Sport

PGA fær nýjan for­stjóra frá NFL deildinni

Haraldur Örn Haraldsson skrifar
Rory McIlroy er ánægður með nýja forstjórann
Rory McIlroy er ánægður með nýja forstjórann Getty/Vísir

Brian Rolapp mun taka við sem fyrsti forstjóri PGA golfmótaraðinnar og mun taka við af Jay Monahan sem var titlaður „commissioner“ en fréttamaður fann ekki viðeigandi íslenska þýðingu á því orði.

Rolapp var fjölmiðla og viðskiptastjóri NFL deildarinnar í Meira en 20 ár og hefur því töluverða reynslu á stjórnun íþróttamóta.

Rory McIlroy einn besti kylfingur heims var spurður um þessar breytingar af BBC, en hann segist spenntur fyrir þessu.

„Hann hefur verið að segja allt rétt og er með frábærann bakgrunn frá NFL deildinni,“ sagði McIlroy.

„Hann hjálpaði þeim að stækka deildina alþjóðlega, og að verða að þessum risa sem þeir eru. Ef hann getur komi með þá reynslu, þá er það frábært. Svo er það mjög gott að Jay verði aðeins áfram svo að skiptin verði þægileg,“ sagði McIlroy.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×