

Rúmlega milljarður króna sem gerðardómur ákvað að ríkið skuli fá heilbrigðisstofnunum til að bæta kjör hjúkrunarfræðinga dugar ekki til að leiðrétta launin til samræmis við viðmiðunarstéttir að mati stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
„Þá átti ég þriggja mánaða stelpu,“ segir Sara Snorradóttir um það þegar hún greindist með Hodgkins eitlafrumukrabbamein í ágúst árið 2017. Hún viðurkennir að það hafi verið erfitt að fá þessar fréttir svo skömmu eftir að barnið fæddist.
Í skýrslunni er m.a. fjallað um þróun lagaramma í löndum þar sem dánaraðstoð er leyfð, um tíðni, ástæður og skilyrði dánaraðstoðar í þeim löndum og hver reynslan hefur verið.
Niðurstöður rannsóknar vísindamanna Íslenskrar erfðagreiningar og samstarfsfólks þeirra benda til þess að ekki dragi úr mótefni sem myndast í blóði þegar fólk smitast af Covid-19 á fyrstu fjórum mánuðum eftir sýkingu.
Að minnsta kosti 30 konur fengu ranga niðurstöðu um frumubreytingar í leghálsskoðun hjá Krabbameinsfélagi Íslands árið 2018. Félagið vinnur nú að því að endurskoða um 6000 leghálssýni.
Lagt verður mat á hvort heilbrigðisþjónustan taki mið af ólíkum þörfum kynjanna í rannsókn sem heilbrigðisráðuneytið hefur samið við félagsvísindasvið Háskóla Íslands um að gera. Vísbendingar eru um að konur búi að nokkru leyti við lakari heilsu en karlar.
Ríkið skal leggja Landspítalanum til alls 900 milljónir króna á ári frá deginum í dag til loka gildistíma kjarasamnings deiluaðila.
Klukkunni verður ekki seinkað um eina klukkustund hér á landi líkt og komið hefur til umræðu öðru hvoru undanfarin ár.
Kona um fimmtugt sem fékk rangar niðurstöður í leghálsskoðun er nú með ólæknandi krabbamein, sem líklega hefði verið hægt að koma í veg fyrir. Krabbameinsfélagið harmar mistökin.
Jón Magnús Jóhannesson, sérnámslæknir á Landspítalanum, segir að í grein Jóns Ívars Einarssonar, prófessors við læknadeild Harvard-háskóla, sem birtist í Morgunblaðinu í dag, sé gert lítið úr hættunni sem stafar af Covid-19 og kórónuveirufaraldrinum.
Maður með geðklofa hefur haft gríðarlegar áhyggjur af geðfötluðum vinum sínum í faraldrinum. Vegna ástandsins hefur þjónusta á VIN, dagsetri fyrir fólk með geðraskanir, verið skert - sem hafi orðið til þess að fólk einangrast.
Gert er ráð fyrir að hér á landi þurfi um 550 þúsund skammta af bóluefni gegn Covid-19. Er þá miðað við að bólusetja um 75 prósent þjóðarinnar til að ná fullnægjandi hjarðónæmi og að hver einstaklingur verði bólusettur tvisvar.
Þorgerður Katrín ítrekaði fyrirspurn sína til Katrínar um hvort samstaða ríkti innan ríkisstjórnar um hertar aðgerðir á landamærum.
Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir salmonellusmit setja umræðuna um að íslenskar búvörur séu einstakar hvað varðar hreinleika og heilbrigði í annað ljós.
Verktakafyrirtækið Eykt átti lægsta tilboðið í uppsteypu á nýju þjóðarsjúkrahúsi við Hringbraut.
Íbúar Skaftárhrepps eru hvattir til að sjóða neysluvatn.
Öllum hömlum sem settar voru á íbúa á hjúkrunarheimili Hlíf á Ísafirði síðastliðið laugardagskvöld hefur nú verið aflétt.
Yfirlæknir ónæmisdeildar á Landspítalanum segist bjartsýnn á að bóluefni við kórónuveirunni verði aðgengilegt hér á landi um áramótin.
Lækningavörufyrirtækið Kercis segist hafa tryggt sér 3 milljarða króna lánsfjármögnun.
Viðunandi verðmerkingar og upplýsingar á vefsíðu vantaði hjá meirihluta þeirra gleraugnaversluna sem Neytendastofa segist hafa kannað á dögunum.
Yfirlæknir á sjúkrahúsinu Vogi segist merkja aukna áfengisneyslu í kórónuveirufaraldrinum.
Starfsmaður Borgarsels, dagþjálfunar fyrir heilabilaða sem rekin er af hjúkrunarheimilinu Eir og staðsett er í Spönginni, greindist með kórónuveiruna síðastliðinn fimmtudag, þann 20. ágúst.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur segir að Íslenska gámafélagið hafi verið krafið um tafarlausar úrbætur vegna ólyktar sem íbúar í Grafarvogi í Reykjavík hafa kvartað yfir undanfarið. Verði fyrirtækið ekki við því verði það beitt þvingunarúrræðum.
Enn hefur ekki tekist að rekja uppruna kórónuveirusmitsins sem kom upp á Hlíf, íbúðum fyrir eldri borgara á Ísafirði.
Guðmundur Hafþórsson sundþjálfari er einn þeirra sem hefur tekið þátt í armbeygjuáskorun á samfélagsmiðlum til þess að vekja athygli á áfallastreituröskun. Eftir höfuðhögg fyrir tíu árum, sökk hann djúpt og faldi sig á bak við grímu alla daga.
Fjölskyldumeðlimir íbúans á Hlíf voru skimaðir fyrir kórónuveirunni í gær sem og aðrir sem eru í sóttkví vegna smitsins.
Yfirlæknir á Landspítalanum segir að árangur Íslendinga við meðhöndlun á alvarlegum Covid-veikindum megi að hluta rekja til lyfja sem læknar höfðu við höndina.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segist telja það líklegt að búið verði að setja saman „gott bóluefni“ undir lok árs 2020 eða í byrjun 2021.
Yfirlæknir á Landspítalanum segir ótrúlega hraða þróun bóluefna vera stórkostlegan sigur fyrir vísindi og samvinnu. Bóluefni sem er á lokastigi rannsókna lofar góðu og ef allt gengur upp gætu áhættuhópar fengið sinn skammt um eða eftir áramót.
Líkamleg endurhæfing er mikilvægur þáttur í bataferli þeirra sem greinast með krabbamein. Hér á landi er til dæmis bæði hægt að sækja þjálfun og æfingar í gegnum félögin Kraft og Ljósið. Þjálfarar segja að það geti verið mjög hvetjandi að æfa með fólki sem hefur einnig greinst með krabbamein.