Samfylkingin

Samfylkingin fengi jafnmarga þingmenn og ríkisstjórnin
Samfylkingin fengi jafnmarga þingmenn og stjórnarflokkarnar þrír samanlagt ef gengið yrði til kosninga í dag.

Stuðningur við ríkisstjórnina svipaður og við Samfylkingu
Stuðningur við Samfylkinguna mælist nú nærri samanlögðu fylgi stjórnarflokkanna þriggja samkvæmt nýrri könnun. Forsætisráðherra segir fylgistap Vinstri Grænna áhyggjuefni og telur ágreininginn sem verið hefur milli stjórnarflokkanna ekki falla þjóðinni í geð.

Sýnum samstöðu
Á morgun er heilsdags kvennaverkfall á Íslandi og þá eru komin 48 ár síðan konur lögðu niður störf og mótmæltu um allt land með mjög eftirminnilegum hætti. Það er auðvitað sorgleg staðreynd að öllum þessum árum síðar séu konur enn í þeim sporum að þurfa að leggja niður störf og mótmæla en það er því miður veruleikinn.

Fæðingarorlof í anda jafnaðarmennsku
Hvernig sköpum við réttlátara og sterkara fæðingarorlofskerfi á Íslandi?

Ósammála um breytt gatnamót við JL-húsið
Deilt er um framkvæmdir við JL-húsið sem borgarfulltrúi Samfylkingarinnar segir gerðar í nafni umferðaröryggis. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir framkvæmdirnar óhjákvæmilegar eftir ítrekaðar kvartanir frá íbúum svæðisins.

Skora á ríkisstjórnina að beita sér fyrir vopnahléi á Gasa
Samfylkingin fordæmir stríðsglæpi Ísraelshers og Hamas og skorar á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því að tryggja nauðsynlega mannúðaraðstoð, tafarlaust vopnahlé og að binda enda á aðskilnaðarstefnu undanfarinna áratuga.

Samfylkingin ætli ekki „að sóa tíma í einhvern pólitískan æsing“
Formaður Samfylkingarinnar segir flokkinn tilbúinn í verkefni vetursins. Kjarapakki þeirra sé skýr. Mikilvægt sé að horfa á aðalatriðin og hlusta á fólkið í landinu. Á sama tíma eigi Samfylkingin ekki að gleyma sér í góðum niðurstöðum skoðanakannanna.

„Fyrst og fremst stólaskipti“ án þess að axla ábyrgð
Formaður Samfylkingarinnar óskar nýjum fjármálaráðherra velfarnaðar í nýju hlutverki, en á ekki von á mikilli stefnubreytingu í efnahagsmálum frá ríkisstjórninni. Hún segir Bjarna ekki hafa viðurkennt misbresti í sölunni á Íslandsbanka, sem sé liður í því að axla ábyrgð.

Segir Bjarna ekki geta „bæði átt kökuna og étið hana“
Stjórnarandstaðan telur að afsögn fjármálaráðherra hljóti að þýða að hann hætti í ríkisstjórn. Ella sé um að ræða sýndarmennsku. Þá hafi forsætisráðherra brugðist í Íslandsbankamálinu.

„Höfum hingað til þurft að hafa virkilega fyrir því að losna við þá“
Stjórnarandstöðuþingmenn sem fréttastofa hefur rætt við eru sammála um að ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að segja af sér embætti fjármálaráðherra hafi verið rétt. Formaður Flokks fólksins undrast hve auðveldlega hann fór frá, en formaður Samfylkingarinnar bendir á langan aðdraganda að ákvörðun Bjarna.

„Þetta er rétt ákvörðun“
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist telja ákvörðun Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að segja af sér sem fjármálaráðherra vera rétta. Hún segir ákvörðunina hafa komið sér á óvart.

Á morgun kemur skólinn, hvar verða skýin þá?
Það er rétt að minna á að það fá ekki öll börn fræðslu heima fyrir, og síst þau sem allra mest þurfa á henni að halda.

Samfylkingin yfir 30 prósent í fyrsta sinn í fjórtán ár
Samfylkingin er enn stærsti flokkur landsins samkvæmt könnunum. Flokkurinn mælist nú með yfir 30 prósent fylgi í fyrsta sinn í fjórtán ár.

Kynna fimm markmið í heilbrigðis- og öldrunarmálum
Samfylkingin hefur kynnt nýja stefnu sína í heilbrigðis- og öldrunarmálum. Stefnan byggir á fimm markmiðum sem ættu að taka tvö kjörtímabil að koma í framkvæmd.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst en Samfylkingin dalar
Fylgi Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar eykst nokkuð á milli mánaða samkvæmt nýrri könnun Maskínu en Samfylkingin sem hefur verið á mikilli siglingu dalar lítillega.

Mannréttindastofnun mun ekki laga verðbólguna
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar gerði efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar að umtalsefni í umræðu á þinginu nú rétt í þessu. Og taldi stjórnina með allt niður um sig í þeim efnum.

Ríkisstjórnin svínaði á eftirlaunafólki fimm ár í röð
Í 62. gr. almannatryggingalaga stendur skýrum stöfum að greiðslur almannatrygginga skuli „taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.“

Lilja Hrönn kjörin forseti Ungs jafnaðarfólks
Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir, 22 ára laganemi og nemi í sjávarútvegsfræði var kjörin forseti Ungs Jafnaðarfólks í dag. Hún tekur við af Arnóri Heiðari Benónýssyni, kennaranema, sem hefur gegnt embættinu undanfarið ár.

Stór orð en ekkert fjármagn
Orð eru ódýr. Peningar hreyfa heiminn. Þessir frasar eru beinþýddir úr ensku en skiljast ósköp vel á íslensku. Á Íslandi situr ríkisstjórn sem notar gjarnan stór orð um fyrirætlanir sínar. En þegar rýnt er í fjárlög og fjármálaáætlun til að kanna hvað býr þar að baki þá finnst ekkert fjármagn.

Býður sig fram til forseta Ungs jafnaðarfólks
Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir hefur gefið kost á sér í embætti forseta Ungs jafnaðarfólks. Lilja Hrönn er 22 ára laganemi við Háskóla Íslands og nemi í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri, auk þess að vera varaforseti Ungs jafnaðarfólks.

Kristrún segir almenning þurfa aðgerðir núna
Fjármálaráðherra og formaður Samfylkingarinnar ræddu efnahagsmálin og ólíkar aðferðir til að takast á við hærri verðbólgu og hátt vaxtastig.

Fjárlagafrumvarpið, ólögmætt samráð og hinseginleikinn
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.

Þingmenn fjögurra flokka vilja banna hvalveiðar
Þingmenn stjórnarandstöðu vilja banna hvalveiðar og hafa lagt fram frumvarp þess efnis. Lagt er til að hvalir verði færðir undir verndarvæng villidýralaga í frumvarpinu.

„Það er ekki endalaust til, háttvirtur þingmaður“
Formaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina setja velferðina á ís með nýju fjárlagafrumvarpi. Fjármálaráðherra segir hana tala með óábyrgum hætti um opinber fjármál.

Ríkisstjórnin sé upptekin við innbyrðis rifrildi
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, telur ríkisstjórnina ekki hafa notað kjörtímabilið til góðs fyrir fólkið í landinu. Mikil orka fari í innbyrðis rifrildi og stjórnmálin snúist um eitthvað annað en það sem brennur á fólki.

„Virðist nú bara vera einhvers konar sprell hjá þeim“
Formenn tveggja stjórnarandstöðuflokka á þingi segja það sem kynnt er í fjárlagafrumvarpi fjármálaráðherra ekki vera neitt nýtt. Formaður Miðflokksins segir fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um aðhald í ríkisrekstri hljóma eins og „sprell“.

Endurskoðaður grænni samgöngusáttmáli
Borgir verða til vegna þess að fólk sækir í samskipti við annað fólk. Tilgangur borgarskipulags er að gera samskiptin greið og ánægjuleg. Samgöngur í borgum lúta sama tilgangi.

Einkafíllinn
Ég tók þátt í ítarlegri umræðu um samgöngusáttmálanum í borgarstjórn og hér eru mín fimmtíu sent. Samgöngusáttmálinn snýst um úrbætur á samgönguinnviðum á höfuðborgarsvæðinu en ein meginforsenda hans og hvati er að samgöngumál á svæðinu hafa verið í ákveðnu öngstræti um langt árabil.

Samgöngusáttmáli um betri borg
Nú stendur yfir vinna hjá sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins og ríkinu við að uppfæra Samgöngusáttmálann sem sömu aðilar undirrituðu haustið 2019 og hefur talsvert verið til umræðu síðustu daga. Frá þeim tímapunkti hefur margt breyst sem lá að baki þeim forsendum sem sáttmálinn byggir á.

„Grípum geirinn í hönd!“
Í upphafi síðustu aldar var lífsbaráttan hörð á Íslandi, alþýða landsins bjó við kröpp kjör. Fólk reyndi að sýna samstöðu í baráttunni fyrir bættum lífskjörum og stofnuð voru verkalýðsfélög um land allt. Fljótlega var stofnað Alþýðusamband Íslands eða árið 1916, á sama tíma var Alþýðuflokkurinn stofnaður.