Brottförum fækkaði um eina og hálfa milljón árið 2020 Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru tæplega 480 þúsund árið 2020 eða um 1,5 milljón færri en árið 2019, samkvæmt talningu Ferðamálastofu og Isavia. Fækkunin milli ára nemur 75,9 prósent. Ekki hafa svo fáar brottfarir mælst í tíu ár, að því er segir í tilkynningu frá Ferðamálastofu. Innlent 12. janúar 2021 13:04
Vísindarannsóknir á Íslandi á tímum heimsfaraldurs Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði eru til þess gerðar að við vitum hvaða meðferðir virka, hvaða rannsóknaraðferðir greina sjúkdóma á réttan máta og hvaða heilsueflandi inngrip virka. Svona mætti lengi telja. Skoðun 12. janúar 2021 13:01
Starfandi fólki fækkar um tæp átta prósent milli ára Tæplega átta prósent færri voru starfandi á vinnumarkaði hér á landi í október í fyrra en í október árið 2019. Þá fækkaði starfandi fólki einnig milli mánaðanna september og október. Formaður samfylkingarinnar segir núverandi kreppu vera ójafnaðarkreppu. Innlent 12. janúar 2021 12:06
Óska eftir bólusetningu fyrir íslenskt afreksíþróttafólk Íþrótta- og ólympíusamband Íslands hefur óskað eftir því við heilbrigðisyfirvöld að afreksfólk í íþróttum verði haft í huga við forgangsröðun vegna bólusetningar gegn COVID-19. Sport 12. janúar 2021 11:30
Segir öll samskipti sín við Pfizer hafa verið fín Sóttvarnalæknir segir öll samskipti sín við fulltrúa lyfjaframleiðandans Pfizer hafa verið fín. Hann hefur ekki fengið veður af meintum trúnaðarbresti dansks fulltrúa Pfizer, sem forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar lýsti í viðtali í Fréttablaðinu í morgun. Innlent 12. janúar 2021 11:30
Tveir greindust innanlands og fimmtán á landamærum Tveir greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Annar þeirra sem greindist var í sóttkví en hinn ekki. Innlent 12. janúar 2021 10:59
Rólegra yfir leigumarkaðnum en íbúðamarkaðnum á tímum faraldurs Á sama tíma og íbúðaverð tók að hækka í kjölfar vaxtalækkana á seinni hluta síðasta árs hefur leiguverð á höfuðborgarsvæðinu að jafnaði staðið í stað. Frá janúar og fram í maí mældist lækkun milli mánaða samkvæmt nýþinglýstum leigusamningum en síðan tók við lítils háttar hækkun milli mánaða fram að október þegar verð tók að lækka. Viðskipti innlent 12. janúar 2021 10:42
Stefna á markaðsleyfi fyrir AstraZeneca eftir rúmar tvær vikur Lyfjaframleiðandinn AstraZeneca hefur sótt um skilyrt markaðsleyfi fyrir bóluefni sínu gegn kórónuveirunni hjá Lyfjastofnun Evrópu. Umsóknin mun fá flýtimeðferð hjá stofnuninni og leyfið gæti verið gefið út 29. janúar, eftir rúmar tvær vikur. Erlent 12. janúar 2021 09:30
Bóluefni Moderna komið til landsins Bóluefni Moderna gegn Covid-19 er komið til landsins. Um er að ræða 1200 skammta af efninu sem verða notaðir til þess að ljúka bólusetningu einstaklinga í framlínu. Í kjölfarið munu svo berast 1200 skammtar af bóluefninu á tveggja vikna fresti. Innlent 12. janúar 2021 09:29
WHO: Hjarðónæmi næst ekki á þessu ári Soumya Swaminathan, aðalvísindamaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO), segir að heimurinn nái ekki hjarðónæmi gegn Covid-19 á þessu ári. Þetta er þrátt fyrir að bólusetningar séu hafnar í um þrjátíu löndum í heiminum, þar á meðal hér á Íslandi. Erlent 12. janúar 2021 08:48
Þingmaður smitaður eftir árásina á þinghúsið Pramila Jayapal, þingmaður demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, hefur smitast af kórónuveirunni. Jayapal segir frá því á Twitter að hún hafi smitast í kjölfar þess að hafa ásamt öðrum þingmönnum verið flutt í skjól, í lokað herbergi, þegar múgur réðst á bandaríska þinghúsið í síðustu viku. Erlent 12. janúar 2021 08:48
Þrjár leiðir heilsugæslunnar til að ná til eldra fólks vegna bólusetningar Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að heilsugæslan vinni eftir þremur leiðum til þess að hafa samband við eldra fólk vegna bólusetningar gegn Covid-19. Innlent 12. janúar 2021 07:38
Þess virði að gefa starfsfólki von Bólusetning í augsýn gefur án efa tilefni til meiri bjartsýni framundan en áður fyrir atvinnulífið um allan heim. Rannsóknir sýna þó að það er árangursríkari leið fyrir stjórnendur að efla von hjá starfsfólki en bjartsýni. Hvers vegna? Atvinnulíf 12. janúar 2021 07:02
Bóluefni Moderna kemur í dag Von er á 1200 skömmtum af bóluefninu frá Moderna til landsins í dag. Skammtarnir verða notaðir til að ljúka bólusetningu einstaklinga í framlínuhópum. Í kjölfarið munu svo berast 1200 skammtar af bóluefninu á tveggja vikna fresti. Innlent 12. janúar 2021 06:48
Segir umboðsmann Pfizer hafa brotið trúnað um viðræður Íslendinga við fyrirtækið Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir Dani að öllum líkindum vera að eyðileggja fyrir Íslendingum gagnvart lyfjafyrirtækinu Pfizer um að rannsaka áhrif bóluefnis gegn Covid-19 á heila þjóð. Innlent 12. janúar 2021 06:35
Tvöföld skimun „alveg þess virði“ Lögreglan á Suðurnesjum hefur fylgst vel með komufarþegum á Keflavíkurflugvelli til þess að tryggja að allir þekki þær reglur sem eru í gildi. Heilbrigðisráðherra greindi frá því í gær að ákveðið hefði verið að fólk sem kemur hingað til landsins og kýs ekki að fara í skimun þurfi að fara í tveggja vikna sóttkví í farsóttahúsi. Innlent 11. janúar 2021 20:56
Ekki útilokað að grípa til sams konar aðgerða og Danir og Bretar Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir útilokar ekki að krefja fólk um neikvætt vottorð við kórónuveirunni fyrir komu þess til Íslands. Hann segir helstu hættuna sem steðji að Íslendingum vera fjölda smita á landamærunum. Innlent 11. janúar 2021 19:26
Óttast „falskt áhyggjuleysi“ vegna bóluefnis Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir þjóðina vera á hættulegum tímapunkti í faraldrinum. Smitum fer ört fjölgandi en bólusetningar hófust í desember síðastliðnum. Johnson óttast að fólk sé kærulausara vegna þessa. Erlent 11. janúar 2021 18:47
Sporin hræða: Sérfræðingar segja afstöðu Frakka til bólusetninga byggja á slæmri reynslu Kannanir sýna að allt að 60% Frakka hyggjast afþakka bólusetningu gegn Covid-19 en sérfræðingar segja mögulegt að niðurstöðurnar séu villandi. Þeir segja afstöðuna ekki snúast um bóluefnin sjálf, heldur traust til stjórnmálamanna, lækna og fjölmiðla. Erlent 11. janúar 2021 16:04
Helgi Jean og Sölvi Tryggva í toppmálum á Tene Hlaðvarpararnir Helgi Jean Claessen og Sölvi Tryggvason njóta lífsins á Tenerife um þessar mundir og fer vel um þá á spænsku eyjunni. Lífið 11. janúar 2021 15:31
Stjórnmál í sóttkví Covid faraldurinn og barátta við hann hafa litað stjórnmálin síðan faraldurinn kom upp fyrir tæpu ári síðan. Miðflokkurinn hefur staðið með ríkisstjórninni í öllum þeim aðgerðum sem gripið hefur verið til og ekki staðið í vegi afgreiðslu þeirra með nokkrum hætti. Skoðun 11. janúar 2021 15:01
Spila þrátt fyrir að þrettán leikmenn séu í sóttkví Þrátt fyrir að þrettán leikmenn Celtic séu komnir í sóttkví fer leikur liðsins gegn Hibernian í skosku úrvalsdeildinni í kvöld fram. Fótbolti 11. janúar 2021 13:31
Þakkar árangurinn yfir jólin persónulegum smitvörnum einstaklinga Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir ekki tilefni til frekari takmarkana á landamærunum, þrátt fyrir alvarlega stöðu í Bretlandi og Austur-Evrópu, þaðan sem margir ferðast til Íslands. Innlent 11. janúar 2021 12:49
Farsóttarhúsið við Rauðarárstíg fullt og nýtt opnað Farsóttarhúsið við Rauðarárstíg í Reykjavík er orðið fullt. Síðasta herbergið var fyllt í morgun og verður annað farsóttarhús opnað á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þetta kom fram í máli Gylfa Þórs Þorsteinssonar, umsjónarmanns sóttvarnahússins, á upplýsingafundi almannavarna og Embættis landlæknis í morgun. Innlent 11. janúar 2021 11:41
Von á 1.200 skömmtum frá Moderna á morgun Von er á 1.200 skömmtum af bóluefninu frá Moderna á morgun, sem verður notað til að ljúka bólusetningu einstaklinga í framlínuhópum. Í kjölfarið munu berast 1.200 skammtar af bóluefninu á tveggja vikna fresti. Innlent 11. janúar 2021 11:28
Ekkert bendir til aukins fjölda dauðsfalla í kjölfar bólusetninga Ráðist var í þrenns konar athuganir í kjölfar andláta sem urðu eftir bólusetningar gegn Covid-19. Þetta sagði Alma Möller landlæknir á upplýsingafundi vegna Covid-19 faraldursins rétt í þessu. Innlent 11. janúar 2021 11:19
Þrír greindust innanlands og sautján á landamærum Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir þeir sem greindust voru í sóttkví. Innlent 11. janúar 2021 10:51
Svona var 152. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til hefðbundins upplýsingafundar á mánudagi klukkan 11 í dag. Innlent 11. janúar 2021 10:16
„Leiðbeiningar sem komu um ræktina að mestu leyti komnar frá ræktinni sjálfri“ Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að þær breytingar á sóttvarnareglum sem taka gildi á miðvikudag og snúa að líkamsræktarstöðvum séu byggðar á tillögum sem stöðvarnar lögðu fram sjálfar. Innlent 11. janúar 2021 08:27
Setja aukinn kraft í bólusetningar Bretar ætla að setja aukinn kraft í bólusetningar þar í landi í vikunni og í dag opna sjö bólusetningamiðstöðvar víðs vegar um landið sem geta tekið á móti miklum fjölda fólks. Erlent 11. janúar 2021 08:15