
Spænski boltinn

Segir að leikmenn myndu taka á sig launalækkun til að minnka leikjaálagið
Dani Carvajal, varnarmaður Real Madrid, heldur því fram að leikmenn væru til í það að taka á sig launalækkun gegn því að spila færri leiki, minnka álagið og meiðast þar með minna.

Guardiola minnist ótrúlegs Venables
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, vottaði Terry Venables virðingu sína á blaðamannafundi í gær.

Girona mistókst að endurheimta toppsætið
Liðsmenn Girona þurftu að sætta sig við jafntefli er liðið tók á móti Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 1-1, en úrslitin þýða að Girona nær ekki að endurheimta toppsæti deildarinnar.

Bellingham búinn að bæta met Ronaldo og Di Stefano
Jude Bellingham skoraði þriðja mark Real Madrid er liðið vann öruggan 3-0 útisigur gegn Cádiz í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær.

Ramos rekinn rakleiðis út af í 29. sinn
Varnarmaðurinn margreyndi, Sergio Ramos, fékk að líta rauða spjaldið í viðureign Sevilla og Real Sociedad í dag en þetta var 29. rauða spjaldið sem hann fær á ferlinum.

Real Madrid tyllir sér á toppinn tímabundið
Real Madrid sótti Cádiz heim í kvöld og mátti ekki við því að misstíga sig í toppbaráttu spænsku úrvalsdeildarinnar.

Sjálfsmark bjargaði stigi fyrir Barcelona
Rayo Vallecano tók á móti Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni í dag en bæði lið þurftu sárlega á öllum þremur stigunum að halda.

Mourinho: Ancelotti væri galinn að yfirgefa Real Madrid
José Mourinho hefur ráðlagt Carlo Ancelotti að yfirgefa ekki Real Madrid og er á því að það væri hreinlega galið hjá Ítalanum að hætta með spænska stórliðið á þessum tímapunkti.

Krefst þess að Alves fái níu ára fangelsisdóm
Saksóknari á Spáni krefst níu ára fangelsisvistar yfir Dani Alves, fyrrum leikmanni Barcelona og landsliðsmanni Brasilíu í fótbolta fyrir meint kynferðisbrot hans sem hann hefur verið ákærður fyrir.

Segir af sér en vill samt halda áfram
Javier Tebas, forseti spænsku deildarinnar, tilkynnti um afsögn sína í gær en hann vildi boða til nýrra kosninga um forsetaembættið.

FIFA þarf að greiða Barcelona þrjár milljónir á dag vegna meiðsla Gavis
Meiðslin alvarlegu sem spænski miðjumaðurinn Gavi varð fyrir í leiknum gegn Georgíu í fyrradag kosta FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandið, skildinginn.

Sautján ára stelpa bætti met Ansu Fati
Hin sautján ára gamla Vicky López kom sér í sögubækurnar hjá Barcelona í gær þegar hún skoraði á móti Real Madrid í El Clasico.

Áfall fyrir ungu stjörnuna hjá Barcelona og spænska landsliðinu
Spænski landsliðsmaðurinn Gavi sleit krossband í leik Spánar og Georgíu í undankeppni EM í gær.

Barcelona fór illa með erkifjendurna
Barcelona vann öruggan 5-0 sigur á Real Madrid þegar liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Ramos veitti Shakiru verðlaun fyrir lagið sem gagnrýnir Pique
Sergio Ramos og Gerard Piqué grófu stríðsöxina er þeir spiluðu með spænska landsliðinu en öllu jafna voru þeir óvinir innan vallar sem utan. Ramos spilaði lengi vel með Real Madríd og Piqué með Barcelona. Þó Piqué sé hættur að spila tókst Ramos að eiga síðasta höggið.

Vinícius Júnior frá keppni þangað til á næsta ári
Brasilíski framherjinn Vinícius Júnior, leikmaður Real Madríd, verður frá keppni þangað til á næsta ári eftir að meiðast á læri í 2-1 tapi Brasilíu gegn Kólumbíu.

Bellingham valinn besti ungi leikmaður Evrópu
Jude Bellingham, leikmaður Real Madrid og enska landsliðsins í knattspyrnu, var í dag kjörinn besti ungi leikmaður Evrópu.

Dani Alves situr í fangelsi en fær 462 milljónir endurgreiddar
Spænski skatturinn þarf að endurgreiða brasilíska knattspyrnumanninum Dani Alves 3,2 milljónir evra eftir úrskurð hæstaréttar á Spáni.

Simeone segir Morata á pari við Haaland
Knattspyrnustjóri Atlético Madrid, Diego Simeone, segir að Álvaro Morata sé jafn góður og Erling Haaland. Tölurnar sýni það.

Lewandowski sá um endurkomu Börsunga
Barcelona vann Alaves 2-1 í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í dag. Gestirnir í Alaves leiddu í hálfleik en markamaskínan Robert Lewandowski skoraði tvívegis í síðari hálfleik. Hann hafði ekki skorað í sex leikjum í röð.

Brasilískir sambataktar þegar Real vann stórsigur
Real Madrid vann í kvöld stórsigur á Valencia þegar liðin mættust í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fjögur af mörkum Real voru brasilísk.

Standandi lófaklapp eftir stuðningsræðu um Ofurdeildina
Florentino Perez, forseti spænska félagsins Real Madrid, hefur ekki gefist upp á áformum sínum um stofnun Ofurdeildarinnar. Hann hlaut standandi lófaklapp eftir ræðu á ársþingi Real Madrid þar sem hann gagnrýndi UEFA og spænska knattspyrnusambandið.

Á toppnum og með mun fleiri mörk en bæði Real Madrid og Barcelona
Stærsta fótboltaævintýrið á Spáni þessa dagana er án efa það sem er í fullum gangi hjá Katalóníufélaginu Girona.

Fann skilaboð frá eiginmanni sínum sem lést fyrir fjórum árum
Ekkja Josés Antonio Reyes hefur fundið skilaboð frá honum. Fjögur ár eru síðan spænski fótboltamaðurinn lést.

Hermoso hótað eftir kossinn óumbeðna
Jennifer Hermoso bárust hótanir eftir að Luis Rubiales, fyrrverandi forseti spænska knattspyrnusambandsins, kyssti hana þegar Spánverjar tóku við heimsmeistarabikarnum.

Hvetur Mbappé til að hafna Real Madrid: „Betra að vera kóngurinn í þínu þorpi“
Samir Nasri, fyrrverandi leikmaður Arsenal, Manchester City og fleiri liða, hvetur Kylian Mbappé til að halda kyrru fyrir hjá Paris Saint-Germain og hafna Real Madrid.

Grýtti VAR-skjá í grasið
Iago Aspas, fyrrverandi leikmaður Liverpool, lét reiði sína bitna á VAR-skjá þegar Celta Vigo gerði 1-1 jafntefli við Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni um helgina.

Markalausir Madrídingar komust ekki upp á topp
Real Madrid þurfti að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli í viðureign sinni við Rayo Vallecano. Með sigri hefði Real endurheimt efsta sætið en úr því það mistókst situr Girona með tveggja stiga forskot í efsta sætinu þegar 12. umferðir spænsku úrvalsdeildarinnar hafa verið spilaðar.

Dramatískur sigur Barcelona
Barcelona vann dramatískan útisigur á Real Sociedad í La Liga í kvöld.

Spilaði í þriðju deild fyrir tveimur árum en er núna þriðja besta fótboltakona heims
Uppgangur spænsku fótboltakonunnar Sölmu Paralluelo undanfarin ár hefur verið með ólíkindum.