Skák

Mátti ekki tefla í gallabuxum og hættir keppni á heimsmeistaramóti
Magnus Carlsen hefur dregið sig úr keppni í heimsmeistaramótinu í at- og hraðskák, eftir að hafa fengið sekt fyrir að hafa teflt í gallabuxum. Magnus er ríkjandi heimsmeistari bæði í atskák og hraðskák.

Yngsti heimsmeistari sögunnar í skák
Indverski skákmaðurinn Gukesh Dommaraju sló 39 ára met Garry Kasparov í dag þegar hann tryggði sér sinn fyrsta heimsmeistaratitil í skák.

Bein útsending: Sterkustu skákmenn landsins mætast
Strákarnir í Chess After Dark standa fyrir Íslandsmótinu í atskák sem fer fram í dag á Selfossi. Sterkustu skákmenn landsins mætast þar.

Leggja niður störf og föst laun stórmeistara
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur undirritað nýja reglugerð um afrekssjóð í skák. Reglugerðin tilgreinir með hvaða hætti styrkveitingar til skákmanna munu fara fram. Markmiðið með reglugerðinni er að búa afreksskákmönnum og efnilegum skákmönnum fjárhagslega og faglega umgjörð til að hámarka árangur sinn í skák.

Mál umdeilda skákborðsins ætlar engan endi að taka
Landsréttur hefur sent mál sem varðar eftirlíkingu af skákborði sem Bobby Fischer og Boris Spasskí notuðu þegar þeir tefldu í einvígi aldarinnar í Reykjavík 1972 aftur í hérað.

Stórmeistara vísað úr móti fyrir að nota símann sinn
Einn af sjötíu bestu skákmeisturum heims varð uppvís að því að svindla í alþjóðlegu skákmóti á Spáni.

Gríðarlegar sviptingar á undanmóti Íslandsmótsins í netskák
Skákmennirnir Dagur Arngrímsson, Guðmundur Gíslason og Símon Þórhallsson höfnuðu í gærkvöld í þremur efstu sætum undankeppninnar fyrir Íslandsmótið í netskák og fylla því flokk 16 keppenda á útsláttarmótinu en 13 keppendum hafði áður verið boðið til leiks.

Ritstjóra DV dæmdur ósigur eftir símhringingu
Björn Þorfinnsson ritstjóri DV og alþjóðlegur meistari í skák var í banastuði á útiskákmóti á Ingólfstorgi í bongóblíðunni á laugardaginn. Lífið lék við Björn þar til að sími hringdi.

Íslendingar byrja vel á heimsmeistaramóti öldunga í skák
Heimsmeistaramót landsliða öldunga í skák fer fram þessa dagana í Kraká í Póllandi og lið Íslands er í öðru sæti með sjö stig af átta mögulegum eftir fjórar umferðir af níu. Í dag fer fram viðureign íslenska liðsins og þess ítalska sem leiðir á mótinu með átta stig af átta mögulegum.

Eins söguleg og skáldsaga getur orðið
„Þetta einvígi lifir með þjóðinni og mun gera það áfram,“ segir Sigurbjörn J. Björnsson gæðatryggingastjóri hjá Algalif og rithöfundur.

Helgi Áss nokkuð óvænt Íslandsmeistari í annað sinn
Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitilinn í skák. Það gerði hann þó einni umferð væri ólokið á mótinu.

Hafa ekki áhyggjur af fækkandi Elo-stigum
Íslandsmeistaramótið í skák fer fram í vikunni og verður úrslitaskákin tefld á laugardaginn. Einungis tveir skákmenn hér á landi voru með 2500 Elo-stig þann 1. apríl og samkvæmt nýjustu tölum nær einungis einn þeim fjölda. Forseti Skáksambands Íslands hefur ekki áhyggjur af því.

Fischersetrið á Selfossi nýtur mikilla vinsælda
Fishersetrið á Selfossi nýtur mikilla vinsælda skákmanna um allan heim enda stöðugar heimsókn þeirra á safnið og að gröf Bobby Fischers, sem hvílir í Laugardælakirkjugarði rétt fyrir utan Selfoss.

Bein útsending: Heimir Guðjóns og Höddi Magg í einvígi aldarinnar
Heimir Guðjónsson, einn allra fremsti þjálfari Íslands í knattspyrnu og Hörður Magnússon, betur þekktur sem Höddi Magg, fyrrverandi knattspyrnumaður og einn ástkærasti lýsandi landsins, mætast í epísku hraðskákeinvígi í kvöld.

Chess After Dark strákarnir boða til einvígis aldarinnar
Knattspyrnuáhugamenn og skákáhugamenn ættu að taka Skírdag frá. Heimir Guðjónsson, einn allra fremsti þjálfari Íslands í knattspyrnu og núverandi þjálfari FH, og Hörður Magnússon, betur þekktur sem Höddi Magg, fyrrverandi knattspyrnumaður og ástkærasti lýsir landsins, mætast í epísku hraðskákeinvígi.

Guðmundur meðal efstu manna fyrir lokaumferð Reykjavíkurskákmótsins
Guðmundur Kjartansson er efstur ásamt fimm öðrum á alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu sem haldið er í Hörpu þessa dagana. Guðmundur lagði fyrrverandi sigurvegara mótsins, Baskaran Adhiban að velli með svörtu mönnunum í dag. Sigur á morgun tryggir Guðmundi jafnt fyrsta sæti. Lokaumferðin hefst á morgun kl 11.

Samfélagsmiðlastjörnur og skákgoðsagnir á Reykjavíkurskákmótinu
Reykjavíkurskákmótið 2024 hefst á föstudaginn í Hörpu. 414 keppendur frá 49 löndum eru skráðir til leiks, en þar af eru 93 íslenskir. Aldrei hafa fleiri keppendur verið skráðir, en loka þurfti fyrir skráningu vegna plássleysis í Hörpu, slík var aðsóknin. Gamla metið frá í fyrra var 401 keppandi. 28 keppendur eru stórmeistarar, átta þeirra íslenskir.

Leit við hjá Fischer og segir hann enn besta skákmeistara sögunnar
Skákmeistarinn Hans Niemann stoppaði stutt á Íslandi um helgina og heimsótti gröf bandaríska stórmeistarans Bobby Fischer á afmælisdag þess síðarnefnda. Eins og frægt er bjó Fischer síðustu æviárin hér á landi og er jarðsettur á Selfossi.

Framsóknarmenn undirbúa listaverk um einvígi aldarinnar
Menningar- og viðskiptaráðherra hefur falið sérstökum undirbúningshópi að vinna að undirbúningi og samkeppni um listaverk um einvígi aldarinnar. Guðni Ágústsson, fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, leiðir hópinn, sem skipaður er þremur öðrum Framsóknarmönnum og tveimur skákmönnum.

Sextándi heimsmeistaratitillinn í höfn: „Ég er ekki kominn með leið á að vinna“
Magnus Carlsen tryggði sér í dag heimsmeistaratitilinn í hraðskák í fimmta sinn. Þetta er sextándi heimsmeistaratitill hins rúmlega þrítuga Norðmanns.

Sektuð fyrir að vera í Burberry skóm á HM í skák
Tískuskór frá Burberry eru á bannlista Alþjóða skáksambandsins en mjög strangar reglur gilda um klæðaburð á heimsmeistaramótunum í skák. Því fékk skákkonan Anna-Maja Kazarian að kynnast.

Átta ára undrabarn sem fékk ekki að horfa á YouTube
Átta ára Rússi hefur stolið senunni á heimsmeistaramótinu í hraðskák og tekist að vinna tvo stórmeistara á mótinu. Stolt móðir hans segist hafa viljað halda honum frá tölvuleikjum og YouTube, og að markmiðið sé að vinna Magnus Carlsen einn daginn.

Ríkharður Sveinsson er látinn
Ríkharður Sveinsson, formaður Taflfélags Reykjavíkur, er látinn, 56 ára að aldri. Greint var frá andlátinu á heimasíðu Skáksambands Íslands á dögunum en Ríkharður lést á gjörgæsludeild Landspítalans 20. desember.

Vignir Vatnar Íslandsmeistari í hraðskák
Vignir Vatnar Stefánsson er nýr Íslandsmeistari í hraðskák en mótið fór fram í höfuðstöðvum Landsbankans í dag. Um það bil níutíu skákmenn kepptu um titilinn.

Úlfúð í íslensku skáksamfélagi
Mikið ósætti ríkir í skáksamfélaginu á Íslandi eftir að fjórir keppendur drógu sig úr Íslandsmótinu í Fischer slembiskák sem lauk í dag. Ósættið stafaði af því að einstaklingur sem tók ekki þátt í undankeppni mótsins fékk sæti í úrslitakeppninni vegna forfalla.

Í beinni: Undanúrslit Íslandsmótsins í Fischer-slembiskák
Undanúrslit Íslandsmótsins í Fischer-slembiskák fara fram í kvöld en mótið er haldið af hlaðvarpsstrákunum í Chess After Dark.

Í beinni: Íslandsmótið í Fischer-slembiskák
Undanrásir Íslandsmótsins í Fischer-slembiskák hefjast kvöld en mótið er haldið af hlaðvarpsstrákunum í Chess After Dark.

Aðförin að íslenskri skák
Íslenskt skáklíf stendur í miklum blóma nú um stundir. Iðkendum fjölgar, fjölmörg spennandi skákmót eru haldin í hverjum mánuði, auk þess sem ungir og upprennandi skákmenn eru að koma fram á sjónarsviðið í miklum mæli.

Íslenska liðið lagði Norðmenn með Carlsen í broddi fylkingar
Íslenska liðið í opnum flokki í skák lagði Norðmenn, með Magnús Carlsen í broddi fylkingar, í þriðju umferð EM landsliða í Budva í Svartfjallalandi í gær.

Stórmeistarar verði ekki lengur opinberir starfsmenn
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt áform um ný heildarlög um skák. Helsta breytingin sem er áformuð er að stórmeistarar í skák verði ekki lengur opinberir starfsmenn og að þeir fái ekki greitt fyrir það eitt að vera stórmeistarar.