Sambandsdeild Evrópu

Óskar Hrafn: Stærri leikur en nokkur annar hjá Breiðabliki í Evrópu
Óskar Hrafn Þorvaldsson fór yfir leik dagsins hjá Breiðabliki en liðið spilar þá fyrri leik sinn á móti Struga í baráttu um laust sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Góð úrslit muni fyrst og fremst nást með baráttu
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks á von á krefjandi leik þegar liðið mætir Struga í Norður-Makedóníu í dag í umspili um laust sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta. Um er að ræða fyrri leikinn í einvígi liðanna.

Villa komið með annan fótinn í riðlakeppnina
Aston Villa er svo gott sem búið að tryggja sér sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar UEFA eftir öruggan 5-0 sigur á Hibernian frá Skotlandi á útivelli í kvöld.

Þýðingarmikið einvígi Breiðabliks í Evrópu í beinni á Stöð 2 Sport
Stöð 2 Sport hefur tryggt sér sýningarréttinn á báðum leikjum í mikilvægu einvígi Breiðabliks við FC Sluga frá Norður-Makedóníu í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Mark í uppbótartíma felldi Ísak Snæ og félaga
Ísak Snær Þorvaldsson skoraði mark Rosenborg sem féll úr leik í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. Liðið tapaði 3-1 fyrir Hearts frá Skotlandi og kom úrslitamarkið í uppbótartíma.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: KA - Club Brugge 1-5 | KA úr leik eftir annað stórt tap
KA er úr leik í Sambandsdeild Evrópu eftir 5-1 tap gegn Club Brugge á Laugardalsvelli í kvöld. Belgíska liðið vann einvígið 10-2 samanlagt og fer því örugglega áfram í næstu umferð.

Íslendingaliðin örugglega áfram í næstu umferð
Twente og Midtjylland eru bæði komin áfram í umspil um sæti í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir sigra í einvígjum sínum í kvöld.

Munu koma á framfæri mikilvægum skilaboðum gegn KA í kvöld
Belgíska knattspyrnuliðið Club Brugge mun spila í sérstökum treyjum í seinni viðureign sinni gegn KA í Sambandsdeild Evrópu á Laugardalsvelli í kvöld. Frá þessu er greint í yfirlýsingu á heimasíðu félagsins.

Umfjöllun: Club Brugge - KA 5-1 | Belgarnir kláruðu dæmið í fyrri hálfleik
KA mætti belgíska stórveldinu Club Brugge í forkeppni Sambandsdeildarinnar nú í kvöld. Leikið var á Jan Breydel leikvanginum í Belgíu. Það verður seint sagt að um spennandi leik hafi verið að ræða um en heimamenn unnu afar öruggan 5-1 sigur á KA.

Ísak byrjaði í Sambandsdeildarsigri en Sverrir og félagar þurfa að snúa taflinu við
Ísak Snær Þorvaldsson var í byrjunarliði Rosenborg er liðið vann góðan 2-1 sigur gegn skoska liðinu Hearts í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Á sama tíma máttu Sverrir Ingi Ingason og félagar hans í Midtjylland þola 1-0 tap gegn Omonia frá Kýpur.

LASK bíður Blika komist þeir áfram gegn Zrinjski
Dregið var í næstu umferð Evrópudeildarinnar í dag.

Ísak fórnaði nefinu til að skora en höfuðið í lagi
„Það er allt þess virði fyrst við komumst áfram, þó að maður sé með skurð og brotið nef,“ sagði Ísak Snær Þorvaldsson sem nefbrotnaði en skoraði samt í fyrsta leik sínum fyrir Rosenborg í tæpa þrjá mánuði.

Umfjöllun: Dundalk - KA 2-2 | KA-menn áfram og mæta Club Brugge
KA sótti jafntefli til Írlands í kvöld og er því komið áfram í næstu umferð Sambandsdeildarinnar. Fyrri leiknum lauk með 3-1 sigri KA sem þýðir að KA vinnur einvígið 5-3.

Bjartsýnn fyrir hönd sinna gömlu félaga: „Hefur verið svolítil rússíbanareið“
Nökkvi Þeyr Þórisson hefur fylgst grannt með gangi mála hjá sínum gömlu félögum í KA í sumar og er bjartsýnn á að þeir komist í 3. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Færeyjar á undan Íslandi að tryggja sér lið í Evrópukeppni
Það ríkir þjóðhátíðarstemning í Færeyjum eftir tímamótasigur KÍ frá Klaksvík í einvíginu við Svíþjóðarmeistara Häcken í 2. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í gær.

Dagskráin í dag: KA fer til Írlands og Besta deild kvenna
Það verður nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sports í dag. 15. umferð Bestu-deildar kvenna klárast með tveimur leikjum og síðan mun Helena Ólafsdóttir gera upp umferðina í Bestu mörkunum.

Umfjöllun: FCK - Breiðablik 6-3 | Orri Steinn gerði þrennu
Breiðablik tapaði 6-3 ytra gegn FC Kaupmannahöfn, þetta var seinni viðureign liðanna í annari umferð undankeppni Meistaradeildarinnar. Samanlögð úrslit leikjanna tveggja eru því 8-3. Breiðablik mun næst mæta Zrinjski Mostar í undankeppni Evrópudeildarinnar.

Juventus í bann frá þátttöku í Sambandsdeild Evrópu og Chelsea sektaðir
Juventus mun ekki leika í Sambandsdeild Evrópu eins og þeir höfðu unnið sér rétt til að gera á næsta tímabili. Liðið endaði í sjöunda sæti Serie A sem gaf keppnisréttinn í keppninni en vegna brota á fjármálareglum knattspyrnunnar (Financial fair play) þá munu þeir ekki fá að keppa í Sambandsdeildinni. Þá fá Chelsea sekt fyrir að gefa ekki upp réttar upplýsingar um sín fjármál

Sjáðu mörkin úr fræknum sigri KA á Dundalk
KA er í góðri stöðu fyrir seinni leikinn gegn Dundalk frá Írlandi í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir 3-1 sigur í fyrri leiknum í gær.

Hallgrímur: „Við erum gríðarlega ánægðir með góð úrslit en það er bara hálfleikur“
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var að vonum ánægður með 3-1 sigur sinna manna gegn Dundalk FC frá Írlandi. Þetta var fyrri viðureign liðanna í annarri umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar en seinni leikur liðanna fer fram 3. ágúst á Írlandi.

Þjálfari Dundalk: „Allir sem horfðu á leikinn sáu að við vorum mun betri aðilinn“
„Ég er bara pirraður, mér fannst við stjórna þessum leik frá upphafi til enda. Þetta er versta mögulega niðurstaða þegar litið er á frammistöðuna í þessum leik“, sagði Stephen O‘Donnell, þjálfari Dundalk FC, eftir 3-1 tap liðsins gegn KA.

Umfjöllum: KA - Dundalk 3-1 | KA í góðri stöðu
KA vann Dundalk frá Írlandi 3-1 í fyrri leik liðanna í annarri umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar. Bjarni Aðalsteinsson opnaði markareikninginn fyrir KA, Daniel Kelly jafnaði svo fyrir gestina skömmu síðar áður en Sveinn Margeir Hauksson skoraði tvö mörk til viðbótar fyrir KA.

Mikael Anderson og félagar steinlágu gegn Club Brugge
Club Brugge unnu sannfærandi 3-0 sigur gegn AGF í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.

Útileikir Breiðabliks og KA sýndir beint á Stöð 2 Sport
Næstu útileikir Breiðabliks og KA í Evrópukeppnum verða sýndir á Stöð 2 Sport.

Þurfa að bíta á jaxlinn gegn beinskeyttum Írum í kvöld: „Þurfum að þora vera við sjálfir“
Hallgrímur Jónasson, þjálfari karlaliðs KA í fótbolta er borubrattur fyrir fyrri leik liðsins gegn írska liðinu Dundalk í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Norðanmenn þurfti að setja í næsta gír frá einvígi sínu í fyrstu umferðinni til að eiga möguleika.

Gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir KA í kvöld: „Gefur okkur gæði og ró fram á við“
Færeyski landsliðsmaðurinn Jóan Simun Edmundsson verður í leikmannahópi KA sem tekur á móti írska liðinu Dundalk í Sambandsdeild Evrópu í kvöld og gæti því spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Midtjylland með sigur í forkeppni Sambandsdeildarinnar
Midtjylland sem spilar í dönsku úrvalsdeildinni vann 2-0 sigur gegn FC Progrès Niederkorn í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.

KA fer til Belgíu eða Danmerkur sigri það Dundalk
KA mætir Dundalk frá Írlandi í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Takist KA að komast í gegnum FH-banana frá árinu 2016 þá bíða þeirra mótherjar frá annað hvort Belgíu eða Danmörku.

Íslensku liðin hafa unnið sjö af átta Evrópuleikjum sinum í ár
Breiðablik og KA eru komin áfram í Evrópukeppnum sínum en Víkingar eru úr leik þrátt fyrir sigur í seinni leik sínum.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Víkingur - FC Riga 1-0 | Víkingur úr leik þrátt fyrir sigur
Víkingur sigraði lettneska liðið Riga FC á Víkingsvelli í kvöld. Leikurinn endaði 1-0 en Helgi Guðjónsson skoraði markið á 82. mínútu leiksins. Leikurinn var sá seinni í einvígi liðanna í fyrstu umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Þrátt fyrir sigur eru Víkingar fallnir úr leik því að samanlögð úrslit úr leikjunum tveimur er 2-1 fyrir Riga og ljóst er að Víkingar ná ekki lengra í Evrópukeppnum þetta tímabilið.