Bandaríkin
200 201 202 203 204 205 206 207 208 … 334 ›
Segir forystu Repúblikanaflokksins aumkunarverða og kunna ekkert nema að tapa Svo virðist sem uppreisn sé hafin gegn ofríki Donald Trump innan Repúblikanaflokksins en forsetinn fór mikinn á Twitter í dag eftir að samflokksmenn hans í fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykktu að þvinga í gegn frumvarpi um fjárveitingar til hermála, sem Trump hafði neitað að lögfesta með undirskrift sinni. Erlent 29.12.2020 17:39
Sakar Trump-liða um að draga lappirnar Joe Biden, verðandi forseti Bandaríkjanna, segir að pólitískt ráðnir starfsmenn Donalds Trump, fráfarandi forseta, og Trump sjálfur séu að draga lappirnar varðandi stjórnarskiptin. Vísaði hann sérstaklega til starfsmanna stofnanna í varnarmálaráðuneytinu og Office of Management and Budget eða OMB. Erlent 29.12.2020 15:01
Gaf eigur sínar í aðdraganda sprengingarinnar Anthony Quinn Warner, sem sprengdi sig og húsbíl sinn í loft upp í Nashville á jóladag hafði breytt lífi sínu í aðdraganda sprengingarinnar. Þær breytingar þykja til marks um að hann hafi ekki ætlað sér að lifa sprenginguna af. Erlent 29.12.2020 12:12
Gaf Demókrötum gullið tækifæri Þingmenn á fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykktu í gærkvöldi frumvarp um að senda hverjum Bandaríkjamanni tvö þúsund dala ávísun, en ekki 600 dali eins og til stendur. Donald Trump, fráfarandi forseti, hefur krafist þess á undanförnum dögum. Erlent 29.12.2020 10:06
„Deadliest Catch“-stjarna látin Bandaríkjamaðurinn Nick McGlashan, sem margir þekkja úr sjónvarpsþáttunum Deadliest Catch á Discovery Channel, er látinn, 33 ára að aldri. Lífið 29.12.2020 08:38
Græddi ekkert og reitti alla til reiði Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, undirritaði frumvarp um neyðaraðstoð handa Bandaríkjamönnum og fyrirtækjum vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar í nótt. Hann hafði áður neitað að undirrita frumvarpið, sem snýr einnig að fjárveitingum til reksturs alríkisstofnanna, og krafðist þess að dregið yrði úr kostnaði. Erlent 28.12.2020 14:51
Umdeildir ásatrúarmenn deila við bændur í Minnesota Söfnuður bandarískra ásatrúarmanna deilir nú við fámennt samfélag bænda í Minnesota eftir að bæjaryfirvöld í Murdock samþykktu beiðni safnaðarins um að leyfa bænahald í gamalli kirkju sem söfnuðurinn hefur keypt þar. Kirkjan yrði eingöngu aðgengileg fyrir hvítt fólk af norður-evrópskum uppruna. Erlent 28.12.2020 12:35
Það sem gerist í raun og veru fyrstu vikuna í bandarísku fangelsi Fyrrum fanginn Mario settist niður með Buzz Feed á dögunum og fór ítarlega yfir það hvað gerist í lífi fanga sem hefur afplánun í bandarísku fangelsi. Lífið 28.12.2020 10:31
Trump undirritar björgunarpakka og kemur í veg fyrir lokun alríkisstofnana Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög um sérstakan björgunarpakka sem ætlað er að styðja bæði fyrirtæki og einstaklinga í Bandaríkjunum vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins á bandarískt efnahagslíf. Pakkinn hljóðar upp á 900 milljarða Bandaríkjadala, um 115 þúsund milljarða íslenskra króna. Erlent 28.12.2020 06:23
Skaut á fólk af handahófi og banaði þremur Yfirvöld í Flórída hafa ákært liðþjálfa í sérsveitum Bandaríkjahers fyrir árás þar sem hann virðist hafa skotið á fólk af handahófi í keiluhöll í Illinois í gær. Þrír eru dánir og þrír særðir eftir árásina. Erlent 27.12.2020 23:14
Rannsaka hvort sprengingin tengist 5G-samsæriskenningum Lögregluþjónar í Nashville í Bandaríkjunum eru sagðir rannsaka hvort maðurinn sem talinn er hafa sprengt sig og húsbíl sinn í loft um jólin hafi hræðst 5G samskiptatækni. Þrír slösuðust í sprengingunni fyrir utan byggingu fjarskiptafyrirtækisins AT&T í borginni að morgni jóladags. Erlent 27.12.2020 20:22
Milljónir án bóta eða aðstoðar og þingmenn segja Trump að skrifa undir Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, er nú undir þrýstingi um að skrifa undir stærðarinnar frumvarp um neyðarpakka vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar og fjárveitingu ríkisstofnana. Núverandi fjárveitingar vegna atvinnuleysisbóta runnu út í gær svo milljónir Bandaríkjamanna eru nú án bóta og aðstoðar. Erlent 27.12.2020 17:57
Sprengingin í Nashville líklega sjálfsmorðssprengjuárás Lögregluyfirvöld í borginni Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum telja að sprengjan sem sprakk í húsbíl á jóladagsmorgun hafi verið sjálfsmorðssprengjuárás. Líkamsleifar sem fundust nærri sprengjustaðnum eru til rannsóknar. Erlent 27.12.2020 08:32
Gerðu húsleit í tengslum við sprenginguna í Nashville Bandaríska alríkislögreglan, FBI, gerði húsleit hjá einstaklingi sem talinn er tengjast mikilli sprengingu sem varð í borginni Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum í gærmorgun. Erlent 26.12.2020 22:30
Kínverska hagkerfið verði það stærsta í heimi 2028 Hagkerfi Kína mun taka fram úr því bandaríska árið 2028 og verður þá það stærsta í heimi, samkvæmt spá CEBR, breskrar rannsóknarmiðstöðvar um hagfræði og viðskipti. Fyrra spálíkan hafði gert ráð fyrir að Kína ætti stærsta hagkerfi heims árið 2033, en faraldur kórónuveiru er sagður munu flýta því. Viðskipti erlent 26.12.2020 17:31
Bjóða verðlaunafé til handa þeim sem geta gefið upplýsingar um sprenginguna Fyrirtæki og sjónvarpsstjörnur hafa boðið allt að þrjú hundruð þúsund dollara, eða sem nemur um 38,5 milljónum króna, í verðlaunafé fyrir vísbendingar um þann sem ber ábyrgð á mikilli sprengingu sem varð í Nashville í Bandaríkjunum í gærmorgun. Erlent 26.12.2020 16:22
Neyddust til að lenda Boeing 737-8 MAX vegna bilunar í vélarbúnaði Óvænt þurfti að lenda Boeing 737-8 MAX vél Air Canada, eftir að flugmenn vélarinnar neyddust til að slökkva á öðrum hreyfli þotunnar. Engir farþegar voru í vélinni heldur aðeins þriggja manna áhöfn. Erlent 26.12.2020 14:08
Sprenging í Nashville talin vera viljaverk Mikil sprenging varð í borginni Nashville í Tennessee-ríki í gærmorgun þegar húsbíll sprakk fyrir utan byggingu í eigu fjarskiptafyrirtækisins AT&T. Þrír slösuðust í sprengingunni, en fólk á svæðinu hafði verið varað við og beðið um að yfirgefa svæðið. Erlent 26.12.2020 08:11
Gömul bloggfærsla kom upp um „leynilegt vitni“ sem reyndist vera stuðningsmaður Trump Lögmaðurinn Sidney Powell vitnaði til vitnisburðar „leynilegs vitnis“ þegar hún fór þess á leit við Hæstarétt Bandaríkjanna að snúa við ósigri Donalds Trump í forsetakosningunum vestanhafs. Vitnið leynilega er sagt vera fyrrverandi verktaki hjá leyniþjónustunni sem búi yfir upplýsingum um erlent samsæri um að grafa undan lýðræði. Nú hefur aftur á móti komið í ljós að ónefnda vitnið reyndist vera hlaðvarpsstjórnandi og stuðningsmaður Trump sem áður hefur komist í kast við lögin fyrir að villa á sér heimildir. Erlent 25.12.2020 16:30
Fimm daga björgunaraðgerðir á Suðurskautslandinu Áströlskum manni sem þurfti læknisaðstoð í könnunarleiðangri hefur verið bjargað af Suðurskautslandinu eftir fimm daga björgunaraðgerðir. Skip, þyrlur og flugvélar tóku þátt í björgunaraðgerðum sem var samstarf þriggja þjóða. Erlent 25.12.2020 15:23
Neverland-búgarður Jackson seldur langt undir ásettu verði Neverland, búgarður poppstjörnunnar Michael Jackson heitins, hefur verið seldur fyrir 22 milljónir dollara, eða sem nemur rúmum 2,8 milljörðum íslenskra króna. Þrátt fyrir að upphæðin kunni að hljóma há er hún engu að síður ekki nema fjórðungur af upphaflegum verðmiða eignarinnar. Það mun hafa verið milljarðamæringurinn Ron Burkle sem keypti eignina en kaupin hafa verið sögð vera algjör „þjófnaður.“ Viðskipti erlent 25.12.2020 12:54
Milljónir skammta af bóluefni sitja ónotaðir í Bandaríkjunum Afar ólíklegt er að það takist að bólusetja þær tuttugu milljónir manna sem stefnt var að í Bandaríkjunum á fyrsta mánuði bólusetningar. Búið er að dreifa um tíu milljónum skammta af bóluefni Pfizer og BioNTech annars vegar og Moderna hins vegar til sjúkrahúsa og ríkja í Bandaríkjunum. Erlent 24.12.2020 08:01
Aftur leggur Trump stein í götu þingsins Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, beitti neitunarvaldi sínu í dag þegar hann neitaði að skrifa undir lög um útgjöld vegna varnarmála. Lögin voru samþykkt í báðum deildum Bandaríkjaþings með yfirgnæfandi meirihluta. Erlent 23.12.2020 22:14
Jólasveinninn í bullandi vandræðum yfir Bandaríkjunum Óhætt er að segja að jólasveinninn hafi lent í vandræðum yfir Sacramento-borg í Kaliforníu-ríki Bandaríkjanna á dögunum. Slökkviliðsmenn þurftu að koma honnum til bjargar eftir að hann flaug á rafmagnslínur. Erlent 23.12.2020 20:59
Fá raunveruleg tilvik kosningasvindls hafa fundist Þrátt fyrir umfangsmikla leit Donalds Trump, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, og bandamanna hans að kosningasvindli í lykilríkjum í Bandaríkjunum, og ásakanir um að slíkt svindl hafi kostað Trump sigur í forsetakosningunum í byrjun nóvember, hafa tiltölulega fá og umfangslítil tilvik fundist. Örfá hafa leitt til ákæra. Erlent 23.12.2020 16:04
Náðar stuðnings- og stríðsglæpamenn Donald Trump, fráfarandi forseti Bandaríkjanna, náðaði fimmtán manns og felldi niður dóma fimm manns í gær. Þar á meðal eru þrír fyrrverandi þingmenn Repúblikanaflokksins, tveir menn sem voru dæmdir í tengslum við Rússarannsóknina svokölluðu og fjórir öryggisverktakar sem voru dæmir fyrir þátt þeirra í fjöldamorði á fjórtán óvopnuðum Írökum á Nisour torgi í Bagdad árið 2007. Erlent 23.12.2020 11:46
Trump hafnar Covid-björgunarpakkanum og segir hann vera til skammar Donald Trump fráfarandi forseti í Bandaríkjunum reynir enn að láta að sér kveða en í nótt neitaði hann að skrifa undir björgunarpakka vegna kórónuveirufaraldursins sem þingmenn náðu loks saman um í vikunni. Erlent 23.12.2020 08:13
Skipar fyrir um fegurð opinberra bygginga Donald Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseti, hefur skrifað undir forsetatilskipun sem kveður á um að opinberar byggingar á alríkisstigi, sem byggðar verða í framtíðinni, verði að vera „fallegar.“ Þá verði þær helst að vera byggðar í klassískum rómverskum eða grískum stíl, eða öðrum sambærilegum stíl. Erlent 22.12.2020 23:26
Covid-19 gæti minnkað lífslíkur Bandaríkjamanna um þrjú ár Ef Covid-19 er tekið með í reikninginn munu lífslíkur Bandaríkjamanna minnka um þrjú ár. Sjúkdómurinn, sem er afleiðing SARS-CoV-19 veirusmits, verður að öllum líkindum í þriðja sæti yfir helstu dánarorsakirnar vestanhafs árið 2020. Erlent 22.12.2020 17:45
Hófu skothríð eftir að þeim var vísað af strippstað fyrir að vera ekki með grímur Yfirvöld í Kaliforníu hafa ákært þrjá menn sem skutu úr árásarriffli á nektardansstað í Anaheim, eftir að þeir höfðu verið reknir þaðan út. Mennirnir og vinir þeirra höfðu neitað að vera með grímur og var hent út. Erlent 22.12.2020 16:35