

Um klukkan hálftvö í nótt ætluðu lögreglumenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að stöðva bíl í Árbænum í Reykjavík.
Laust eftir klukkan hálfníu í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um líkamsárás á veitingahúsi í miðbæ Reykjavíkur.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu heimsótti 42 veitingastaði í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi og voru þeir flestir með „allt á hreinu“ varðandi fjöldatakmarkanir og sóttvarnareglur. Um það bil þrjátíu staðir í öðrum hverfum voru einnig heimsóttir og var sama uppi á teningnum þar, þó árétta þurfti á nokkrum stöðum reglur um opnunartíma og skráningu gesta.
Landsréttur staðfesti í gær sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Reykjavíkurborg var sýknuð af kröfum Reykjavík Developement ehf. Málið snerist um synjun á leyfisumtóskn félagsins til reksturs Airbnb-íbúðargistingar í íbúð í eigu félagsins. Borgarstjóri fagnar niðurstöðunni.
Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu tókst að bólusetja 4400 manns fædda árin 1946-1949 í dag. Fólk var afar ánægt með að fá loks bólusetningu og fáir sem gerðu athugasemd við að bólusett var með bóluefni Astra Zeneca.
Játning liggur fyrir í Rauðagerðismálinu og eru fjórtán aðilar með réttarstöðu sakbornings. Rannsókn lögreglu snýr einnig að mögulegum hefndaraðgerðum gegn þeim sem liggja undir grun í málinu. Yfirlögregluþjónn segir að um sé að ræða flóknustu morðrannsókn hér á landi í seinni tíð.
Slökkviliðsmenn hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins björguðu kettlingi úr tré við Hátún rétt eftir hádegi í gær.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði um klukkan 22 í gærkvöldi ökumann í hverfi 105 þar sem hann ók á 123 kílómetra hraða á götu þar sem hámarkshraðinn er 80.
Leikskólastjórar harma að takmarkanir hafi ekki verið settar á starfsemi leikskóla. Leikskólastjóri vill sjá lágmarksstarfsemi á leikskólum fyrir vel skilgreinda forgangshópa.
Vel á annan tug manna eru með réttarstöðu sakbornings og tveir eru í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefna- og fjársvikamáls sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar. Húsleit hefur verið gerð á öðrum tug staða, bæði á heimilum og í fyrirtækjum vegna málsins.
Skólastjórnendum í Hlíðaskóla í Reykjavík hafa ekki borist upplýsingar um að fleiri nemendur eða starfsmenn hafi smitast af kórónuveirunni.
Skólastjórnendur í Laugarnesskóla hafa fengið þær upplýsingar að enginn nemandi hafi greinst í sýnatöku vegna kórónuveirunnar í gær. Áður töldu þeir sig vita að einhverjir hefðu greinst.
Nemandi í unglingadeild Hlíðaskóla greindist með kórónuveiruna í gær og því hefur verið ákveðið að senda alla nemendur skólans í 8., 9. og 10. bekk í sóttkví. Þetta kom fram í bréfi skólastjórnenda til foreldra í gærkvöldi.
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi karlmann sem hafði kýlt konu í andlitið í miðborg Reykjavíkur og svo farið af vettvangi. Skömmu síðar tilkynnti konan að árásarmaðurinn væri mættur fyrir framan hús hennar.
Það er óhætt að ætla að hertar sóttvarnaaðgerðir sem kynntar voru í dag og taka gildi á miðnætti hafi verið mörgum vonbrigði. Aðgerðirnar eru þær hörðustu sem gripið hefur verið til hér á landi vegna kórónuveirufaraldursins og ná til landsins alls. Til viðbótar við hertar aðgerðir hefur hættustigi verið lýst yfir á Landspítala og neyðarstigi almannavarna hefur sömuleiðis verið lýst yfir.
Nemandi í 8. bekk í Laugalækjarskóla hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. Þetta staðfestir Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjarskóla, í samtali við Vísi. Ákveðið hefur verið að allir nemendur skólans verið sendir í sóttkví fram á mánudag og þeir kennarar sem kenndu umræddum bekk auk annars starfsfólks skólans.
Rottweiler-hundurinn sem beit unga konu í andlitið á skemmtistaðnum Röntgen síðastliðið föstudagskvöld mun gangast undir geðmat hjá dýralækni eða hundaatferlisfræðingi. Þetta segir Helgi Helgason, hundaeftirlitsmaður hjá Reykjavíkurborg, í samtali við Vísi.
Stjórn félags leikskólakennara segir stjórnvöld taka óþarfa áhættu með því að halda leikskólum opnum fram að páskafríi. Reykjavíkurborg hefur tekið ákvörðun um að allir leikskólar borgarinnar verði lokaðir til hádegis á morgun.
„Þetta lítur bara alls ekki vel út. Engum blöðum er um það að fletta.“ Þetta segir Eyrún Helga Aradóttir, þriggja barna móðir í Laugarneshverfi, en hún er í þeirri stöðu að börnin hennar þrjú eru ýmist í sóttkví eða úrvinnslusóttkví vegna hópsýkingarinnar í Laugarnesskóla.
Ellefu nemendur við Laugarnesskóla greindust með Covid-19 smit eftir sýnatöku gærdagsins. Í heild hafa því þrettán smit greinst í skólanum, tólf nemendur og einn kennari.
Skráningu í sumarleikskóla Reykjavíkur lýkur föstudaginn 26. mars. Líkt og undanfarin ár geta foreldrar leikskólabarna í Reykjavík valið hvenær fjölskyldan tekur sumarfríið sitt saman, með sumaropnun eins leikskóla í hverju hverfi borgarinnar
Ellefu nemendur Laugarnesskóla greindust með kórónuveiruna í gær. Björn Gunnlaugsson aðstoðarskólastjóri segir að „lokatölur“ hafi borist nú um klukkan 11.
Skóla-og frístundaráð hefur samþykkt tillögu ungmennaráðs Laugardals, Háaleitis og Bústaða um fríar tíðavörur í alla grunnskóla og félagsmiðstöðvar borgarinnar frá og með haustinu 2021.
Pláss verður fyrir sextíu börn á aldrinum tólf mánaða til þriggja ára á nýjum ungbarnaleikskóla í Bríetartúni sem Reykjavíkurborg ætlar að taka í notkun fyrir lok þessa árs. Opnun leikskólans er liður í áformum borgaryfirvalda um að fjölga plássum svo hægt sé að bjóða börnum allt frá tólf mánaða aldri leikskólavist.
Skólastjóri Laugalækjarskóla segir að skimunarsóttkví sem allir nemendur skólans hafa verið sendir í á morgun, 24. mars, gæti varla hafa komið á verri tíma. Árshátíð 8.-10. bekkja skólans, hápunktur ársins, átti að fara fram á morgun en hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna ástandsins.
Allir nemendur í Laugarnesskóla og Laugalækjaskóla í Reykjavík fara í úrvinnslusóttkví á morgun, miðvikudaginn 24. mars. Gripið er til þessa ráðstafana vegna fjölgunar kórónuveirusmita meðal nemenda í Laugarnesskóla. Allur árgangur 6. bekkjar í Laugarnesskóla, sem og 5. flokkur karla í knattspyrnu hjá Þrótti, er jafnframt í sóttkví.
Að minnsta kosti þrír nemendur í Laugarnesskóla greindust með kórónuveiruna í dag. Þeir voru allir í sóttkví. Áður hafði einn nemandi auk kennara greinst með veiruna í skólanum. Smit eru nú staðfest í fjórum af fimm sjöttu bekkjum skólans.
Karlmaður á þrítugsaldri, sem meðal annars er grunaður um frelsissviptingu og ítrekuð brot gegn nálgunarbanni, var handtekinn í dag. Hann hafði áður verið handtekinn á heimili fyrrverandi kærustu sinnar 17. mars en sleppt eftir að héraðsdómur féllst ekki á að úrskurða hann í gæsluvarðhald.
Helgi Helgason hundaeftirlitsmaður segir ekki meitlað í stein að Rottweiler-hundi, sem beit stúlku í andlitið á barnum Röntgen við Hverfisgötu, verði lógað. Lögreglumaður segir að hundurinn verði hugsanlega settur í geðmat.
Nemandi í Laugarnesskóla greindist í dag smitaður af kórónuveirunni. Kennari við skólann greindist með veiruna í gær.