Spánn

Beðin um að tilkynna líkfundi
Að minnsta kosti 51 er látinn í Valensía-héraði í hamfaraflóðum sem gengið hafa yfir suðausturhluta Spánar síðan í gær. Fjöldi Íslendinga hefur vetursetu á Spáni og í grennd við Valensía en utanríkisráðuneytið fylgist grannt með stöðu mála þar fyrir sunnan. Íslendingur á svæðinu segir óraunverulegt að upplifa hamfarirnar.

Tala látinna á Spáni hækkar hratt
51 hið minnsta er látinn í Valensía-héraði í hamfaraflóðum sem gengið hafa yfir suðausturhluta Spánar síðan í gær.

Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt
Fimm hafa verið handteknir á Spáni fyrir að svíkja út úr tveimur konum 325 þúsund evrur með því að þykjast vera leikarinn Brad Pitt. Það samsvarar tæpum 50 milljónum íslenskra króna. Konurnar héldu báðar að þær ættu í ástarsambandi við Brad Pitt.

Flúði þegar sveitir Maduro ætluðu að grípa hann
Edmundo González, forsetaframbjóðandi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, segist hafa flúið land þegar hann fékk upplýsingar um að öryggssveitir Maduro forseta ætluðu að taka hann höndum. Hann hefði getað verið handtekinn og pyntaður.

Fimmti hver myndi helst velja að flytja til Danmerkur
Einn af hverjum fimm Íslendingum nefnir að Danmörk yrði fyrir valinu ef þeir gæti flutt til hvaða lands sem er.

Yazan afar létt að vera ekki vísað frá landi
Yazan Tamimi og fjölskylda hans geta á morgun sótt um að umsókn þeirra um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun. Þá verður umsókn þeirra metin með tilliti til aðstæðna í heimaríki þeirra, Palestínu, en ekki til aðstæðna á Spáni, þaðan sem þau höfðu viðkomu á leið til landsins.

Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar
Þrír Íslendingar keppa á heimsmeistaramótinu í hraðpúsli sem fram fer á Spáni. Fulltrúar okkar hafa púslað sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar.

Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni
Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til Valencia næsta sumar. Fyrsta flugið verður 24. maí 2025 og verður flogið á þriðjudögum og laugardögum fram til 29. september.

Látin eftir hákarlaárás suður af Kanaríeyjum
Þýskur ferðamaður er látinn eftir hákarlaárás undan ströndum Kanaríeyja. Um var að ræða konu á fertugsaldri. Hún missti fótlegg í árásinni.

Hafna því að CIA hafi reynt að ráða Maduro af dögum
Bandaríkjastjórn hafnar ásökunum stjórnvalda í Venesúela um að bandaríska leyniþjónustan CIA hafi reynt að myrða Nicolás Maduro forseta og aðra háttsetta embættismenn.

Þriðjungur íbúa á Spáni kominn með nóg af ferðamönnum
Um 32 prósent íbúa á Spáni segja of marga ferðamenn á sínum heimaslóðum og hlutfallið er enn hærra í Katalóníu, þar sem 48 prósent íbúa segja þetta orðið of mikið af hinu góða.

Stjórnarandstöðuleiðtoginn flúinn til Spánar
Edmundo Gonzalez leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela er flúinn úr landi og lentur á Spáni. Handtökuskipun á var gefin út á hendur honum í vikunni.

Handtekin grunuð um innbrot á 22 lúxus heimili á Ibiza
Lögregluyfirvöld á Spáni hafa handtekið þrjá, tvo menn og konu, sem eru grunuð um að hafa brotist inn í fjölda íbúða á Ibiza og notað gas til að slæva heimilisfólk.

Spánverjar rekja „úldna eggjalykt“ til eldgossins
Sérfræðingur í loftgæðamálum segir það vel geta gerst að gosmóða geti borist suður á bóginn og jafnvel til Spánar. Þar í landi kvarta menn undan „úldinni eggjalykt“ sem er rakin til eldgossins á Reykjanesskaga.

Elsta manneskja heims látin
Maria Branyas Morera, áður elsta manneskja í heimi, er látin. Hún varð 117 ára og 168 daga gömul. Hún lést í svefni í gær að sögn fjölskyldu hennar.

Höfðu hendur í hári barnsmorðingjans
Spænska lögreglan handtók ungan mann sem er grunaður um að stinga ellefu ára gamlan dreng til bana á fótboltavelli í bænum Mocejón um helgina. Morðinginn flúði vettvang og upphófst mikil leit að honum.

Ellefu ára drengur myrtur á Spáni
Lögreglan á Spáni leitar nú manns sem grunaður er um að hafa myrt ellefu ára gamlan dreng með eggvopni fyrr í dag. Drengurinn var úti að leika með vinum sínum þegar maður með hettu réðst á hann snemma í dag.

Puigdemont snýr aftur til að gera það ljóst að baráttan fyrir sjálfstæði Katalóníu heldur áfram
Frá 1714 hefur Spánn litið á Katalóníu sem nýlendu, með ríkisfjármálarán upp á 22.000 milljónir evra árlega (10% af vergri landsframleiðslu Katalóníu!) og með kynþáttafordómum gegn Katalóníu. Og þetta hefur lifað til þessa dags og þess vegna þurfum við sjálfstæði Katalóníu. Við skipulögðum þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfsákvörðunarrétt árið 2017 og vegna kúgunarinnar í kjölfarið hefur Puigdemont forseti þurft að vera í útlegð í Belgíu í 7 ár.

Segir Puigdemont flúinn frá Spáni aftur
Framkvæmdastjóri flokks katalónskra sjálfstæðissinna segir að Carles Puigdemont, leiðtogi flokksins, sé farinn aftur til Belgíu eftir að skaut óvænt upp kollinum í Barcelona. Puigdemont hefur verið í sjálfskipaðri útlegð í sjö ár til að komast hjá handtöku á Spáni.

Leiðtogi sjálfstæðissinna í felum fyrir katalónsku lögreglunni
Vegatálmum var komið upp í kringum Barcelona á Spáni í dag þegar lögregla leitaði dyrum og dyngjum að Carles Puigdemont, fyrrverandi forseta katalónsku héraðsstjórnarinnar. Lögreglumaður var handtekinn fyrir að hjálpa honum að komast undan.

Umhverfissinnar unnu skemmdarverk á lúxusvillu Messi
Glæsihýsi Lionels Messi varð fyrir árás umhverfissinna í nótt. Brotist var inn á lóðina og málningu kastað yfir alla veggi.

Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni
Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, baðst undan að bera vitni í réttarrannsókn á meintri spillingu eiginkonu hans í dag. Hann sakar dómarann sem rannsakar málið um embættisafglöp.

Sánchez boðaður til að bera vitni í spillingarmáli eiginkonunnar
Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar og formaður Sósíalistaflokksins, hefur verið boðaður til að bera vitni fyrir dómi vegna rannsóknar á meintri spillingu eiginkonu hans sem er grunuð um að hafa notfært sér stöðu sína í viðskiptum.

Mótmæla ferðamönnum á Majorka
Búist er við að tugir þúsunda Majorkabúa mótmæli í dag þeim mikla fjölda ferðamanna sem streyma til eyjunnar og þeim áhrifum sem þeir hafa haft. Hagsmunasamtök hafa boðað þátttöku sína í mótmælunum sem bera yfirskriftina: „Minni túrismi - Meira líf,“ eða á katalónskunni upprunalegu: „Menys Turisme, Més Vida.“

Eva segir lífið betra með Kára Stefáns
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og Eva Bryngeirsdóttir, þjálfari og jógakennari, hafa verið stinga saman nefjum undanfarna mánuði. Eva segir í færslu á Instagram að lífið sé betra með Kára.

Íslendingur fannst látinn á Spáni
48 ára Íslendingur fannst látinn á föstudag á Spáni. Þetta fæst staðfest af utanríkisráðuneyti en frekari upplýsingar af málinu, og hvers eðlis það er, fást ekki að svo stöddu.

Lík Jay Slater fundið
Spænska lögreglan hefur staðfest að líkið sem fannst af manni á Tenerife fyrr í dag er af Jay Slater. Við fyrstu sýn virðist eins og um slys hafi verið að ræða.

Sturluðust allir úr gleði þegar myndband náðist af Ágústi fara holu í höggi
„Þetta var hreinlega mögnuð tilfinning, ég verð að viðurkenna það. Þetta sló mann alveg og það var lítið sagt í golfbílnum eftir þessa holu, það er smá spennufall sem fylgir þessu,“ segir kylfingurinn Ágúst Freyr Hallsson sem náði því merkilega afreki að fara holu í höggi seint á síðasta ári á 17. holunni á Campoamor á Spáni.

Ráðherra segir fyrirkomulag borgaraþjónustunnar á Spáni ósjálfbært
Utanríkisráðuneytið telur núverandi fyrirkomulag borgaraþjónustu á Spáni ósjálfbært til skemmri og lengri tíma. Áætlaður kostnaður við sendiskrifstofu er um 132 milljónir króna á ári að viðbættum stofnkostnaði fyrsta árið.

Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol
Borgarstjórn í Marbella-borg á Spáni hefur neitað ásökunum um að bráðlega muni fólk vera sektað fyrir að kasta af sér þvagi í sjóinn á vinsælustu ferðamannaströndum Costa del Sol. Strendurnar eru gríðarlega vinsælar meðal Íslendinga.