
Bandaríkin

Fleiri leyniskjöl finnast hjá Biden
Enn syrtir í álinn hjá Joe Biden Bandaríkjaforseta eftir að fleiri skjöl finnast í hans persónulegu fórum sem áttu að vera háleynileg og aðeins geymd hjá viðeigandi stofnunum.

Krefjast afsagnar lygarans á þingi
Leiðtogar Repúblikanaflokksins í New York-ríki kölluðu í dag eftir því að George Santos, nýkjörinn þingmaður úr ríkinu segi af sér. Það eigi hann að gera vegna umfangsmikilla lyga hans í kosningabaráttunni. Santos segist hins vegar ætla að sitja sem fastast.

Harry talar um bókina: Samhengisleysi, ilmvatn mömmu og kal í klofi
Harry Bretaprins mætti í sitt fyrsta viðtal eftir útgáfu ævisögunnar „Spare“ eða „Varaskeifan“ í nótt. Viðtalið fór fram í kvöldþætti Stephen Colbert og talaði Harry um dauða móður sinnar, framkomu bresku pressunar og fjölskyldunnar, geðheilsu og þegar hann fékk kal á typpið.

Halda sínu striki þrátt fyrir bilun í Bandaríkjunum
Bilun í NOTAM-flugumferðarkerfinu í Bandaríkjunum hefur ekki áhrif á ferðir Icelandair og Play að svo stöddu. Bandaríkjaflug flugfélaganna tveggja eru á áætlun að svo stöddu.

Flugbanni í Bandaríkjunum aflétt en lítið vitað um orsök
Fjölda flugferða hefur verið frestað í Bandaríkjunum vegna bilunar sem upp er komin í kerfi sem sendir út viðvaranir til flugmanna um mögulegar ógnir á flugleiðum.

Japanir saka Kínverja um hefndaraðgerðir
Stjórnvöld í Japan hafa mótmælt þeirri ákvörðun Kínverja að hætta að gefa út vegabréfsáritanir til Japana og segja um að ræða hefndaraðgerðir vegna ákvörðunar japanskra stjórnvalda að krefjast neikvæðrar niðurstöðu úr Covid-19 skimun frá kínverskum ferðalöngum.

Fjármálastjóri Trumps dæmdur í fangelsi fyrir skattsvik
Allen Howard Weisselberg, sem starfaði lengi sem fjármálastjóri fyrirtækis Donalds Trumps, fyrrum Bandaríkjaforseta, var í dag dæmdur í fimm mánaða fangelsi fyrir skattvsvik.

Fundu tvær reikistjörnur á lífbelti fjarlægs dvergs
Geimvísindamenn hafa fundið tvær reikistjörnur á sem eru á lífbeltinu svokallaða á braut um fjarlæga stjörnu. Báðar reikistjörnurnar eru á stærð við jörðina en ein þeirra fannst árið 2020.

Leynileg skjöl fundust á einkaskrifstofu Bidens
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna rannsakar nú hvernig skjöl, sem talin eru vera leynileg, enduðu á gamalli skrifstofu Joes Bidens, forseta Bandaríkjanna. Skjölin fundust þann 2. nóvember, skömmu fyrir þingkosningar, en fundurinn varð ekki opinber fyrr en í gær og þá af fjölmiðlum vestanhafs.

Fjórir þjálfarar úr bandarísku kvennadeildinni í ævilangt bann
Bandaríska kvennadeildin í fótbolta, NWSL, hefur dæmt fjóra fyrrum þjálfara í deildinni í ævilangt bann í kjölfar rannsóknar á kynferðisbrotum og eða harðstjórn í þeirra þjálfaratíð.

Kallar eftir stigmögnun af hálfu bandamanna
Sir Richard Shirreff, fyrrverandi hershöfðingi hjá Atlantshafsbandalaginu, segir að Bretar hefðu átt að senda Úkraínumönnum skriðdreka fyrir mörgum mánuðum. Bretar íhuga nú að senda Challenger-2 skriðdreka til Úkraínu.

Lygarinn á þingi sakaður um að brjóta kosningalög
Hinn umdeildi bandaríski þingmaður, George Santos, stendur frammi fyrir mögulegri rannsókn Alríkis-kjörstjórnar Bandaríkjanna (FEC). Það er eftir að hlutlaus eftirlitssamtök lögðu fram kvörtun um að hann hefði brotið lög varðandi kosningar.

Harry prins og Oprah þurftu að flýja aurskriður
Enn einn stormurinn gekk yfir Kalíforníu í Bandaríkjunum í gær og flæddu ár yfir bakka sína og stórsjór gekk á land.

Ákveða á næstu vikum hvort Trump verði ákærður
Ákærudómstóll í Georgíu sem rannsakað hefur Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, vegna afskipta hans af framkvæmd kosninga í ríkinu, hefur lokið störfum. Ekki er ljóst hvort Trump verði ákærður en ákveða á seinna í mánuðinum hvort opinbera eigi skýrslu ákærudómstólsins eða ekki.

Kennari enn þungt haldinn eftir að sex ára nemandi skaut hann
Ástand kennara sem var skotinn af sex ára gömlum nemanda sínum í grunnskóla í Virginíu í Bandaríkjunum á föstudag er sagt stöðugt en alvarlegt. Barnið var í haldi lögreglu fyrst eftir skotárásina en yfirvöld hafa ekki viljað segja hvar það er nú vistað.

Gífurlegur fórnarkostnaður ráðist Kína inn í Taívan
Geri Kína innrás í Taívan er líklegt að það muni skila sér í bandarískum sigri, en þó með miklum fórnarkostnaði fyrir alla sem koma að stríðsátökunum með beinum hætti. Bandaríski herinn mun laskast töluvert og kínverski flotinn verða að engu.

Bandarískir bændur fá leyfi til að gera sjálfir við traktorana sína
Bændur í Bandaríkjunum hafa unnið sigur í baráttunni gegn einum stærsta framleiðanda landbúnaðarvéla í heiminum og munu héðan í frá geta gert við eigin traktora eða látið gera við þá á verkstæðum sem eru ekki í eigu Deere & Co.

Settist í sófann hjá Jimmy Fallon: „Þetta fer algjörlega í minningabankann“
Thelma Sigurhansdóttir varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að setjast í sófa þáttastjórnandans Jimmy Fallon á meðan á auglýsingahléi við upptökur á kvöldþáttunum vinsælu „The Tonight Show with Jimmy Fallon“ stóð í desember síðastliðnum. Hún segir Fallon mikinn karakter en indælan.

McCarthy kjörinn forseti fulltrúadeildar eftir fimmtán tilraunir
Repúblikaninn Kevin McCarthy hefur verið kjörinn forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings eftir alls fimmtán tilraunir til að ná kjöri. Hópur Repúblikana, yst á hægri væng flokksins, hafði komið í veg fyrir að McCarthy næði kjöri.

McCarthy vantar enn fjögur atkvæði
Repúblikanann Kevin McCarthy vantar enn atkvæði fjögurra þingmanna fulltrúadeildar Bandaríkjaþings til þess að verða forseti þingsins. Í dag fóru tólftu og þrettándu umferðir kosningar í embættið fram.

McCarthy borubrattur eftir viðræður við andstæðinga
Óreiða virðist einkenna störf fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á fyrstu dögum nýs kjörtímabils. Eftir ítrekaðar atkvæðagreiðslur hefur þingmönnum ekki tekist að kjósa þingforseta en til stendur að halda tólftu atkvæðagreiðsluna og mögulega fleiri í dag.

Senda vestræna bryndreka til Úkraínu
Yfirvöld Í Bandaríkjunum og Þýskalandi tilkynntu í gærkvöldi að ríkin myndu senda tugi bryndreka til Úkraínu og þjálfa áhafnir á þá á komandi vikum. Það var í kjölfar þess að Frakkar opinberuðu að þeir ætluðu að senda brynvarin farartæki.

Enn gýs í Kilauea-fjalli á Havaí
Eldgos er hafið í toppgíg Kilauea-fjalls á Havaíeyjum innan við mánuði eftir að hraun hætti að renna þar og í stærri nágranna þess Mauna Loa. Tindurinn er fjarri mannabyggðum og er þeim ekki talin stafa hætta af gosinu.

Faðir myrti fjölskyldu sína eftir að konan sótti um skilnað
Karlmaður á fimmtugsaldri skaut fimm börn sín, eiginkonu sína, tengdamóður og loks sjálfan sig í Utah í Bandaríkjunum tveimur vikum eftir að konan sótti um skilnað. Börnin voru á aldrinum fjögurra til sautján ára gömul.

Yfirlýsingar um vopnahlé ekkert nema blekkingar og áróður
Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir yfirlýsingar Rússlandsforseta um vopnahlé yfir rússnesku jólahátíðina ekkert annað en blekkingarleik til að freista þess að tefja gagnsókn Úkraínuhers í austurhluta Donbas.

Enginn forseti í fulltrúadeildinni eftir ellefu tilraunir
Það gengur hvorki né rekur hjá bandaríska þingmanninum Kevin McCarthy að ná kjöri sem forseti fulltrúadeildarinnar. Eitthvað virðist þó þokast í samkomulagsátt innan Repúblikanaflokksins.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar sagðir stefna á aðra herkvaðningu
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er að undirbúa þjóð sína fyrir langvarandi átök í Úkraínu og Rússar eru sagðir vera að undirbúa aðra herkvaðningu. Bakhjarlar Úkraínumanna vinna að því að senda ný vopnakerfi til landsins en forðast enn að senda skriðdreka.

Fyrstu rannsóknir benda til að efnið hafi verið hættulaust
Fyrstu niðurstöður greiningar Háskóla Íslands á innihaldi sendingarinnar sem var fjarlægð úr bandaríska sendiráðinu í gær sýna fram á að innihaldið sé hættulaust.

Yfirlögfræðingur FTX sagður vinna með saksóknurum
Fyrrverandi yfirlögfræðingur fallna rafmyntafyrirtækisins FTX er sagður hafa veitt bandarískum yfirvöldum upplýsingar um hvernig Sam Bankman-Fried notaði innistæður viðskiptavini til að fjármagna eigin viðskipti. Búist er við því að hann verði eitt af lykilvitnum ákæruvaldsins gegn Bankman-Fried.

Átta manna fjölskylda fannst skotin til bana á heimili sínu
Fimm börn eru á meðal átta manns sem fundust skotnir til bana í heimahúsi í smábæ í Utah í Bandaríkjunum í gær. Lögreglumenn fundu líkin þegar þeir fylgdu eftir ábendingu um að ekki hefði spurst til fjölskyldunnar í einhvern tíma.