum vatnsbrúsa í smettið á trommara“
Danijel Dejan Djuric, leikmaður Víkings í Bestu deild karla, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann og félagið sektað fyrir „vítaverða og hættulega“, „alvarlega og óíþróttamannslega“ hegðun eftir leik gegn Breiðablik á Kópavogsvelli.

„Ætlum að byggja upp til framtíðar“
Handknattleiksþjálfarinn Aðalsteinn Eyjólfsson er fluttur heim til Íslands eftir tæplega tveggja áratuga dvöl erlendis til að taka við liði Víkings.

Sjáðu þrennur Ísabellu og Kristrúnar og öll mörkin
Sautján mörk voru skoruð í 7. umferð Bestu deildar kvenna sem fór fram í gær. Tveir leikmenn gerðu þrennu.

Aðalsteinn tekur við Víkingum
Aðalsteinn Eyjólfsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla í handbolta hjá Víkingi. Hann tekur einnig við sem yfirmaður handknattleiksmála félagsins.

„Ég elska að vera í slagsmálum“
„Tilfinning er mjög góð. Þetta var baráttu sigur í dag og verðskuldaður sigur,“ sagði Kristrún Ýr Hólm, fyrirliði Keflavíkur, í viðtali eftir leik.

„Verður að virða myrkraöfl knattspyrnunnar“
John Andrews, þjálfari Víkings, var ósáttur við tap sinna kvenna á heimavelli gegn Keflavík í Bestu-deild kvenna en kvaðst þó ánægður með frammistöðuna. Hann biðlar til leikmanna sinna virða myrkaöfl knattspyrnunnar, þegar andstæðingurinn reynir að hægja á leiknum.

Uppgjör og viðtöl: Víkingur - Keflavík 0-1 | Annar sigur Keflvíkinga í röð
Keflvíkingum tókst að strengja saman tvo deildarsigra með því að sækja stigin þrjú í Fossvog eftir 0-1 sigur á Víkingum. Sigurinn lyftir Keflavík upp úr fallsæti og upp í það áttunda í Bestu-deild kvenna.

Víkingur hefði átt að fá víti: „Ég skil ekki hvernig hann sér þetta ekki“
Víkingur vann 5-2 sigur á Fylki um síðastliðna helgi. Dómari leiksins hlaut töluverða gagnrýni fyrir að sjá ekki Aron Elís handleika boltann áður en hann jafnaði leikinn 1-1. Mistök geta hins vegar alltaf gerst og það er nokkuð ljóst að mati Stúkunnar að Víkingur hefði átt að fá víti skömmu síðar.

Sjáðu Blikamörkin í Kórnum, Vestra skella Stjörnunni og markaflóðið í Víkinni
Fimmtán mörk voru skoruð í leikjunum þremur í Bestu deild karla í fótbolta í gær.

„Við vorum mjög öflugir í 70 mínútur“
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, þurfti að játa sig sigraðan á móti Íslandsmeisturum Víkings í kvöld. Leikurinn var fjörugur en Árbæingar komust yfir á fyrstu mínútu en þurftu á endanum að sætta sig við 5-2 tap.

„Það bara fauk út í veður og vind í þessu roki“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, stýrði sínum mönnum til sigurs í miklum markaleik í Víkinni í kvöld á móti Fylki. Hann var þó langt frá því að vera hæstánægður með 5-2 sigur.

Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 5-2 | Öruggt hjá meisturunum eftir erfiða byrjun
Úrslitin voru eftir bókinni í Víkinni í kvöld þegar efsta lið Bestu deildar karla mætti því neðsta. Víkingur tók á móti Fylki og sigruðu heimamenn 5-2 í ansi fjörugum leik.

Pablo fékk útkall frá landsliðsþjálfara El Salvador
Víkingurinn Pablo Punyed er á leiðinni í langt ferðalag eftir að hafa verið valinn í landsliðhóp El Salvador.

Líkti stórleiknum við messu: „Saknaði tryllingsins“
Óskar Hrafn Þorvaldsson kallaði eftir meiri ákefð og ástríðu hjá leikmönnum Breiðabliks og Víkings eftir bragðdaufan leik liðsins í Bestu deild karla. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Þvertekur fyrir að hafa unnið gegn Óskari
Sancheev Manoharan, fyrrverandi aðstoðarþjálfari Óskars Hrafns Þorvaldssonar hjá norska úrvalsdeildarfélaginu Haugesund og núverandi aðalþjálfari liðsins, þvertekur fyrir fullyrðingar Óskars þess efnis að hann hafi verið að vinna gegn honum.

„Ég hef mjög gaman af því að æsa Arnar upp“
Óskar Hrafn Þorvaldsson hefur gaman af því að æsa Arnar Gunnlaugsson upp en þeir eru fínir félagar. Þetta er á meðal þess sem fram kom í upphitun fyrir leik Breiðabliks og Víkings á Stöð 2 Sport í gærkvöld.

Sjáðu Víkinga ná stigi í uppbótatíma og Valsmenn leika sér að Stjörnunni
Valsmenn minnkuðu forskot Blika í öðru sætinu en Blikum tókst ekki að minnka forskot Víkinga á toppnum þegar tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Nú má sjá mörkin úr leikjunum á Vísi.

„Óverðskuldað stig sem Víkingar fara með af Kópavogsvelli“
„Ég er bara mjög stoltur af frammistöðunni og því sem menn lögðu í leikinn,“ sagði Halldór Árnason, þjálfari Breiðabliks, eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Víkingum í kvöld.

„Ætla ekki að gráta þessi úrslit of mikið“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var nokkuð sáttur með spilamennsku sinna manna eftir 1-1 jafntefli gegn Breiðabliki í toppslag Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld.

„Svekkjandi, en myndi ekki segja að þetta séu vonbrigði“
„Þetta er svekkjandi, en ég myndi ekki segja að þetta séu vonbrigði,“ sagði Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Víkingum í toppslag Bestu-deildar karla í kvöld.