Körfubolti

Sam­spil Elvars og Tryggva meðal til­þrifa ársins

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Tryggvi Snær Hlinason er ekki óvanur því að troða.
Tryggvi Snær Hlinason er ekki óvanur því að troða. VÍSIR/BÁRA

Troðsla Tryggva Snæs Hlinasonar, eftir frábæra sendingu Elvars Más Friðrikssonar, er meðal tilþrifa ársins í undankeppni EM 2025.

Alþjóðakörfkuknattleikssambandið FIBA birti lista yfir bestu tilþrif undankeppni EM 2025 á árinu 2024.

Þar má sjá troðslu Tryggva, eftir sendingu Elvars, í leik Íslands gegn Ungverjalandi í febrúar á þessu ári. Leiknum lauk með frábærum sigri íslenska liðsins, sem nú er hársbreidd frá því að tryggja sér sæti á sínu þriðja Evrópumóti.

Tilþrifin má sjá í spilaranum hér fyrir neðan, en með því að smella HÉR er hægt að kjósa tilþrif Tryggva og Elvars sem þau bestu á árinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×