
Kvikmyndagerð á Íslandi

Fyrsta sýnishornið úr kvikmyndinni Berdreymi
Lífið frumsýnir í dag stikluna fyrir kvikmyndina Berdreymi eftir leikstjórann Guðmund Arnar Guðmundsson.

Tökur eru hafnar við Mývatn á nýrri mynd Hafsteins
Tökur eru hafnar á nýrri mynd leikstjórans Hafsteins Gunnars Sigurðssonar sem er að gera sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd á ensku. Hafsteinn er meðal annars þekktur fyrir myndirnar Undir trénu og París norðursins.

Leigubílstjóri ætlaði sér að keyra tökulið Verbúðarinnar niður
Tíu ár eru síðan hugmyndin að þáttaröðinni Verbúðinni kviknaði. Hjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson segjast ánægð með útkomuna þrátt fyrir að handritið hafi tekið umskiptum nokkrum sinnum í ferlinu og áskoranirnar hafi verið nokkrar.

Dýrið ekki tilnefnt til Óskarsverðlaunanna
Íslenska kvikmyndin Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar hlaut ekki Óskarstilnefningu í flokki erlendra mynda.

Tilnefningar til Óskarsins hafa verið kynntar en Dýrið komst ekki áfram
Í dag verða tilnefningar til Óskarsins árið 2022 kynntar í beinni útsendingu á YouTube-síðu Óskarsverðlaunanna. Í ár eru það Tracee Ellis Ross og Leslie Jordan sem afhjúpa hverjir eiga möguleika á því að vinna verðlaunin þetta árið.

Fyrsta sýnishornið úr Allra síðustu veiðiferðinni
Kvikmyndin Allra síðasta veiðiferðin verður frumsýnd þann 18. mars næstkomandi. Myndin er sjálfstætt framhald Síðustu veiðiferðarinnar en við frumsýnum hér fyrsta sýnishornið úr myndinni.

„Við erum öll í þessu af hjartans list“
„Manni finnst eins og það sé svolítið fullorðins að vinna þessi verðlaun.“

Verbúðin hlaut Norrænu sjónvarpshandritaverðlaunin
Sjónvarpsþættirnir Verbúðin hlutu rétt í þessu Norrænu sjónvarpshandritaverðlaunin á Kvikmyndahátíðinni í Gautaborg í Svíþjóð, Göteborg Film Festival. Rakel Garðarsdóttir deilir þessum gleðifréttum á samfélagsmiðlum.

„Tilvalið tækifæri fyrir íslenskt kvikmyndafólk“
Sprettfiskur er stuttmyndasamkeppni Stockfish kvikmyndahátíðarinnar þar sem markmiðið er að vekja athygli á upprennandi íslensku kvikmyndagerðarfólki.

Bubbi um svörtu gleraugun hjá Hemma Gunn: „Ég var bara út úr stónd“
Bubbi Morthens kveðst muna eftir nánast öllum þeim skiptum sem hann kom fram í þáttum Hemma Gunn. „Það er ástæða fyrir því að ég var alltaf með kolsvört Ray-Ban gleraugu í öllum Hemma Gumm þáttunum, það var bara vegna þess að ég var út úr stónd,“ segir hann.

Verbúðin er því sem næst heilagur sannleikur
Eins og þjóðin komst að í gærkvöldi sprakk allt í loft upp í Verbúðinni. Handalögmál milli tveggja aðalpersóna í þætti sjálfs Hemma Gunn – hið persónulega drama þáttanna er að nálgast hápunkt sinn í 5. þætti af átta. Eins og vera ber ef horft er til byggingar í leikverkum Grikkjanna; ris, hvörf og kennsl – Kaþarsis.

Aníta Briem stígur sín fyrstu skref sem handritshöfundur
Aníta Briem, sem hingað til hefur verið þekkt fyrir leik sinn, hefur lokið skrifum á sjónvarpsþáttaröðinni Svo lengi við lifum. Þáttaröðin er framleidd af Glassriver í samstarfi við Stöð 2. Hún segir þáttaröðina vera óð sinn til ástarinnar.

Stockfish hækkar verðlaunafé í stuttmyndasamkeppninni Sprettfiskur
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Sprettfisk, stuttmyndasamkeppni Stockfish kvikmyndahátíðarinnar sem haldin verður í áttunda sinn dagana 24. mars til 3. apríl á þessu ári. Umsóknarfrestur stendur til 10. febrúar næstkomandi.

Hreiður eftir Hlyn Pálmason valin á Berlinale
Stuttmyndin Hreiður eftir Hlyn Pálmason hefur verið valin í Berlinale Special hluta alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Berlín. Hátíðin fangar 72 ára afmæli sínu nú snemma í febrúar.

Kvikmyndin Berdreymi valin til heimsfrumsýningar á Berlinale
Berdreymi, ný íslensk kvikmynd eftir Guðmund Arnar Guðmundsson, hefur verið valin til þátttöku á Berlinale, alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Berlín, sem fer fram frá 10 til 20. febrúar.

Tuttugu vinsælustu kvikmyndir ársins 2021 á Íslandi
Nýjasta James Bond myndin No Time to Die var tekjuhæsta kvikmynd síðasta árs í kvikmyndahúsum hér á landi. Íslenska kvikmyndin Leynilögga var í öðru sæti listans.

Létu drauminn rætast og opnuðu sviðslistaskóla
Vinirnir Auður Finnbogadóttir, Auður Bergdís Snorradóttir og Guðjón Ragnarsson höfðu lengi átt þann draum að opna leiklistarskóla. Þau voru öll kennarar við söng- og leiklistarskólann Sönglist, en þegar sá skóli hætti starfsemi á síðasta ári ákváðu þau að láta drauminn verða að veruleika og stofnuðu sviðslistaskólann Dýnamík.

Svörtu sandar valdir til frumsýningar á Berlinale kvikmyndahátíðinni
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin BERLINALE hefur valið sjónvarpsþættina Svörtu sanda sem eitt af sjö verkefnum til frumsýninga utan heimalands, fyrst íslenskra þáttasería. Þættirnir eru í sýningu á Stöð 2.

Fyrsta sýnishornið úr nýjustu mynd Balta fyrir Netflix
Entertainment Weekly birti í gær fyrsta sýnishorn úr kvikmyndinni Against the Ice sem Baltasar Kormákur og RVK Studios framleiða. Myndin verður frumsýnd 2.mars á Netflix.

Saumaði út „éttu skít“ meðan hún ræddi við dóttur sína
Fjórði þátturinn af Svörtu söndum, í leikstjórn Baldvin Z, fór í loftið á Stöð 2 á sunnudagskvöldið en þættirnir fjalla um Anítu, þrítuga lögreglukonu, sem neyðist aftur á æskuslóðirnar sem hún flúði fyrir 14 árum.

Spjótin beinast að Fríðu
Þriðji þátturinn af Svörtu söndum, í leikstjórn Baldvin Z, fór í loftið á Stöð 2 á sunnudagskvöldið en þættirnir fjalla um Anítu, þrítuga lögreglukonu, sem neyðist aftur á æskuslóðirnar sem hún flúði fyrir 14 árum.

Elma Lísa var stjörf og stíf þegar hún horfði á Skaupið
Hjónin Reynir Lyngdal, leikstjóri Skaupsins, og Elma Lísa Gunnarsdóttir eiginkona hans, aðalleikari Áramótaskaupsins 2021, eru hæstánægð með hvernig til tókst.

Rasshitamælirinn raunsönn lýsing á líkfundi
Á jóladag var frumsýndur á Stöð 2 fyrsti þátturinn af Svörtu söndum, í leikstjórn Baldvin Z en þættirnir eru framleiddir af Glassriver. Áhorfendur Stöðvar 2 fengu einn þátt á jóladag og síðan aftur þátt á öðrum degi jóla.

Sýnishorn úr íslenska spennutryllinum Harmi
Í dag frumsýnum við sýnishorn úr nýrri íslenskri kvikmynd. Spennutryllirinn Harmur er væntanleg í kvikmyndahús á febrúar en með aðalhlutverk fara Ásgeir Sigurðsson, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir og Jónas Björn Guðmundsson.

Mikið sé gert úr því að landsbyggðarfólk sé rolur og aular
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisfólksins, segir mikið gert úr því í fjölmiðlum og íslenskum kvikmyndum að landsbyggðarfólk sé upp til hópa rolur og aular. Þar vísar hann helst til Verðbúðarinnar, nýrrar þáttaráðar RÚV, sem hann hefur gagnrýnt harðlega í dag.

Feginn góðum viðtökum við Verbúðinni: „Allt sem þú ert að horfa á gerðist“
Gísli Örn Garðarsson, einn af leikstjórum, höfundum og framleiðendum Verbúðarinnar, segir mikinn létti að viðtökur við fyrsta þætti seríunnar hafi verið góðar. Mikil vinna sé á bak við þættina, sem líklega hafi verið endurskrifaðir tuttugu sinnum í gegn.

Ásmundur segir Verbúð lýsa landsbyggðarrasisma RÚV
Ásmundur Friðriksson þingmaður Sjálfstæðisflokksins er afar ósáttur við þá mynd sem dregin er upp af landsbyggðarfólki í Verbúðinni, segir hana lýsa landsbyggðarrasisma Ríkisútvarpsins.

Verbúðin frumsýnd við mikla lukku netverja
Verbúðin, ný þáttaröð úr smiðju Vesturports, var frumsýnd á RÚV í kvöld. Fyrsti þáttur hefur fengið góðar viðtökur landsmanna, ef marka má viðbrögð á netinu. Netverjar virðast sérlega hrifnir af mikilli nekt sem birtist í sjónvarpi allra landsmanna.

Í adrenalínsjokki þegar Dýrið komst á lista Óskarsakademíunnar
Framleiðandi kvikmyndarinnar Dýrsins segist í skýjunum með að kvikmyndin sé ein fimmtán mynda sem eiga möguleika á Óskarstilnefningu í flokki erlendra mynda. Það sé alltaf ánægjulegt þegar Íslendingar njóti velgengni erlendis.

Dýrið komið skrefi nær tilnefningu til Óskarsins
Kvikmyndin Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar er meðal fimmtán kvikmynda sem eiga möguleika á Óskarstilnefningu á næsta ári í flokki erlendra mynda.