Breytingar á veiðigjöldum
1 2 3 4 5 6 7 8 … 9 ›
Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu Þingfundi hefur verið slitið án árangurs í þinglokaviðræðum eftir dramatískan dag. Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu fyrir ríkisstjórnina í kvöld í von um að leysa úr þráteflinu sem myndast hefur í málþófinu um veiðigjaldafrumvarpið. Innlent 10.7.2025 20:59
Hélt á lokuðu umslagi Stjórn og stjórnarandstaða hafa átt í heitum deilum um „lokuð umslög“ í dag þar sem forsætisráðherra sagði stjórnarandstæðinga hafa lagt fram sitt eigið frumvarp í umslagi í þinglokaviðræðum. Stjórnarandstæðingar neituðu því en þingflokksformaður Samfylkingarinnar hélt einmitt á lokuðu umslagi í viðtali í kvöldfréttum Sýnar í kvöld. Innlent 10.7.2025 20:09
Ábyrgðin er þeirra Undanfarnar vikur hefur forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, ráðherrar ríkisstjórnarinnar og þingmanna stjórnarmeirihlutans skellt skuldinni af þeirri stöðu sem upp er komin á Alþingi á stjórnarandstöðuna, haldið því fram að málþóf hafi staðið í vegi fyrir framgangi mikilvægra mála og fullyrt að lýðræðislega kjörin stjórnarandstaða ógni lýðræði í landinu, jafnvel lýðveldinu öllu, með því að sinna einfaldlega sínum skyldum. Skoðun 10.7.2025 19:03
Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar hafna því að stjórnarandstöðuflokkarnir hafi lagt fram tillögur „í lokuðu umslagi yfir borðið“ í þinglokaviðræðum. Þeir segja óæskilegt að ræða um viðræðurnar, sem eigi að vera bundnar trúnaði, á opinberum vettvangi. Innlent 10.7.2025 18:19
Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Formenn stjórnmálaflokka á Alþingi sitja nú fund vegna þráteflisins sem myndast hefur í umræðu um veiðigjöldin á Alþingi. Mikill hiti hefur verið í þingmönnum í dag. Innlent 10.7.2025 17:48
Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins lýsir orðum ráðherra um hana í kjölfar fundarslita gærkvöldsins alvarleg og ógeðfelld. Ríkisstjórnin hefur fordæmt ákvörðun Hildar, og mennta- og barnamálaráðherra hefur líkt atvikinu við valdarán. Innlent 10.7.2025 17:27
Um fundarstjórn forseta Vegna margumtalaðs atburðar sem átti sér stað í gærkvöldi þegar Hildur Sverrisdóttir, varaforseti Alþingis, sleit þingfundi, vil ég sem 1. varaforseti Alþingis halda eftirfarandi til haga: Skoðun 10.7.2025 17:03
Samtal við stjórnarandstöðuna fullreynt Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir ljóst að frumvarp hennar um hækkun veiðigjalda verði að lögum. Hún segir að ríkisstjórnin muni beita þeim úrræðum sem henni standa til boða til að keyra málið í gegn og útilokar ekki að svokölluðu „kjarnorkuákvæði“ þingskaparlaga verði beitt. Innlent 10.7.2025 14:49
Kemur kjarnorkuvetur á eftir kjarnorkuákvæðinu? „Þær nefndu ekki 71. greinina. En mér sýndist algjörlega augljóst að það sé í rauninni það sem þær eru að tala um,“ segir Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, um ávarp Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og málflutning ráðherranna Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ingu Sæland á Alþingi í morgun. Innlent 10.7.2025 14:45
„Það er orrustan um Ísland“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir að framundan sé orrusta um Ísland sem ríkisstjórnin ætli að vinna. Hún segir framkomu núverandi minnihluta fordæmalausa á aldarfjórðungs þingferli hennar. Sérhagsmunaöfl úti í bæ stýri minnihlutanum í samningaviðræðum. Innlent 10.7.2025 13:01
„Alvarleg yfirlýsing frá formanni flokks“ Guðrún Hafsteinsdóttir segir að forseti Alþingis hafi ekki upplýst um lengd þingfundar í gær, og spurði forseta af hverju ekkert samtal hefði átt sér stað milli forseta og varaforseta þess efnis. Kristrún Frostadóttir segir að allir sem þekki til þingstarfa eigi að vita að varaforsetar slíti ekki fundi nema eftir samtal við forseta. Innlent 10.7.2025 12:22
„Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Forsætisráðherra segir þjóðina þurfa að vita hvernig stjórnarandstaðan hegði sér á bak við tjöldin. Hún fordæmir fordæmalausa ákvörðun Hildar Sverrisdóttur að slíta þingfundi án samráðs við forseta og segir minnihlutann hafa lagt fram eigið frumvarp í lokuðu umslagi og krafist þess að ríkisstjórnin legði það fram sem hennar eigið. Innlent 10.7.2025 12:09
Þykir leitt að hafa valdið uppnámi „Mér þykir innilega leiðinlegt að fundarstjórn mín sem varaforseti í gærkvöldi sé túlkuð sem tilraun til valdaráns eða hvað það er sem ég heyri víða þennan morguninn. Í stuttu máli var það að sjálfsögðu alls ekki ætlun mín,“ segir Hildur Sverrisdóttir. Ákvörðun hennar um að slíta þingfundi klukkan 23:39 í gærkvöldi olli miklu fjaðrafoki á þingi í morgun. Innlent 10.7.2025 12:02
Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Starfsaldursforseti Alþingis segist aldrei hafa upplifað annað eins ástand í þinginu og uppi er núna. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins hafi kippt lýðræðinu úr sambandi með því að slíta þingfundi óvænt í gærkvöldi, sem sitjandi forseti þingsins. Innlent 10.7.2025 11:29
Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, spyr hvort minnihlutinn stefni Alþingi í átt að stjórnleysi líkt og í löndum þar sem valdhafar eru teknir af lífi. Minnihlutinn hafi ekki áhuga á samtali og þingflokksformenn hans mæti óundirbúnir þegar fundað er. Innlent 10.7.2025 11:07
Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Allt ætlaði um koll að keyra þegar Bryndís Haraldsdóttir sagði að ákvörðun Hildar Sverrisdóttur að slíta þingfundi í gær, væri í samræmi við vinnureglur og handbók forseta. Hróp og köll heyrðust úr þingsal, „Jesús“ sögðu sumir og „hvaða kjaftæði“ sagði einhver hátt og snjallt. Innlent 10.7.2025 10:57
Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ávarpaði þingheim óvænt í upphafi þingfundar í dag. Fulltrúar annarra flokka brugðust við ávarpinu að því loknu. Kristrún lýsti því yfir að ríkisstjórnin muni verja lýðveldið Ísland. Innlent 10.7.2025 09:57
Rölt að botninum Oft er það talið fólki til tekna að hafa gert manna mest af einhverju. Að hafa hlaupið hraðast, stokkið lengst, toppað aðra mælikvarða á mannlega frammistöðu. Að vera bestur er helvíti fínt. Skoðun 10.7.2025 08:32
Að fortíð skal hyggja þegar framtíð skal byggja Veiðigjaldafrumvarpið sem nú liggur fyrir er hvorki tilviljun né afleiðing einnar ríkisstjórnar. Það er niðurstaða fjögurra áratuga deilna milli útgerðar og almennings. Í gegnum tíðina hefur útgerðin sýnt lítinn sem engan vilja til málamiðlana – og ítrekað talað um kvótann eins og hann sé einkaeign. Skoðun 10.7.2025 08:00
Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Þingfundur hefst klukkan tíu og eina málið á dagskrá er veiðigjaldafrumvarpið margumrædda. Þingfundinum í gær lauk klukkan 23:40, eftir umræður um fjármálaáætlun og veiðigjaldafrumvarpið. Innlent 10.7.2025 07:40
Svigrúm Eydísar á fölskum grunni Það er villandi að halda því fram, líkt og Eydís Ásbjörnsdóttir þingmaður Samfylkingar heldur fram í grein í Morgunblaðinu í dag 9. júlí að svigrúm til tvöföldunar veiðigjalda í sjávarútvegi sé ótvírætt og mikið, byggt á samanlögðum rekstrarhagnaði og eigin fé heillar atvinnugreinar. Slíkt mat er bæði yfirborðskennt og hættulegt, enda tekur það hvorki tillit til raunverulegrar greiðslugetu né þeirra miklu sveiflna og áhættuþátta sem einkenna sjávarútveginn. Að nota bókhaldstölur af þessu tagi sem eina röksemd er annað hvort byggt á vanþekkingu eða meðvitaðri einföldun. Skoðun 9.7.2025 14:01
„Orðaskiftismetið tikið“ Kringvarp Færeyja fjallar um málþóf stjórnarandstöðunnar í annarri umræðu um veiðigjaldafrumvarpið. Greint er frá því að „viðgerðin um veiðigjøldini tikið metið sum longsta viðgerð um einstakt mál í Altinginum.“ Innlent 9.7.2025 10:27
Stór meirihluti þjóðarinnar hlynntur veiðigjaldafrumvarpinu Tæp sjötíu prósent þjóðarinnar eru hlynnt veiðigjaldafrumvarpinu. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá Prósent. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru þeir einu sem eru líklegri til að vera andvígir og fleiri Miðflokksmenn eru hlynntir en andvígir. Innlent 9.7.2025 08:09
Þeir sem verja stórútgerðina – og heimsvaldastefnuna Alþingi hefur verið haldið í gíslingu í 147,35 klukkustundir — lengsta málþóf lýðveldissögunnar — þar sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins tefja atkvæðagreiðslu um einfalda og sjálfsagða leiðréttingu veiðigjalda. Þessi breyting myndi færa þjóðinni réttmætari hlut af sameiginlegri auðlind, en samt sem áður verja þessir sömu stjórnmálamenn áfram gjafastefnu gagnvart stórútgerðinni, sem hefur árum saman hagnast gríðarlega á kostnað almennings. Skoðun 9.7.2025 08:02
„Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins lýsir Íslandsmeti í óvandaðri lagasetningu en Íslandsmet í málþófi var slegið í annarri umræðu veiðigjaldafrumvarpsins í dag. Þingmaður Viðreisnar segir metið dapurlegt og vill að þingið standi með lýðræðinu. Innlent 8.7.2025 20:36
Íslandsmet slegið í málþófi Ekkert mál hefur verið rætt eins lengi og veiðigjaldafrumvarp Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra. Málið hefur verið til umræðu í ríflega samtals 147 klukkustundir og hreppir fyrsta sætið af fyrri methafa, sem var þriðji orkupakkinn. Innlent 8.7.2025 17:35
Kúnstin að vera ósammála sjálfum sér Úr ræðustól Alþingis heyrast oft og iðulega þessa dagana upphrópanir um 26 sveitarfélög. Gjarnan í þeim stíl að talað er í hástöfum um þessi TUTTUGU OG SEX SVEITARFÉLÖG. Þessu er svo gjarnan fylgt eftir með upptalning á téðum sveitarfélögum. Skoðun 8.7.2025 17:03
Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ Aðeins þrír þingmenn greiddu atkvæði með dagskrártillögu stjórnarandstöðunnar við upphaf þingfundar og var hún því kolfelld. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir dagskrárvaldið hjá meirihlutanum, óháð fjölda stjórnarandstöðuþingmanna. Innlent 8.7.2025 12:11
Vilja taka fjármálaáætlun til umræðu Þingfundi var slitið klukkan ellefu mínútur yfir eitt í nótt, eftir langar og strangar umræður um veiðigjaldið. Innlent 8.7.2025 06:45
Öll tölfræði um málþófið á einum stað: Íslandsmet á næsta sólarhring Uppreisn, ungliðahreyfing Viðreisnar, hefur hleypt af stokkunum vefsíðunni Málþóf.is, þar sem finna má samantekt á tölfræði tengda yfirstandandi málþófi vegna veiðigjaldafrumvarpsins. Formaður Uppreisnar segir Íslandsmetið í málþófi innan seilingar. Innlent 7.7.2025 22:59