Stjórnvöld ákváðu fyrr í dag að auka magn í útboði almennra hluta og selja allan 45,2% eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka. Fjármála- og efnahagsráðuneytið greinir frá helstu niðurstöðum útboðsins í tilkynningu en tilboðstímabilinu lauk klukkan 17 í kvöld. Útboðsgengi tilboðsbókar A var fast 106,56 krónur á útboðshlut. Á sama tíma var útboðsgengi tilboðsbókar B og tilboðsbókar C sömuleiðis 106,56 krónur á hlut þar sem tilboð í tilboðsbók A fóru verulega umfram grunnmagn útboðsins.
Bendi til að allt fari í tilboðsbók A
Sérfræðingar sem fréttastofa ræddi við segja að í ljósi þess að útboðsgengi tilboðsbókanna er það sama sé útlit fyrir að allir hlutirnir fari í tilboðsbók A sem er einungis ætluð almenningi en einstaklingar nutu forgangs í útboðinu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Fari svo að einhverjir muni ekki geta staðið við áskriftartilboð sín í tilboðsbók A gætu þeir hlutir farið áfram í tilboðsbók B og C sem voru aðgengilegar stærri fagfjárfestum.
Bæði lögaðilar og almenningur gátu boðið í tilboðsbók B fyrir að lágmarki tvær milljónir króna. Tilboðsbók C var opin eftirlitsskyldum fagfjárfestum sem uppfylltu það skilyrði að samanlögð fjárhæð eigna þeirra sé jafnvirði 70 milljarða króna eða hærri. Tilboðsbók A var eingöngu ætluð einstaklingum með íslenska kennitölu og var heimilt að gera tilboð á bilinu 100 þúsund krónur til 20 milljóna króna.
Von á tilkynningu í fyrramálið
Tilboð sem bárust á grundvelli tilboðsbókar A njóta forgangs við úthlutun. Þá er gert er ráð fyrir að fjárfestum verði tilkynnt um úthlutun vegna tilboðsbókar A fyrir opnun markaða á morgun þann 16. maí, að því er fram kemur í tilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Þar segir jafnframt að komi til þess að frekari hlutir séu í boði eftir úthlutun til einstaklinga, muni fjárfestar í tilboðsbók B og C fá upplýsingar um úthlutun miðvikudagsmorguninn 21. maí.
„Um talsverða heildareftirspurn og verulega eftirspurn innanlands var að ræða í útboðinu og sýndu bæði almennir fjárfestar og fagfjárfestar, sem og innlendir og erlendir, útboðinu mikinn áhuga. Við úthlutun verður sérstök áhersla lögð á að tryggja þátttöku einstaklinga og því verða áskriftir í tilboðsbók A ekki skertar. Auk þess var leitast við að laða að stóra eftirlitsskylda fagfjárfesta þar sem eftirspurn var umtalsverð,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Fjöldi almennra hluta sem seldir voru í útboðinu eru 850.000.007 sem svarar til 45,2% af útistandandi hlutafé Íslandsbanka.
Fréttin og fyrirsögn hennar hefur verið uppfærð.